Vikan - 07.09.1999, Blaðsíða 35
Umsjón:
Marentza Poulsen
Ljósmyndir:
Gunnar
Gunnarsson
Tómatbaka
(fyrir fjóra)
1 pakki frosið smjördeig
Fylling:
500 g þroskaðir tómatar
150 - 200 g beikon
150 g sveppir
2 msk. rjómi
karrí
chílepipar
salt
3 egg
2 dl sýrður rjómi 18%
1 dl rifinn ostur
2 msk. ferskt basilíkum, saxað
Aðferð: Látið smjördeigið
þiðna, fletjið það út og klæðið
með því vel smurt tertumót.
Pikkið deigið með gaffli. Skerið
beikonið í bita og steikið aðeins
á pönnu. Bætið sveppunum
saman við og steikið aðeins áfram. Hellið 2
msk. af rjóma út á. Látið krauma aðeins.
Bragðbætið með karrí, chílepipar og salti eftir
smekk. Hellið því svo yfir smjördeigsbotninn
og raðið niðursneiddum tómötunum ofan á.
Léttþeytið saman eggjum og sýrðum rjóma.
Bætið rifna ostinum og söxuðu basilíkum saman
við. Þessu er síðan hellt yfir tómatana. Bakið
við 200 - 225°C í 30 - 40 mínútur eða þar til bak-
an er bökuð.
SULTAÐIR TÓMATAR
500 g kokkteiltómatar
3 hvítlauksrif
1 lime ávöxtur
1 kvistur rósmarín
4 dl hvítvínsedik
1 msk. sinnepsfræ
2 lárviðarlauf
4 msk. sykur
2 tsk. salt
Aðferð: Pikkið tómatana með grófri nál eða
gaffli. Setjið tómatana og hvítlauksrifin í
krukku. Skerið lime í
sneiðar og leggið inn á
milli tómatanna, ásamt
rósmarínkvistinum. Setj-
ið vínedikið, sinnepsfræ-
in, lárviðarlaufin, sykur-
inn og saltið í pott og lát-
ið suðuna koma upp.
Kælið löginn aðeins áður
en honum er hellt yfir tómatana. Geymist í sól-
arhring í kæli fyrir notkun. Þetta er sérstaklega
gott meðlæti með steiktu og grilluðu kjöti.
Spænsk, köld tómatsúpa
(fyrir fjóra)
500 - 600 g þroskaðir tómatar
1 agúrka
1 rauð paprika
2 msk. þurrt sérrí
salt og pipar
Til skrauts:
saxaður vorlaukur, agúrka og paprika
Aðferð: Tómatarnir eru skornir í fernt. Af-
hýðið agúrkuna og skerið í bita. Hreinsið
paprikuna og skerið hana niður. Þetta er allt
sett í matvinnsluvél, ekki maukað heldur gróf-
hakkað. Ef súpan verður of þykk má þynna
hana með ísköldu vatni. Hún er bragðbætt með
sérrí, salti og pipar eftir smekk. Söxuðum vor-
lauk, agúrku og papriku er dreift yfir hvern
súpudisk rétt áður en súpan er borin fram.
Þetta er frískandi
réttur á heitum sum-
ardegi eða bara
hvenær sem er og
auðveldur í fram-
kvæmd. Auðvitað
berurn við fram góð
brauð með súpunni,
gjarnan heit.
Vikan 35