Vikan - 21.09.1999, Blaðsíða 33
Rúmfatnaður sem Paloma hannaði fyrir svissncska vefnaðar-
fyrirtækið KBC. Rautt er hennar uppáhaldslitur og kemur
fram víða í hönnun hennar.
„Mon Parfum“ er heiti á ilmvatni hennar. Hér fer saman sér-
stakur ilmur og framúrskarandi hönnun á umbúðum. VÍkclIl 33
góður ilmur og sérlega falleg
hönnun umbúða. í kjölfarið
kom á markað rauði varalit-
urinn -Paloma rauður- sem
er svo einkennandi fyrir
hana. Milljónir kvenna um
allan heim tóku þessum
hreina rauða lit fegins
hendi. Síðustu ár hefur Pal-
oma hannað ýmsa glæsihluti
fyrir ýmis fyrirtæki. Meðal
annars rúmfatnað fyrir KBC
og kristall, postulín og leir-
tau fyrir Villeroy & Boch.
Nýjasta hönnun undir
merkjum Palomu er nýr ilm-
ur og skartgripir.
Öll hönnun Palomu
Picasso ber sterk einkenni
hvort sem það er saltstaukur
eða silkiklútur. Línur eru
ákveðnar og dregnar sterk-
um dráttum. „Annað hvort
líkar fólki við mig eður ei.
Það sama er að segja um
hönnun mína,“ segir hún.
Svarta hárið, hvíta húðin og
rauðu varirnar eru ennþá
einkennandi en hefur þó
ekki eins mikið vægi og
áður. Hönnunin sjálf hefur
skapað henni nafn.
skapa list
heldur reyni
að gæða okkar daglega líf
meiri fegurð."
Að námi loknu starfaði
hún um tíma sem aðstoðar-
maður sviðsstjóra í leikhúsi í
París. Það var svo árið 1970
að franski tískukóngurinn
Yves Saint Laurent bað Pal-
omu að hanna skartgripi fyr-
ir tískuhús sitt. Paloma var
aðeins tvítug þegar hún fékk
þetta gullna tækifæri. Þessi
hönnun kom þó ekki fram í
hennar nafni heldur í nafni
tískuhússins. Hún þurfti að
bíða í tíu ár eftir heimsat-
hygli. Þessi ár notaði hún til
að undirbúa jarðveginn.
Á framabraut
Paloma Picasso varð
heimsþekktur skartgripa-
hönnuður árið 1980 þegar
hún gerði einkasamning við
fyrirtækið Tiffany’s. Stórir
og áberandi gullskartgripir,
með og án steina, náðu sam-
stundis hylli kaupenda.
Fjórum árum síðar kom á
markað fyrsta af þremur
ilmvötnum í hennar nafni.
Þar fór saman einstaklega
mala. Merk og storgerö torm; svartur litur
með þykkri gylltri skreytingu.
Móðir Palomu var franski
listmálarinn Francoise Gilot
en samband foreldranna var
stormasamt. Þegar Paloma
var fjögurra ára gömul
yfirgaf Francoise
barnsföður sinn, hélt
til Parísar og tók Pal-
omu með sér. Framan
af naut hún reglulegra
samvista við föðurinn
í skólaleyfum. Þegar
hún var ellefu ára sleit
hann öllu sambandi
við þær mægður þegar
móðir hennar gaf út endur-
minningar sínar um árin sín
með Picasso. Samkvæmt
þeim var Picasso vissulega
snillingur en að öðru leyti
ómögulegur maður.
Paloma Picasso ólst því
upp í heimi lista og menn-
ingar. „List var ósköp venju-
legt fyrirbæri, hluti af okkar
daglega lífi,“ sagði hún síðar
um bernsku sína. Af föður
sínum lærði hún veigamikla
lexíu sem hann var þekktur
af: Skapaðu þinn eigin stíl!
Uppgötvuð af YSL
Paloma átti erfitt upp-
dráttar í byrjun síns ferils
þar sem nafn Pablos Picasso
var henni vissulega fjötur
um fót. Smátt og smátt tókst
henni að koma fram sem
heilsteyptur og ákveðinn
listamaður en ekki afsprengi
snillings. Einkunnarorð
hennnar eru: „Ég er ekki að