Vikan


Vikan - 02.12.1993, Side 96

Vikan - 02.12.1993, Side 96
SÆLGÆTI TEXTI: ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓTTIR SOGULEGT NAMMI, NAMM! Ef finna á eitthvert eitt sammerki með utan- landsferðum íslendinga seinni hluta þessarar aldar er svarið örugglega litríka dósin sem þau Major Quality og Miss Sweetly prýða. Quality Street sælgætið, sem íslend- ingum er jafnan tamt að kalla Mackintosh eftir framleiðand- anum, fékk það hlutverk að verða punkturinn aftan við ferðalagið til útlanda og þá sérstaklega á þeim árum þeg- ar sælgætisinnflutningur var enn bannaður. Hver man ekki eftir því þegar einhverjir í fjöl- skyldunni eða jafnvel nágrann- ar höfðu átt leið um fríhöfnina að hápunktur móttökunnar var jafnan þegar lokið fauk af dósinni góðu og skrautlegt góðgætið ögraði umhverfinu. Það var eins og ákveðin spenna myndaðist því þetta var nammið sem allir höfðu skoðun á. Hver og einn átti sinn uppáhaldsmola og í hita leiksins fuku gjarnan setningar eins og „Bannað að gramsa!" M rapHÉi \m*/ f vf r\ p ** p í pirT /Tr» m Wk 9 I ? wiTWaú rm » T ■■ i ■ I 1 J B -i j M ^flj W „Hver kláraði jarðarberjamol- ana?” „Ég ætla að finna alla grænu þríhyrningana!" Rétt eins og um pólitíska hags- munabaráttu væri að ræða. Það var því lán í óláni þeg- ar bíll blaðamanns tók upp á þvi að bila í sumar sem leið að það skyldi gerast i Jórvík (York), rétt við höfuðstöðvar Rowntree Mackintosh. Stórt skilti með nafni fyrirtækisins og megn súkkulaðilyktin þyrl- aði upp minningum um þetta nammi sem hefur átt svo sér- kennilegu hlutverki að gegna í þjóðarsál ísendinga. Þar sem ekki var annarra kosta völ en að lengja dvölina í Jórvík um sólarhring lokkaði súkkulaði- lyktin mig á fund þeirra hjá Rowntree Mackintosh til að svala forvitni minni um uþp- runa dósanna vinsælu. HUNDRAÐ ÁRA SÆLGÆTISGERÐ Quality Street er reyndar ekki framleitt í verksmiðjunni í Jór- vík heldur í borg skammt frá sem heitir Halifax. Þar hófst sælgætisgerð hjónanna Johns og Violet Mackintosh fyrir rétt um hundrað árum. Quality Street kom ekki strax til sögunnar því sælgætis- gerðin hófst á karamellufram- leiðslu, svokölluðum „Mackin- tosh's Celebrated Toffee” sem taldar eru elstu nú- tímakaramellurnar. Fyrirtækið óx jafnt og þétt og upp úr aldamótum var opnuð verk- smiðja í Bandaríkjunum. Þegar þau hjónin féllu frá tóku synirnir við en Quality Street var kynnt til sögunnar árið 1936. Nafn þess er dreg- ið af samnefndu leikriti eftir J.M. Barrie, sem meðal annars er höfundur Péturs Pan. Hönnun umbúðanna er grundvölluð á tveimur aðal- persónum leikritsins, Major Quality (Gæði majór) og Miss Sweetly (ungfrú Ljúfleg). Sú markaðssetning hefur verið happadrjúg og umbúðirnar hafa haldist lítið breyttar frá upphafi. Framleiðslan náði strax miklum vinsældum og nú er þetta mest selda sæl- gætið í heiminum. Það er flutt til yfir hundrað landa en í Hali- faxverksmiðjunni eru fram- leiddir yfir tveir milljarðar af Quality Street molum árlega. Árið 1989 sameinaðist Mackintosh alþjóðafyrirtækinu Nestle og nafninu var þá breytt í Rowntree Mackintosh. Viðmælendur mínir eru á einu máli um að íslandsmarkaður- inn hafi verið mjög vænn frá því að innflutningur þar hófst. Sennilega erum við mestu Quality Street molaætur sem sögur fara af miðað við hina frægu höfðatölu. MEÐ GULLFOSSI Árið 1950 fór Gullfoss að sigla til Leith í Skotlandi og áttu þeir (slendingar sem ferðuð- ust með honum kost á að kaupa Quality Street af skosk- um höndlurum. Þannig hófst innflutningur þessara dósa með óeiginlegum hætti. Þegar fríhöfnin var opnuð árið 1958 var í fyrstu ein- göngu verslað með ilmvötn og tóbak en um 1960 var byrjað að selja sælgæti og þá strax prýddi Quality Street hillurnar. Erfitt er að komast yfir inn-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.