Vikan - 21.09.1999, Qupperneq 26
Texti: Steingerður Steinarsdóttir
inu þínu yfir skemmtilega hluti til að gera þegar því leiðist.
Hengdu listann upp á góðum stað og bentu barninu á hann
þegar eirðarleysið grípur það. Meðal þess sem gaman er að
setja á slíka lista er; fjársjóðsleit, þá er barnið beðið að leita
að einhverjum hlut, inn á heimilinu, sem kalla má fjársjóð
vegna þess að einhver góð minning er tengd honum. Barnið
getur sagt þér frá því sem það man í tengslum við hlutinn.
Það getur líka valið eitthvað sem það veit að tengist þínum
minningum og beðið þig að segja frá atburðum sem tengjast
hlutnum. Brúðkaupsmyndin af ykkur foreldrunum gefur til-
efni til að rifja upp minningar um brúðkaupið o.s.frv. Ann-
að á listanum getur verið að mála, föndra, púsla, skrifa sögu
eða spila.
Gefðu barninu gullakassa sem er notaður undir alls kyns
hluti. I gullakassann er gaman að safna einhverju sem nýtist
vel sem leikföng. Skeljar, tölur, skrýtnar flöskur og annað
sem barnið finnur á förnum vegi er kjörið að halda til haga.
Ef þetta er ekki tekið fram nema á sérstökum
stundum verður það algjört ævintýri fyrir barnið
að fá að leika sér að þessum sjaldséðu gimstein-
um. Auk þess örvar það ímyndunarafl þess og
að finna leiðir til að leika sér með þessa hluti.
Hvettu barnið til að safna einhverju. Söfn frí-
merkja, eldspýtustokka, póstkorta eða servíétta
geta verið börnum endalaus uppspretta ánægju.
Þau vekja einnig oft metnað barnanna til að gera
vel og geta kennt þeim að fara vel með hluti.
Hjálpaðu barninu að safna í minningarsjóð
með því að halda til haga myndum, aðgöngu-
miðum og fleiru sem tengist ferðum sem það fer
í eða öðrum uppákomum í lífi þess. Þegar leiði
grípur barnið er góður tími til að taka þessa hluti
fram og búa til minningarbók. Ferð á safn, sum-
arleyfisferðalag, heimsókn til afa og ömmu eða í
húsdýragarðinn getur allt lagt grunn í slíkri bók.
Margir foreldrar halda til haga slíkum minn-
ingarbókum um uppvöxt barna sinna. Þegar
barninu leiðist er ágætt að lána því bókina og leyfa því að
skoða. Þá vakna ótal spurningar og tilefni gefst til að ræða
ýmislegt sem áður hefur legið í láginni. Flest börn elska að
vera þannig í aðalhlutverki og þau þreytast seint á að heyra
sögur af sjálfum sér.
rtu orðin þreytt á að
heyra börnin þín
kvarta undan að þeim
leiðist? Kannastu við
hvernig þau reika
stundum um heimilið
eirðarlaus og pirruð og
vita ekkert hvað þau
eiga af sér að gera?
Oftar en ekki enda
börn í dag fyrir framan
sjónvarpið þegar
þannig er komið fyrir
þeim, en það er óæskileg afþreying einmitt undir þessum
kringumstæðum. Sjónvarpið er skammtímalausn og barn
sem venst því að aðrir skemmti því og finni því eitthvað að
gera verður síður sjálfu sér nægt. Hæfileikinn til að líða vel
með sjálfum sér og finna upp afþreyingu er eins og margt
annað eitthvað sem lærist. Foreldrar geta hjálpað með því
að ýta undir eigið frumkvæði barnsins og hvatt það til að
finna sjálft upp á einhverju til að losna við leiðindin.
Einhvern tíma í góðu tómi ættirðu að gera lista með barn-
26 Vikan