Vikan - 02.12.1993, Blaðsíða 28
SNYRTIVORUR
WM
SAFARO BAÐLÍNA
Body Creme er umvafið
kristal og Body Lotion kemur
í plastumbúðum í kristalslíki
og með pumpu. Fyrir jólin
kemur einnig 20 ml EDP
úði.
Nu er loks komin bað-
lína í þessum sígilda
og kvenlega ilmi,
Safari frá Ralph Lauren. Líkt
og ilmurinn eru umbúðirnar
hinar glæsilegustu.
JUVENA^
Enginn fær stöðvað „tímans
þunga nið“ sagði skáldið forð-
um. Juvena hjálpar samt kon-
um að berjast gegn gangi tfm-
ans og hefur nú komið með á
markaðinn nýja kremlínu sem
stuðlar að hægari viðgangi
öldrunarinnar og styrkir húð-
ina með virkum efnum. Hér er
um að ræða samverkandi
krem sem veita húðinni al-
hliða vernd og uppbyggingu.
SKINMARINE
'wútt /wteni
Skinmarine heitir nýtt krem frá sviss-
neska framleiðandanum Juvena.
Það er vatnslitað, blanda af kremi
og geli. Hér er á ferðinni virkt andlit-
skrem með svonefndum Activ
Phase sem sagður er gera gæfu-
muninn hvað árangur snertir við að
endurbyggja húðina, koma í veg fyr-
ir neikvæð áhrif umhverfis og tefja
fyrir öldrun hennar.
Það þarf engan að undra
þó að umbúðirnar séu
eftirlíking af fagurlöguð-
um demanti því að fyrirtækið
Van Cleef & Arpels í París
hefur framleidd skartgripi úr
demöntum í bráðum heila öld.
Ilmvötnin komu síðar og
nýjasti ilmurinn frá Van Cleef
er kallaður „ilmur hins eilífa
kvenleika". Að sögn framleið-
anda er hann alveg eins og
skartgripur og „gerður til að
kalla fram vellíðan, glæsileika
og aðdráttarafl“.
Van Cleef ilmurinn er hlýr
og gefur samhljóma tón.
Hann er sígildur en samt
ferskur, djarfur og töfrandi.
Hann er settur saman úr aust-
urlenskum blómum á borð við
sítrus, bergmort og neroli auk
rósa og jasmíns og angans af
appelsínutrjám, sedrusviði og
vanillu frá Bourbon-eyjum.
Þetta er ilmur sem veitir kon-
unni öryggi og vellíðan, eykur
aðdráttarafl hennar og undir-
strikar glæsileika.
Van Cleef ilmurinn er fáan-
legur í eftirfarandi pakkning-
um: 30 ml parfum, 50 og 100
ml Eau Parfum-úði, 200 ml
Body-lotion, 200 ml sturtugel.
FRÁ VAN CLEEF
Bogner kynnti nýlega nýjan
herrailm sem settur er saman
úr bergamont, lemon, greip-
aldini, rósum, jasmínu og
fleira góðgæti.
Ilmurinn er fáanlegur sem
rakspíri og rakkrem, sturtugel,
„body lotion“ og svitalyktar-
eyðir í formi úða og stauts.
JIL SANDER
Nýr, ferskur og orkuríkur
herrailmur er nú kominn á
markaðinn frá Jil Sander,
örvandi og ómótstæðilegur
að sögn framleiðanda.
Hann er fáanlegur sem
rakspíri og „eau de toi-
lette”, svitalyktareyðir í
formi úða og stauts án
alkóhóls, húðkrem, sturtu-
gel og baðsápa.
28VIKAN 24.TBL1993