Vörður - 04.01.1926, Side 6
4
y Ö K Ð U B
bannfæringarinnar, sem verða
að engu fyrir það. Röddin er
ekki góð og klaufalega beitt
á stundum.
Sjera Porgeir leikur Tómas
Hallgrímsson. Það er vandasamt
hlutverk, og Tómasi tekst ekki
að ráða viö það. Hann leikur
ekki oft og tíðum. Þó er leikur
hans ekki litlaus. Tilþrif
eru í leik hans í Berghyl og
undir bannfæringunni, þó hann
gleymi sjer þá stundum. Hann
nýtur sin betur sem hermaður
en prestur.
Haraldur Sigurðsson er held-
ur ekki í rjettu hlutverki, enda
er leikur hans tilþrifalaus.
Jeg veit ekki hver leikur Sera-
piel, en gerfið er vont og rödd-
in ómöguleg. Ekkert annarlegt.
Pó ýmsu sje ábótavant við
leiksýningu þessa, fara menn
ekki erindisleysu í leikhúsið.
Ýmislegt tekst þar vel, og
mun verða mönnum minnis-
stætt. Mætti þar nefna sjón-
hverfingaleikinn í kirkjunni, sem
oft tekst prýðilega, og er mjög
áhrifamikill, og eins, þá er kirkj-
an sekkur. En ekki munu dans-
arnir og Kaldalónslögin eiga
minstan þátt í því, að menn
fara úr leikhúsinu i góðu skapi.
Dansarnir eru áhrifamiklir, og
í fullu samræmi við umhverfið.
Ætti höfundur þeirra, frú Guð-
rún Indriðadóttir, að takast á
hendur endurreisn þjóðdans-
anna fslensku.
Lög Kaldalóns við Ave Maria
og kirkjugarðsdansinn eru bæði
stórkostlega áhrifamikil, og for-
leikurinn eftir Emil Thoroddsen
flytur áheyrendurna strax inn í
umhverfi leiksins.
1930 á Þjóðleikhúsið að vera
bygt. Pá verður Dansinn í
Hruna að sjálfsögðu leikinn í
virðingarskyni við höf. hans
fyrir hans mikla starf i þágu
isl. leiklistar. Það mun þá sýna
sig, að í því eru margar sýn-
ingar, er taka fram flestu þvi
er hér hefir sjest á Ieiksviði.
Andrjes G. Pormar.
Doktorskjör.
Heimspekisdeild Háskólans
kjöri á fundi 19. f. m. Hannes
þjóðskjalavörð Porsteinsson heið-
ursdoktor. Á Þorláksmessu sóttu
kennarar heimspekisdeildar þjóð-
skjalavörð heim, á skrifstofu
hans í Þjóðskjalasafninu, og
tilkyntu honum doktorskjörið.
Greinargerð deildarinnar fyrir
því er á þessa leið:
»Ætlvisi og mannfræði hafa
löngum verið höfuð-uppistaðan
í söguiðkunum íslendinga. í
þeim greinum hefir þó enginn,
hvorki fyr nje síðar, lagt fram
meira í rannsóknum en Hannes
þjóðskjalavörður Þorsteinsson;
hafa þær birst f mörgum ritum
frá hans hendi, bæði smáum
og stórum; má t. d. benda á
hina miklu viðauka hans og
athugasemdir við Sýslumanna-
ævir Boga Benediktssonar. Höf-
uðverk hans f þessum greinum,
— »Ævisögur lærðra manna
fslenskraa, er þó enn óprentað;
er það mikið ritverk, geysilega
fróðlegt og nákvæmt, énda stutt
fyrst og fremst við skjöl og hin-
ar fylstu frumheimildir. Frá
Fundarhöldin
í Kjósar- og Gullbringusýslú.
Aðalfundur
Sameiginlegir fundir frambjóð-
endanna í Gullbr.- og Kjósar-
sýslu, Ólajs Thors og Haralds
Guðmundssonar, hófust ekki
fyr en eftir jól, vegna þess að
hinn fyrnefndi liafði verið þungt
haldinn af lungnakvefi fram
undir hátíðir. Hafa þeir nú
haldið fundi í Hafnarfirði, Kefla-
vík, Sandgerði, Garði og á Álfta-
nesi.
Umræður á öllum þessum
fundum hafa verið hinar fjör-
ugustu og kappsamlegustu. í
Hafnarfirði, Keflavík og Garði
töluðu, auk frambjóðendanna
og alfmargra innanhjeraðsmanna,
sem flestir tjáðu Ólafi Thors
fylgi sitt, þeir Jón Porláksson
og Magnús Jónsson dócent af
hálfu íhaldsmanna, en Jón
fíalduinsson, Sigurjón Ólafsson
og Björn J. fílöndal af hálfu
jafnaðarmanua.
Stefnur beggja flokka og til-
lögur þeirra í ýmsum málum,
hafa verið ræddar fram og aftur
og er auðvitað ógerningtn- að
rekja umræðurnar í stuttu máli.
Ástæða er til að geta um það
og benda á sem fordæmi, hve
prúðinannlegur og kurteis tónn
hefir ríkt í orðaskiftum fram-
bjóðendanna beggja. Báðir eru
prýðilega máli farnir, lala fjör-
lega og snjalt, setja skýrt og
ljóst fram rök sín og skoðanir.
Þá greinir mjög á í hðfuðstefnu-
atriðum, t. d. skattamálum, sem
báðir hafa rætt ítarlega, og þeir
sækja fram hvor gegn öðrum
af krafti og bita. En hvorugur
hefir sýnt hinum minstu óvirð-
ingu eða ósvífni, báðir viðurkent
að þeir ættu í höggi við heið-
arlegan andstæðing.
Ólajur Thors og Haraldur
Guðmundsson eru báðir ungir
menn og hafa á siðari árum
hafið afskifti sín af opinberum
málum. Það væri vel, ef fram-
koma þeirra í kosningarbarátt-
unni væri tákn þess, að hinir
yngri menn í landinu af öllum
flokkum (og í þessu sambandi
má m. a. minna á Ásgeir Ás-
geirsson) væru að snúa baki
við aliri þeirri andslygð ósann-
inda, níðingsbragða og hvers-
konar óheiðarleika, sem enn er
höfuðeinkenni á bardagaaðför-
um sumra íslenskra stjórnmála-
manna.
— Fundirnir hafa staðfest það
sem menn raunar vissu áður,
að Ólafur Thors á meira
fylgi i [Gullbringu- og Kjósar-
sýslu en H. G. Fylgi hins síð-
arnefnda mun aðallega í Hafn-
arfirði, en þó varð ekki séð á
fundinum þar, hvor frambjóð-
endanna átti meiri ítök í hug-
um manna. Ræðum beggja var
tekið með miklum fögnuði. Á
öllum hinum fundunum var
auðséð að fylgismepn ÓI. Th.
voru þar í yfirgnæfandi meiri
hluta.
hendi hans liggja og merk rit
önnur, er varða bókmentir þjóð-
arinnar beinlínis, sögu landsins
og staða- og örnafnalýsing. Ýms
merk fræðirit hefir hann og bú-
ið undir prentun og gefið út, t.
d. íslenska annála siðari alda.
Loks má og framar öðrum
þakka honum þær horfur, er
eru á heillavæDlegum úrslitum
um kröfur íslendinga til skjala
og handrita úr söfnum Dana;
atorka hans og nákvæm þekk-
ing á sögu skjala og handrita
ljeði þar þann styrk, sem reið
baggamuninn«.
Allir þeir, sem unna islensk-
um fræðum, munu samfagna
dr. Hannesi með þá maklegu
viðurkenningu, sem honum hefir
hlotnast í þessu.
Siyurður Jónsson á Ystafelli
hefir látið af þingmensku sakir
veikinda. Hverfur með honum
af þingi hinn mesti heiðurs- og
merkismaður. Þingsæti hans
tekur Ágús t bóndi Helgason
í Birtingaholti.
Riddarakroðsi Fálkaorðunnar
hafa verið sæmd nýlega: Maria
Viktoria, prforissa í Landakoti,
Indriði Einarsson, leikskáld,
Ólafur háskólaritari Rósenkranz,
Borgþór Jósefsson, bæjargjaldk.,
sr. Páll Ólafsson í Vatnsfirði,
Jóhann Jónsson, skipstjóri á
björgunarskipinu »t*ór« og Sig-
urður skáld Sigurðsson frá Arn-
arholti.
Snjóflóð fjell yfir bæinn Sviðn-
ing í Kolbeinsdal í vikunni fyrir
jól. Tók flóðið fjárhús og bar
ofan á baðstofuna, en í henni
voru 5 menn, hjón með 2 börn-
um ásamt gamalli konu. Tví-
býli er á bænum, og sakaði ekki
hús það, er hinn bóndinn býr í.
Kom hann þegar til hjálpar og
ijekk borgið gömlu konunni og
barni. Kom honum þá hjálp frá
öðrum bæjum og tókst loks að
grafa niður á rúm hjónanna.
Var bóndinn, Sölvi Kjartansson,
þá örendur, og annað barnið,
en húsmóðirin náðisl lifandi, en
allmjög þrekuð og marin. Var
þá liðinn sólarhringur frá því
er flóðið reið yfir, og hafði kon-
an legið allan þenna tíma hjá
líki barns síns. — Skriðan tók
allar skepnur og öll hey hins
bóndans.
Mósúlmáiifl. Símað er frá Vin-
arborg, að tvrkneska herforingja-
ráðið hkfði fundi þessa dagana
og ræði líklega Mósúlmálið. —
Frá Lundúnum er símað, að
þeir hafi átt íal um Mósúl-málið,
tyrkneski sendiherrann og Bald-
win forsætisráðherra, og er talið,
xð saman hafi dregíð með þeim.
Afvopnunarráðstefn?. Frá Was-
hington er símað, að Banda-
ríkjunum hafi verið boðið að
taka þátt í afvopnunarráðstefnu.
Stjórnin íhugar málið, en blöðin
eru flest meðmælt því, að boð-
inu verði tekið.
Prentsmiðjfln Gutenberg.
hf. Eimskipafjel. Suðurlands
verður haldinn laugard. 20, febr. 1926 á skrifstofu
hr. hæstarjettarmálaflutningsmanns Lárusar Fjeldsted,
Hafnarstræti 19, Reykjavík, og hefst kl. 4 eftir
hádegi.
Dagskrá samkv. 14. gr. fjelagslaganna.
Reykjavík 31. des. 1925.
Fj elag-sstj órnin.
8 - álta - mlarstalir til sl.
VerslunarMs, vörubirgðir, útístandandí skuldir m. m.
Hlutafjelagið HINAR SAMEINDÐU 18LEN8KU VERSL-
ANIR í Kaupmannahöfn helir ákveðið að selja eftirtalda 8 versl-
unarstaði og verslanir.
I. JL>jtipivogur. Ibúðarhús og sölubúð, geymslu-
hús, bræðsluhús, peningshús, bryggja, alt með lóðarrjettindum,
verslunaráhöld, vörubirgðir og útistandandi skuldir.
EsRif jöx’öur. íbúðarhús og sölubúð, mörg
geymsluhús, ís- og frystihús, sláturhús, steinoliuhús, lýsisbræðsla,
peningshús, stórskipabryggja með öllum áhöldum, tún, mikið
landsvæði, 5 íbúðarhús einstakra manna, verslunaráhöld, vöru-
birgðir, útstandandi skuldir o. fl. Ennfremur á sama stað
eignir h.f. tslandia, síldveiðahús, geymsluhús, sildarnætur og önn-
ur áhöld.
3. "V"estdalseyri. Sölubxíð, mörg geymsluhús, slál-
urshús, fiskþvottahús, járnbrautir, bryggjur, 9 íbúðarhús, jörðin
Vestdalseyri, jörðin Vestdalur, 3 mótorbátar, lítilsháltar vöru-
birgðir og útistandandi skuldir.
4. Borgarfjöröur. N.-Múlas. íbúðarhús og sölu-
búð, ýms geymsluhús, ís- og frystihús, geymsluhús á Unaós,
sláturshús. Jarðeignirnar Bakki og Bakkagerði, V* úr jörðinni
Njarðvík, íbúðarhús og sjóbúð í Glettinganesi, bryggja, 4 íbúðar-
hús, 4 hesta Danmótor, verslunaráhöld, vörubirgðir og útistand-
andi skuldir.
5. V opnnf jörötxr. íbúðarhús, sölubúð, ýms
geymsluhús og íbúðarhús, bryggjur, frystihús, verslunaráhöld,
vörubirgðir og útistandandi skuldir.
Ö. Hesteyxú. íbúðarhús og sölubúð, geymsluhús,
sildarplan með vatnsveitu, lóöarrjettindi.
- Bolungarvík. íbúðarhús og sölubúð, mörg
geymsluhús og fiskihús, verbúðir, mörg íbúðarhús, lóðarrjetlindi,
fiskreilir, 2 mótorbátar og hlular í 4 mótorbátum, verslunaráhöld,
vörubirgðir, og útistandandi skuldir. m. m. Ennfremur þessar
jarðeignir: Ytribúðir, Árbær og */* Grundarhóll.
8. JF'Ia.teyri. íbúðarhús, sölubúð, mörg geymsluhús,
bálar, bryggja með síldarplani, lóðarrjettindi, fiskreitir, járnbrautir,
lýsisbræðsla, peningshús m. m., verslunaráhöld, vörubirgðir og
útistandandi skuldir.
Tilboð í framangreindar eignir óskast send undirrituðum
í síðasta lagl 28. febrúar 192G. Tilboðin óskast í hvern versl-
unarstað um sig með öllu lilheyrandi, þar á meðal vörubirgðum
og útstandandi skuldum. Einnig má gera sjerstaklega tilboð í ein-
stakar eignir, svo og i eignirnar allar í einu, í útistandandi skuldir
á öllum verslunarstöðunum o. s. frv.
Eignirnar seljasl í því ástandi, sem þær nú eru, eða þegar
sala fer fram. Upplýsingar um ástand eignanna m. m. má fá hjá
núverandi umboðsmönnum Hinna sameinuðu íslensku verslana á
hverjum stað um sig. Um aðrar upplýsingar geta menn snúið
sjer til undirritaðs eða Jóns konsúls Arnesens á Akureyri. Tilboð
sem koma kunna, óskast sem skírust og greinilegust bæði um
það hvað óskast falið í kaupunum, um borgun kaupvcrðsins og
annað. Kaup geta- fljótl farið fram, með því að jeg hefi un.boð
tii sölunnar.
Sveinn Björnsson
hæstarjeUarmálaflutningsmaður.
Reykjavík. — Símnefni „íebjörn.44.