Framtíðin - 15.04.1923, Side 3
sama sem engin, kýr engar og fátt
sauðfé.
Mér leist svo á, að eyjarskeggj-
um mundi reynast langir vetrár
þarna úti í regin hafi, og erfitt að
ná til lands, ef á þyrfti að halda,
þar sem ekki var um annan farkost
að ræða, en opna báta. En hitt sá
eg líka, að margt mátti til bjargar
verða þar í eynni, svo enginn þurfti
að svelta, og gjafmildur var Ægir
þau tvö sumur sem eg var að fiski-
veiðum fram við Grímsey.
Svo liðu árin; eg gleymdi Gríms-
ey; gleymdi því, að þarna úti í hafi
væri forðabú fyrir fjölda manns —
»þar má ala heilan her«, sagði Ein-
ar Þveræingur. Reynslan mun sýna
að slíkt var eigi ofsagt. Hvers
virði Grímsey er, mun best sýna sig
þegar Grímseyingar fá þá sann-
girniskröfu uppfylta, að fá gott
símasambaud við meginlandið,
greiðar skipaferðir, og viðunandi
verslunarviðskifti. Það er þetta þrent
sem þá mest vantar.
Síðastliðið sumar kom eg út í
Grímsey; og sýndist mér þá eyjan
alt önnur en fyrir 30 árum síðan.
Grímseyingar standa nú mikið bet-
ur að vígi, til þess að mæta Vetri
og fylgifiskum hans — hríðum og
harðviðri, ís og ósjó. — Nú eru
húsakynni alt önnur og betri, stór
tún blasa við þegar á höfnina er
komið. Nú hafa eyjarbúar 14 kýr
og margt sauðfé, og hafa þeir nægi-
Iega mjólk, sem er eitt aðalskilyrð-
ið fyrir vellíðan þeirra. F*egar eg
kom út í eyna nú í vetur, þá leist
mér svo á, að þar væri engin þröng
í búi. Eg hafði ekki búist við að
hitta þarna úti jafn myndarlega og
hugsandi menn, eins og reyndin
varð á.
Pað er sannarlega kominn tími
til þess, að Grímseyingum sé gef-
inn kostur á betri samgöngum við
meginlandið en verið hefir, og gefa
þeim tækifæri til þess að sæta betri
verslunarviðskiftum en verið hefir.
í Siglufirði er skipakostur nægileg-
ur, höfnin oftast íslaus, og áhættu-
laust að halda uppi ferðum milii
lands og eyjar, þegar símasamband
er fengið. Greiðar samgöngur við
land, hljóta að verða báðum máls-
FRAJVtjfÐjN
aðilum til hagnaðar, og þá einkum
eyjarbúum. Það mundi auka áhuga
þeirra á að framleiða sem mest,
því eg lít svo á að jafn fámennur
‘flokkur og eyjarbúar eru —- um
100 manns — geti ekki notað til
fulls gæði eyjarinnar.
Vinna við eggjatöku og fuglaveiði
í bjarginu er afar erfið, og útheimt-
ár margt fólk. Fuglveiðin er líka á
þeim tíma árs, þegarönnur aðalstörf-
in kalla að, einkum heyskapurinn.
Illkleyft fyrir jafn fáa menn, að sinna
hvoítveggju svo vel sé.
Fiskimiðin kringum Grímsey virð-
ast líka ótæmandi, og þar gætn
margir haft atvinnu.
Vonandi keniur loftskeyta stöð í
Grímsey á þessu ári, og hún mun
verða til ómetanlegs gagns fyrir
eyjabúa sjálfa og þá ekki síður fyrir
fiskiflotann norðanlands.
F.
Erl. símfréttir.
Svarti dauði.
Svarti dauði geysar á Indlandi,
deyja 8 þús. manns úr honum á
hverri viku.
Stjórnin í Svíþjóð fallin.
Brantingssíjórnin í Sviþjóð farin
frá völdum. Þingið feldi frumvarp
stjórnarinnar um styrk til atvinnu-
lausra, og sagði hún þá strax af
sér. Búist var við að frjálslyndi
fiokkurinn myndaði nýja stjórn með
tilstyrk jafnaðarmanna, en það tókst
ekki, og er haldið að íhaldsflokk-
urinn taki við stjórnartaumunum.
Prestar líflátnir.
Ráðstjórnin í Moskva hefur látið
lífláta kaþólska presta, og dæmt
marga yfirmenn kirkjunnar í æfi-
langt fangelsi fyrir mótspyrnu gegn
stjórninni. Kirkjuhöfðingjar í Ev-
rópu hafa sent kröftug mótmæli.
Skotskir og þýskir fiskimenn.
Óeirðir í Aberdeen á Skotlandi
milli skotskra og þýskra fiskimanna.
3 þús. skotskir fiskimenn hafa gert
verkfall til að mótmæla fsfisksölu
Þjóðverja f Aberdeen.
10
Trotzki veikur.
Trotzki liggur veikur. Segja lækn-
arnir að hann hafi krabbamein í
maganum.
Verkbann.
Vinnuveitendur í öllum bygging-
argreinum á Englandi hafa gert
verkbann, og eru 500 þús. manns
atvinnulausir.
Irskir uppreisnarmenn.
Stjórnin í Dublin tilkynnir, að
hún hafi handsamað í alt 10 þús.
írska uppreistarmenn, en þó sé
ennþá 2500 undir meikjum de Valera.
Sorgarathöfn í Pýskalandi.
Verkamennirnir er mistu lífið í
óeirðunum í Essen í fyrri viku,
voru jarðsettir á þriðjudaginn. Fór
þá fram sorgarathöfn um alt Þýska-
land.
Loftferðir.
Nýbyrjað er á daglegum loftferð-
um milli Manchester — London —
Hamborg — Berlín.
Hugo Stinnes.
H. Stinnes, auðkýfingurinn þýski
fór inn í Ruhrhéraðið þrátt fyrir
bann frönsku stjórnarinnar. Var
hann tekinn fastur og settur í fang-
elsi, en þó slept aftur daginn eftir
gegn loforðum um, að hann færi
strax burtu úr Ruhr, sem hann og
gerði.
Innl. símfréttir:
Kristinn Benjamínsson kyndari á
Borg var myrtur í Barcelona á Spáni.
Pétur Ólafsson konsull, sem
ferðast hefur um Suður Ameríku til
að ransaka saltfiskmarkað, hefur sent
Alþingi skyrslur sínar. Telur hann
markaðshorfur fremur slæmar.
Dágóður afli á togarana.
Siglufjörður.
»Goðafoss« kom hingaó á mánu-
daginn. Farþegar voru fáir. Með
skipinu var Friðjón Jensson læknir.
Hefur hann dvalið í útlöndum í 3
mánuði til að kynna sér nýjustu