Vikan - 02.12.1993, Blaðsíða 18
JOLAFONDUR
'• jp 9 I :
-
Bangsar í blómapottum og með hrís-
grjónabelg.
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR
JÓLfclS®Ain'
oe jói ..&úm
ótt óðum styttist til jóla
er enn tfmi til þess að
bregða á leik og búa til
ofurlítið nýtt jólaskraut, hvort
heldur til að skreyta með eigið
heimili eða til þess að gefa
vinum og vandamönnum í
eða utan á jólapökkunum.
SNJÓKARLAR
OG JÓLAKRÍLI
Það er ekkert einfaldara en
að búa til mjúkan og fallegan
snjókarl ef þið fáið ykkur bara
nokkrar stærðir af loðnum
dúskum eða hnoðrum. Þeir
fást í ýmsum verslunum sem
selja föndur- og handavinnu-
efni. Stærsta hnoðrann notið
þið í búk snjókarlsins og síð-
an annan nokkru minni í höf-
uðið og enn minni hnoðra f
handleggi og fætur. Dúskarnir
eða hnoðrarnir eru festir sam-
Sniö aö
„laufi"
sem notaö
er þegar
búkurinn
er úr
frauö-
an með nál og enda sem
þræddur er í gegnum þá.
Snjólkarlar eru oft hafðir með
pípuhatt, sem til dæmis mætti
búa til með því að rúlla upp
svörtum borða eins og væri
hann lakkrís, festa endann
vel, klippa síðan kringlu úr
sama efni og líma rúlluna
ofan á hana og líma hattinn á
höfuð snjókarlsins. Hnappa,
hálstau, rautt nef og annað
getur hver og einn búið til eftir
sínu nefi.
Það er líka hægt að nota
dúskana aðeins í hendur og
höfuð á jólafígúrum en búa
búkinn til úr sæmilega stórri
frauðplastkúlu. Til þess að fyr-
irbærið fái svolítið jólalegt yfir-
bragð er frauðplastkúlan
klædd með jólalegu efni.
Sniðin eru fjögur „lauf“ og fer
stærð þeirra eftir ummáli kúl-
unnar. Hér fylgir þó með snið
að einu slíku „laufi" svo þið
fáið hugmynd um við hvað er
átt. Þegar búið er að sníða
efnisbút eftir „laufinu“ er það
lagt utan á kúluna og brúnum
þess þrýst inn í hana með til
dæmis heklunál, bandprjóni
eða einhverju öðru álíka. Efn-
ið verður að ganga nægilega
langt inn svo það haldist fast.
Þegar öllum laufunum hefur
verið tyllt á þennan hátt utan
á kúluna er fallegt að líma ör-
mjóar gylltar eða silfurlitar
snúrur í raufarnar enda þótt
það sé ekki gert á meðfylgj-
andi mynd. Snúran hylur rauf-
ina og felur allar misfellur ef
ekki hefur gengið nógu vel að
þrýsta efnisbútunum inn í kúl-
una. Auk þess er snúran mikil
prýði.
Ef vill má klæða jólabangsa
þessa i pils eða breyta þeim (
engla með viðeigandi klæðn-
aði, svo dæmi séu tekin. Það
er líka hægt að búa til köngla-
bangsa með því að líma
hendur og haus ofan á falleg-
an köngul. Ef hengja á þessa
herramenn á jólatréð verður
að festa snúru í höfuð þeirra.
1 8 VIKAN 24. TBL. 1993