Vikan - 20.01.1996, Side 30

Vikan - 20.01.1996, Side 30
TEXTI: ÞORDIS BACHMANN Hér fyrir ofan sjást John, Paul, George og Ringo eins og þeir prýddu umslag plötunnar Beatles for sale áriö 1964. Glæný mynd af Paul, George og Ringo. Hún var tekin er þeir komu saman á ný til hljóö- ritunar á síöasta Þeir byrjuðu sem von- góðir rokklingar sem spiluðu fyrir 500 kall á kvöldi. Ekki leið á löngu þar til þeir hittu á tón sem gerði þá að skurðgoðum. Bítlarnir lögðu til tónlistina fyrir öskrandi, skynörvandi tíð. Þessi sama tónlist breytti þeim úr verkamannabú- staðastrákum frá Penny La- ne í Bentley- og Benzeig- endur. John, Paul, George og Ringo eru einfaldlega stærsta peningamaskína sem sést hefur í tón- listariðnaðinum. Meira en 1,25 millj- arðar hafa selst af plötum þeirra. Mörg hinna 262 laga þeirra hafa verið sungin inn á plötur af öðrum listamönnum og þannig hal- að inn margar milljónir í við- bót. Og endalaus spilun á krám, í klúbbum og á út- varpsstöðvum víðs vegar um heim, hefur halað inn stefgjöld í rúma þrjá áratugi. Ef farið er í gegnum bók- hald helstu fyrirtækja fjór- menninganna, Apple Corps og MacLen, kemur í Ijós að þeir hafa rakað inn um 175 milljónum punda og pundið er jú á um 100 krónur ís- lenskar. . . VELDI Þeir voru búnir að vinna sér inn 5 milljónir punda árið 1970, þegar venjuleg þriggja herbergja íbúð kost- aði 5.000 pund. Og nú, 26 árum eftir að hljómsveitin sló síðasta tón Let It Be á þakinu á Apple- húsinu, er peningamaskínan komin í gang aftur. Fjársjóðir fjórmenninganna munu nú bólgna um 350 milljónir punda af nýrri Bítlaæðis- bylgju. Sjónvarpsþættirnir Antho- logy, sem tók fjögur ár að gera, hafa verið seldir til 100 landa. í Bretlandi greiddi London Weekend sjónvarps- stöðin Apple 5 milljónir punda fyrir sýningarréttinn. Rúmlega fjórtán milljónir manna horfðu á fyrsta þátt- inn, svo útlit er fyrir að fjár- festingin skili sér. Bandaríkjunum var haldið uppboð á sýningarréttinum sem skilaði ABC hnossinu og Bítlunum 13 milljónum punda. Sérfræðingar reikna með að sala sjónvarpsþáttanna gæti skilað 150 milljónum punda. Hinn fyrsti þriggja nýrra, tvöfaldra geisladiska er hátt á vinsældalistum. Seljist hann í 30 miiljónum ein- taka um allan heim skil- ar það Bítlunum 120 milljónum punda. Þetta gæti verið allt of lág tala þegar tekið er mið af því að EMl sendi 5.5 milljónir eintaka til smá- sala fyrsta daginn. „Nýja“ efnið á diskunum gæti einnig bætt 50 milljónum punda í stefgjöldum í kassann á næstu árum. Einnig eru APPLE CORPS HVER A HVAÐ? Þeir Paul, George og erf- ingjar John’s eiga hver um sig 94,5 milljónir punda í Apple Corps. Hlutur Ring- ós er hinsvegar nokkru minni eða 75,6 milljónir punda og 18,9 milljónir eru í eigu Wigeon. væntanleg á markaðinn Bítlaúr, bindi, pennar, póst- kort og, vitanlega, Bítlabolir. Þessi vara ætti að geta bætt öðrum 25 milljónum í kass- ann. Þótt þetta séu getspár er eitt öruggt - Bítlarnir eru komnir til baka og farnir að sópa saman milljónunum á ný. Starfsfólk Apple er eftir- væntingarfullt en hjá Apple er á margan hátt verið að bæta sér upp liðna tíð.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.