Vikan - 02.12.1993, Blaðsíða 96
SÆLGÆTI
TEXTI: ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓTTIR
SOGULEGT NAMMI, NAMM!
Ef finna á eitthvert eitt
sammerki með utan-
landsferðum íslendinga
seinni hluta þessarar aldar er
svarið örugglega litríka dósin
sem þau Major Quality og
Miss Sweetly prýða. Quality
Street sælgætið, sem íslend-
ingum er jafnan tamt að kalla
Mackintosh eftir framleiðand-
anum, fékk það hlutverk að
verða punkturinn aftan við
ferðalagið til útlanda og þá
sérstaklega á þeim árum þeg-
ar sælgætisinnflutningur var
enn bannaður. Hver man ekki
eftir því þegar einhverjir í fjöl-
skyldunni eða jafnvel nágrann-
ar höfðu átt leið um fríhöfnina
að hápunktur móttökunnar var
jafnan þegar lokið fauk af
dósinni góðu og skrautlegt
góðgætið ögraði umhverfinu.
Það var eins og ákveðin
spenna myndaðist því þetta
var nammið sem allir höfðu
skoðun á. Hver og einn átti
sinn uppáhaldsmola og í hita
leiksins fuku gjarnan setningar
eins og „Bannað að gramsa!"
M
rapHÉi \m*/ f vf r\
p ** p í pirT /Tr» m
Wk 9 I ?
wiTWaú rm » T ■■ i ■ I 1 J B -i j M ^flj W
„Hver kláraði jarðarberjamol-
ana?” „Ég ætla að finna alla
grænu þríhyrningana!" Rétt
eins og um pólitíska hags-
munabaráttu væri að ræða.
Það var því lán í óláni þeg-
ar bíll blaðamanns tók upp á
þvi að bila í sumar sem leið
að það skyldi gerast i Jórvík
(York), rétt við höfuðstöðvar
Rowntree Mackintosh. Stórt
skilti með nafni fyrirtækisins
og megn súkkulaðilyktin þyrl-
aði upp minningum um þetta
nammi sem hefur átt svo sér-
kennilegu hlutverki að gegna í
þjóðarsál ísendinga. Þar sem
ekki var annarra kosta völ en
að lengja dvölina í Jórvík um
sólarhring lokkaði súkkulaði-
lyktin mig á fund þeirra hjá
Rowntree Mackintosh til að
svala forvitni minni um uþp-
runa dósanna vinsælu.
HUNDRAÐ ÁRA
SÆLGÆTISGERÐ
Quality Street er reyndar ekki
framleitt í verksmiðjunni í Jór-
vík heldur í borg skammt frá
sem heitir Halifax. Þar hófst
sælgætisgerð hjónanna
Johns og Violet Mackintosh
fyrir rétt um hundrað árum.
Quality Street kom ekki strax
til sögunnar því sælgætis-
gerðin hófst á karamellufram-
leiðslu, svokölluðum „Mackin-
tosh's Celebrated Toffee”
sem taldar eru elstu nú-
tímakaramellurnar. Fyrirtækið
óx jafnt og þétt og upp úr
aldamótum var opnuð verk-
smiðja í Bandaríkjunum.
Þegar þau hjónin féllu frá
tóku synirnir við en Quality
Street var kynnt til sögunnar
árið 1936. Nafn þess er dreg-
ið af samnefndu leikriti eftir
J.M. Barrie, sem meðal
annars er höfundur Péturs
Pan. Hönnun umbúðanna er
grundvölluð á tveimur aðal-
persónum leikritsins, Major
Quality (Gæði majór) og Miss
Sweetly (ungfrú Ljúfleg). Sú
markaðssetning hefur verið
happadrjúg og umbúðirnar
hafa haldist lítið breyttar frá
upphafi. Framleiðslan náði
strax miklum vinsældum og
nú er þetta mest selda sæl-
gætið í heiminum. Það er flutt
til yfir hundrað landa en í Hali-
faxverksmiðjunni eru fram-
leiddir yfir tveir milljarðar af
Quality Street molum árlega.
Árið 1989 sameinaðist
Mackintosh alþjóðafyrirtækinu
Nestle og nafninu var þá
breytt í Rowntree Mackintosh.
Viðmælendur mínir eru á einu
máli um að íslandsmarkaður-
inn hafi verið mjög vænn frá
því að innflutningur þar hófst.
Sennilega erum við mestu
Quality Street molaætur sem
sögur fara af miðað við hina
frægu höfðatölu.
MEÐ GULLFOSSI
Árið 1950 fór Gullfoss að sigla
til Leith í Skotlandi og áttu
þeir (slendingar sem ferðuð-
ust með honum kost á að
kaupa Quality Street af skosk-
um höndlurum. Þannig hófst
innflutningur þessara dósa
með óeiginlegum hætti.
Þegar fríhöfnin var opnuð
árið 1958 var í fyrstu ein-
göngu verslað með ilmvötn og
tóbak en um 1960 var byrjað
að selja sælgæti og þá strax
prýddi Quality Street hillurnar.
Erfitt er að komast yfir inn-