Framtíðin - 22.09.1923, Side 1
FRAMTIÐIN
Ritstjóri: Hinrik Thorarensen.
I. ár.
Ný
rafmagnsstöð.
Mjer liefur borist til eyrna að
komið hafi til orða að reist yrði
mótorstöð á Siglufirði til fram-
leiðslu raforku í viðbót við Hvann-
eyrarárstöðina, og vildi jeg af því
mjer er þetta mál vel kunnugt, fara
nokkrum orðum um þetta í sam-
bandi við fyrirhugaða útbyggingu
nýrrar vatnsaflsstöðvar vió Selá.
Þegar um slíkt mál er að ræða
sem íramleiðslu raforku til bæja,
þar sem búið er í haginn fyrir
baejai fjelagið fyrir marga tugi ára
fram i tímann, ber skyldu til þess
að athuga vandlega alla málavexti
áður en til framkvæmda kemur.
Hver sá maður er ákvarðanir á að
taka um slík mál, verður þegar í
stað að leggja fyrir sig tvær mjög
einfaldar en engu að síður algjör-
lega ákvarðandi spurningar, nefnil.
1. Hver er sú virkjun sem fjár-
hagslega gefur bæjarfjelaginu
þann varanlega besta árangur?
2. Er sú virkjun framkvæmanleg
þannig að bæjarfjelagið geti
risið undir, þeim kostnaði sem
óhjákvæmilegur er fyrstu árin?
Hin fyrri þessara spurninga felur
auðvitað einnig í sjer þá hlið
málsin.s, hver virkjun sje sú, sem
með nútímans verklegri þekkingu
tryggi hagkvæmasta rekstur og
sem minsta fyrning á vjelum.
hegar litið er á hver sje sú virkj-
un sem gefi bes.tar vonir um var,-
anlegan hagnað fyrir bæjaifjelag
Siglufjarðar, þá virðist mjer, með
þeim kunnugleik sem jeg hefi tii
málanna, að ekki geti leikið neinn
vafi á því að vatnsaflsstöð við Selá
sje s j á 1 f s a g ð a lausnin a því
máli. Pað er því miður ekkj tæki-
færi hjer til að fara svo nákvæm-
■ega út í það mál sem þörf og
nauðsyn ber til, og verð jeg því
að láta mjer nægja að setja hjer
fram nokkrar af þeim þýðingar-
mestu ástæðum sem styðja þá
skoðun mína.
Við vatnsaflsstöð á Siglufirði er
sjerstaklega að athuga:
1. Aflgjafinn (vatnsaflið) kostar
ekkert,
2. Fyrning á vjelum er hverf-
andi ef pössunin er góð.
3. Eftir þeim mælingum sem
hingað til hafa verið gerðar,
má fyllilega gera ráð fyrir að
úr Selá megi fá 100 hesta
orku þegar hún er með
minsta móti á vetrum, en á
sumrum og haustum tvisvar
sinnum meira.
4. A Siglufirði liagar alveg sjer-
staklega til hvað snertir afnot
aflsins. í öðrum kaupstöðum
landsins verður að ganga út
frá minni afnotum orkunnar
á sumrum en á vetrum. Hjá
Siglfirðingum hagar svo til að
framtíð bæjarfjelagsins er að
mjög verulegu leyti undir
því komin að næg og
ódýr orka sje á boð
s t ó 1 u m á s u m r i n, og
Siglufirði 22. sept. 1923
24. blað
mKSm
Halló! — Á mánudaginn sel jeg
Haframjöl 32 kr. pokann
gegn borgun um leið.
Aðeins þennan eina dag!
Notið tækifærið!
Friðb. Níelsson.
það er einmitt sá tími sem
nægilegt vatnsmagn er f Selá.
Við mótorstöð á Siglufirði keni-
ur sjerstaklega til athugunar:
1. Aflvakann (olíuna) verður að
kaupa árlega dýru verði frá
útlöndum. Par af leiðir að
rafstraumurinn yrði að vera
svo dýr, að aðeins gæti kom-
ið til greina að nota hann til
Ijósa, — sem þó yrðu dýr,
— og alls ekki til neins ann-
ars. Selárstöðin mundi aftur
á'móti geta framleitt talsvert
afl til suðu t'yrir utan nægi-
legt afl til ljósa.
2. Eftir fenginni reynslu verður
að gera ráð fyrir að olíumót-
or með svo mikilli notkun
sem hjer er um að ræða, sje
að mestu leyti ónýtur eftir
7—8 ára brúkun.
3. Vegna stráumverðsins og tak-
mörkun aflsins gæti ekki
komið til mála að nota afl
frá mótorstöðinni til iðju nema
i mjög smáum stíl.
Jeg vil hjer nota tækiíærið til að
benda á enn einn kostnaðarlið sem
mótorstöð hefur í för með sjer, og
það er rafgeymir. Rafgeymir er
naðsynlegur í sambandi vió mótor-
stöð, til þess að mótorinn ekki
þurfi að vera í gangi þegar notk-
unin er litil, og við það sparast
talsvert af olíu. En hann er dýr og
fyrnist tiltölulega fljótt. í teksturs-
kosnaði er venjulega geit ráð fyr-
ir að árleg fyrning rafgeymara sje
10-15%.
Hvað nú snertir þá spurning
hvor af þessum báðum virkjunum
sje framkvæmanlegri fyrir bæjarfje-
lagið þegar litið er á þann kostnað
sem er óhjákvæmilegur fyrstu árin,
þá vil jeg láta þess getið að jeg
hefi atluigað þetta mál nokkuð ná-
kvæmar, og er það álit mitt, að ár-
legur reksturskosnaður* við 100
hestafla stöð við Selá mundi ekki
fara fram úr árlegum reksturkosn-
aði við mótorstöð sem aðeins
nægði til Ijósa.
Vegna erfiðleika við að fá pen-
ingalán er viðbúið að ekki yrði
hægt t. d. á komandi vori að
byggja stærri stöð við Selá en 100
hfestöfI, samsvarandi minsta venju-
legu vatnsrensli á vetrum; en hæg-
lega mætti þegar í fyrstu gera ráð
fyrir annari vjelasamstæðu jafnstórri
bæði hvað snertir stærð vjelahúss-
ins, gildleika vatnspípunnar í fjalls-
hlíðinni og gildleika koparþráðanna
niður i kaupstaðinn. Regar svo
væri búið um í fyrstu, mætti með
tiltölulega mjög litlum kostnaði
stækka stöðina upp í 200 hestöfl,
og selja straum til iðnaðar á
sumrin.
Af ofangreindum ástæðum finst
mjer alls ekki rjett að ráðast út í
byggingu mótorstöðvar með frekar
vaxandi en minkandi árlegum
reksturskostnaði, áður en ransakað
er til hlýtar hvort* Selárstöðin ekki
fullnægi betur þeim skilyrðum
bæði fjárhagslegum og öðrum sem
*) í árlegum reksturskostnaði felst:rent-
ur og afborgiin, laun stöðvarstjóra, olíu-
eiðsla, fyrning o. s. frv.
Siglfirðingum eru haganlegust.
Bæjarstjórn Sigluíjarðar hefur ákveð-
ið og gert ráðstafanir til að mæla
vatnsmagn Selár á komandi vetri
nákvæmar en áður hefur verið gert,
og virðist einnig þess vegna rjett-
ara að bíða með byggingu mótor-
stöðvarinnar þatigað til útkoma
þeirra mælinga liggur fyrir.
Að lokum vil jeg hvetja Sigl-
firðinga til að leggjast á eitt og
reyna að koma sjer upp hæfilegri
vatnsaflsstöð, því með öðru móti
fá þeir aldrei nóg og ódýrt
r a f m a g n
Akureyri 2. Sept. 1923
Ásgeir Bjarnason.
Erl. símfrjettir.
Stór bruni.
Stór bruni í borginni Berkley í
Kaliforniu, 600 hús brunnu, tjónið
metið 9 miljón dollara,
Óeirðir á Pýskalandi.
Kommunistaóeirðir miklar í Bad-
en á Þýskalandi, hefur lögreglan víða
farið halloka og orðið að kalla sjer
herlið til hjálpar.
Grikkir og ítalir.
Líldegt er að sættir komist á
milli Orikkja og ítala.
Uppreisn á Spáni.
Uppreisn á Spáni, hjeraðið
Catalonía er á valdi uppieisnar-
manna, og hafa þeir myndað bráða-
birgðastjórn í Barcelona, hefur
hún tilkynt að konunginum og
stjórninni \ Madiid sje vikið íra
völdum. Oánægjan með stjórnina
í Madrid fer stöóugt vaxandi vegna
ófara Spánverja í Marokko, og er
uppreisnin bein afleiðing af því.
Alt landió er í hernaðarastandi. —
Frá London er símað, að bylt-
ingarmenn hafi sigraó á Spani,
stjórn Ahlucena gieifa hefur beðist
lausnar. Primo de Reviera yíiikap-
teinn hefur myndað einræðisstjórti
fyrir hernaðarsinna, og vetður ekk-
ert þingræði fyrst um sinn. Kon-
ungur heldur völdum.
Kommunistar í Bú/garíu.
Nýja stjórnin í Búlgaríu er að
uppræta kommunista hreyfinguna
þar í landi, hefur hún látið hand-
sama 400 foringja hennar og eru
þeir sakaðir fyrir landráð, fyrirætl-
un þeirra var að gera byltingu með
hjálp Rússa.
Hjermeð tilkynnist
þeim, sem ennþá skulda frá
uppboði „Verslunin Hamborg“
að verði skuldirnar ekki greidd-
ar innan viku, verða þær af-
hentar til iögtaks.
Siglufirði 22. sept. 1923
Sig. Kristjánsson.
Kartöflur
eru ódýrastar í
„Hamborg.“
Karlm.fatnaður
á 35 kr. settið, selur
Ásgeir Pjetursson.
Vetrarfrakkar
kosta aðeins kr. 30.00 hjá
Ásgeir Pjeturssyni.
Pýska markið.
Pýska markið hefur aldrei staðið
eins lágt og nú, fyrir eitt sterlings-
pund fæst einn miljarð marka. —
Ríkisbankinn þýski hefur hækkað
forvexti upp í 30%. Pýska stjórnin
lieíur ákveoið að koma á fót banka
sem gefi út gulltrygða seðla, og
hygst með því að hefja gengio.
A Iþjó ða bandalagið.
írland hefur fengið inngöngu í
Alþjóðabandalagið. Bandaríkin hafa
endurtekið neitun sfna um inn-
göngu í það, og bera nú fyrir sig
framkomu Mussolini gegn Grikkj-
um.
Innl. símfrjettir:
Tveir listar eru komnir fram í
Reykjavík. Morgunblaðslisti með
þá Jón Porláksson, Jakab Möller,
Magnús Jónsson, Olaf Thors og
Jafnaðarmannalisti með þá Jón Bald-
vinsson, Hjeðinn Valdimarsson,
Hailbjörn Halldórsson og Magnús
V. Jóhannesson.
Eins og sjá má af auglýsingu í blaðinu
í dag, hafa nokkrir alþingiskjósendur hjer
í bænum boðað til almenns landsm~ála-
fundar, næsta mánudag kl. sjö og hálf
síðdegis. Einn af alþingisframbjóðendum
sýslunnar, Stefánjóh. Stefánsson cand. jur-
is sem staddur er nú lijer í bænum, verð-
ur frummælandi, en allir eru velkomnir á
fundinn, og má því búast við fiölmenni.