Vikan - 21.09.1999, Qupperneq 24
Texti: Hrund Hauksdóttir
w , J ;
M -aBMJWffiaiKtw*.. 1
,V'V
? mfii ..ik4 1ii: x Cv
MIBBift I fHH ■ jHHHHH HHHB HHHB
H HIHH HHH
Hinn þekkti
tískuhönn-
uður Karl
Lagerfeld
vill meina að
konur séu ekki fullklæddar
fyrr en þær séu búnar að
setja á sig ilmvatn og er víst
óhætt að segja að ilmvötn
setji punktinn yfir i-ið. Þau
eru líka þeim kostum gædd
að geta vakið upp margvís-
legar tilfinningar og hafa
áhrif á lundarfar okkar. Ný-
legar rannsóknir hafa
einmitt sýnt fram á að svo
Isé. Sá hluti heilans
sem nemur lykt er
sá sami sem fæst við
tilfinningar og
minni.
Margir kannast
við þá tilfinningu að
ákveðin ilm-
vatnstegund vekur
upp gamlar minn-
ingar sem oft á tíð-
um tengjast róman-
tík eða jafnvel
ákveðnum einstak-
lingi sem notaði
alltaf þennan ilm.
Ilmvötn hafa þann
eiginleika að geta
skapað mismunandi
stemmningu og fer
það m.a. eftir sam-
setningu efna í ilm-
vatninu sjálfu en
ekki hvað síst fer það eftir
því hvort ilmvatnið hæfi við-
komandi. Sumir telja að
konur eigi að velja sér
ilmvatnstegund með til-
liti til húðgerðar eða
háralits. Enn aðrir eru
þeirrar skoðunar að það
eigi að ganga út frá per-
sónuleika konunn-
ar þegar ilmvatn er
valið og þá er
gjarnan talað um
þung ilmvötn fyrir
sterkar, skapmiklar
konur en léttari ilm fyrir
þær rólegri og mildari. Það
eru hins vegar engar ósveigj-
anlegar reglur í þessum efn-
um og þú skalt vera óhrædd
við að nota það ilmvatn sem
þú ert sjálf ánægðust með.
10 ráð til þess að fá
sem mest ut úr ilm-
vatninu þínu
1. Þú skalt aldrei kaupa þér
ilmvatn á þeim forsend-
um að það fari vinkonu
þinni svo vel. Það er
margt sem hefur áhrif á
hvernig ilmurinn af
ákveðnu ilmvatni verður
á hverri konu. Þættir
eins og gen okkar, mat-
urinn sem við borðum
og hvernig við svitnum
hafa allir áhrif á hvernig
ilmurinn
þróast.
2. Ef þú kýst
daufan ilm,
þá skaltu
sleppa
ilmvötnum
en nota
frekar húð-
mjólk eða
baðpúður.
3. Þú ættir
ekki að úða
ilmvatni á
fötin þín , ________
því lyktin -
af efninu
(eða jafnvel þvottaefni)
blandast þá ilm-
vatninu og breytir
ilminum.
4. Ef þú notar
húðmjólk með ilm-
vatninu þínu, þá
skaltu alltaf bera
það á lík-
amann áður
en þú setur
á þig ilm-
vatn. Ef húð
þín er of
24 Vikan
þurr, þá gufar ilmvatnið
hraðar upp.
5. Ef þú vilt tryggja að ilm-
vatn endist lengi,
þá skaltu nota eau
de toilette eða
húðmjólk sem
grunn fyrir ilm-
vatnið þitt. Þegar
þú ert búin að
baða þig eða fara
í sturtu, skaltu
úða ilmvatninu
léttilega á þig. Til
að fullkomna
verkið skaltu
bæta svolitlu
af sama ilmi
—á púlsinn.
6. Settu örlítið af
ilmvatni inn í lófa
þína. Með því móti
skilur þú eftir ör-
litla angan í hvert
sinn sem þú snertir
húð þína með
höndunum.
7. Hafðu hugfast að
flest ilmvötn dofna
eftir því sem líður
á daginn og það er
ágætisregla að
bæta smávegis við
á 4-5 klukku-
/
8
stunda fresti.
Bættu ilmandi slök-
unarolíum út í baðvatn-
ið. Það skapar vellíðan
og skilur eftir sig daufa,
seiðandi angan.
9. Hafðu ilmkerti á heim-
ili þínu og í vinnunni.
Þau hafa góð áhrif og
birtan af þeim er líka
falleg. Ilmurinn sem af
þeim kemur skapar þá
stemmningu sem þér
hentar hverju sinni.
Prófaðu þig áfram með
mismunandi ilmkertum.
10. Þú getur búið til þitt
eigið ilmvatn með því að
blanda saman ilmolíum.
I lyfjaverslunum fást
handhægar plastflöskur í
nokkrum stærðum til
þess að nota undir þitt
persónulega ilmvatn. Þú
getur síðan notað ilmolí-
una þína út í baðvatnið
eða borið hana á húð
þína. Verslanir eins og
Body Shop og Aveda
(báðar í Kringlunni)
selja marg-
víslegar
ilmolíur.
\
CK