Vörður


Vörður - 04.01.1926, Qupperneq 6

Vörður - 04.01.1926, Qupperneq 6
4 y Ö K Ð U B bannfæringarinnar, sem verða að engu fyrir það. Röddin er ekki góð og klaufalega beitt á stundum. Sjera Porgeir leikur Tómas Hallgrímsson. Það er vandasamt hlutverk, og Tómasi tekst ekki að ráða viö það. Hann leikur ekki oft og tíðum. Þó er leikur hans ekki litlaus. Tilþrif eru í leik hans í Berghyl og undir bannfæringunni, þó hann gleymi sjer þá stundum. Hann nýtur sin betur sem hermaður en prestur. Haraldur Sigurðsson er held- ur ekki í rjettu hlutverki, enda er leikur hans tilþrifalaus. Jeg veit ekki hver leikur Sera- piel, en gerfið er vont og rödd- in ómöguleg. Ekkert annarlegt. Pó ýmsu sje ábótavant við leiksýningu þessa, fara menn ekki erindisleysu í leikhúsið. Ýmislegt tekst þar vel, og mun verða mönnum minnis- stætt. Mætti þar nefna sjón- hverfingaleikinn í kirkjunni, sem oft tekst prýðilega, og er mjög áhrifamikill, og eins, þá er kirkj- an sekkur. En ekki munu dans- arnir og Kaldalónslögin eiga minstan þátt í því, að menn fara úr leikhúsinu i góðu skapi. Dansarnir eru áhrifamiklir, og í fullu samræmi við umhverfið. Ætti höfundur þeirra, frú Guð- rún Indriðadóttir, að takast á hendur endurreisn þjóðdans- anna fslensku. Lög Kaldalóns við Ave Maria og kirkjugarðsdansinn eru bæði stórkostlega áhrifamikil, og for- leikurinn eftir Emil Thoroddsen flytur áheyrendurna strax inn í umhverfi leiksins. 1930 á Þjóðleikhúsið að vera bygt. Pá verður Dansinn í Hruna að sjálfsögðu leikinn í virðingarskyni við höf. hans fyrir hans mikla starf i þágu isl. leiklistar. Það mun þá sýna sig, að í því eru margar sýn- ingar, er taka fram flestu þvi er hér hefir sjest á Ieiksviði. Andrjes G. Pormar. Doktorskjör. Heimspekisdeild Háskólans kjöri á fundi 19. f. m. Hannes þjóðskjalavörð Porsteinsson heið- ursdoktor. Á Þorláksmessu sóttu kennarar heimspekisdeildar þjóð- skjalavörð heim, á skrifstofu hans í Þjóðskjalasafninu, og tilkyntu honum doktorskjörið. Greinargerð deildarinnar fyrir því er á þessa leið: »Ætlvisi og mannfræði hafa löngum verið höfuð-uppistaðan í söguiðkunum íslendinga. í þeim greinum hefir þó enginn, hvorki fyr nje síðar, lagt fram meira í rannsóknum en Hannes þjóðskjalavörður Þorsteinsson; hafa þær birst f mörgum ritum frá hans hendi, bæði smáum og stórum; má t. d. benda á hina miklu viðauka hans og athugasemdir við Sýslumanna- ævir Boga Benediktssonar. Höf- uðverk hans f þessum greinum, — »Ævisögur lærðra manna fslenskraa, er þó enn óprentað; er það mikið ritverk, geysilega fróðlegt og nákvæmt, énda stutt fyrst og fremst við skjöl og hin- ar fylstu frumheimildir. Frá Fundarhöldin í Kjósar- og Gullbringusýslú. Aðalfundur Sameiginlegir fundir frambjóð- endanna í Gullbr.- og Kjósar- sýslu, Ólajs Thors og Haralds Guðmundssonar, hófust ekki fyr en eftir jól, vegna þess að hinn fyrnefndi liafði verið þungt haldinn af lungnakvefi fram undir hátíðir. Hafa þeir nú haldið fundi í Hafnarfirði, Kefla- vík, Sandgerði, Garði og á Álfta- nesi. Umræður á öllum þessum fundum hafa verið hinar fjör- ugustu og kappsamlegustu. í Hafnarfirði, Keflavík og Garði töluðu, auk frambjóðendanna og alfmargra innanhjeraðsmanna, sem flestir tjáðu Ólafi Thors fylgi sitt, þeir Jón Porláksson og Magnús Jónsson dócent af hálfu íhaldsmanna, en Jón fíalduinsson, Sigurjón Ólafsson og Björn J. fílöndal af hálfu jafnaðarmanua. Stefnur beggja flokka og til- lögur þeirra í ýmsum málum, hafa verið ræddar fram og aftur og er auðvitað ógerningtn- að rekja umræðurnar í stuttu máli. Ástæða er til að geta um það og benda á sem fordæmi, hve prúðinannlegur og kurteis tónn hefir ríkt í orðaskiftum fram- bjóðendanna beggja. Báðir eru prýðilega máli farnir, lala fjör- lega og snjalt, setja skýrt og ljóst fram rök sín og skoðanir. Þá greinir mjög á í hðfuðstefnu- atriðum, t. d. skattamálum, sem báðir hafa rætt ítarlega, og þeir sækja fram hvor gegn öðrum af krafti og bita. En hvorugur hefir sýnt hinum minstu óvirð- ingu eða ósvífni, báðir viðurkent að þeir ættu í höggi við heið- arlegan andstæðing. Ólajur Thors og Haraldur Guðmundsson eru báðir ungir menn og hafa á siðari árum hafið afskifti sín af opinberum málum. Það væri vel, ef fram- koma þeirra í kosningarbarátt- unni væri tákn þess, að hinir yngri menn í landinu af öllum flokkum (og í þessu sambandi má m. a. minna á Ásgeir Ás- geirsson) væru að snúa baki við aliri þeirri andslygð ósann- inda, níðingsbragða og hvers- konar óheiðarleika, sem enn er höfuðeinkenni á bardagaaðför- um sumra íslenskra stjórnmála- manna. — Fundirnir hafa staðfest það sem menn raunar vissu áður, að Ólafur Thors á meira fylgi i [Gullbringu- og Kjósar- sýslu en H. G. Fylgi hins síð- arnefnda mun aðallega í Hafn- arfirði, en þó varð ekki séð á fundinum þar, hvor frambjóð- endanna átti meiri ítök í hug- um manna. Ræðum beggja var tekið með miklum fögnuði. Á öllum hinum fundunum var auðséð að fylgismepn ÓI. Th. voru þar í yfirgnæfandi meiri hluta. hendi hans liggja og merk rit önnur, er varða bókmentir þjóð- arinnar beinlínis, sögu landsins og staða- og örnafnalýsing. Ýms merk fræðirit hefir hann og bú- ið undir prentun og gefið út, t. d. íslenska annála siðari alda. Loks má og framar öðrum þakka honum þær horfur, er eru á heillavæDlegum úrslitum um kröfur íslendinga til skjala og handrita úr söfnum Dana; atorka hans og nákvæm þekk- ing á sögu skjala og handrita ljeði þar þann styrk, sem reið baggamuninn«. Allir þeir, sem unna islensk- um fræðum, munu samfagna dr. Hannesi með þá maklegu viðurkenningu, sem honum hefir hlotnast í þessu. Siyurður Jónsson á Ystafelli hefir látið af þingmensku sakir veikinda. Hverfur með honum af þingi hinn mesti heiðurs- og merkismaður. Þingsæti hans tekur Ágús t bóndi Helgason í Birtingaholti. Riddarakroðsi Fálkaorðunnar hafa verið sæmd nýlega: Maria Viktoria, prforissa í Landakoti, Indriði Einarsson, leikskáld, Ólafur háskólaritari Rósenkranz, Borgþór Jósefsson, bæjargjaldk., sr. Páll Ólafsson í Vatnsfirði, Jóhann Jónsson, skipstjóri á björgunarskipinu »t*ór« og Sig- urður skáld Sigurðsson frá Arn- arholti. Snjóflóð fjell yfir bæinn Sviðn- ing í Kolbeinsdal í vikunni fyrir jól. Tók flóðið fjárhús og bar ofan á baðstofuna, en í henni voru 5 menn, hjón með 2 börn- um ásamt gamalli konu. Tví- býli er á bænum, og sakaði ekki hús það, er hinn bóndinn býr í. Kom hann þegar til hjálpar og ijekk borgið gömlu konunni og barni. Kom honum þá hjálp frá öðrum bæjum og tókst loks að grafa niður á rúm hjónanna. Var bóndinn, Sölvi Kjartansson, þá örendur, og annað barnið, en húsmóðirin náðisl lifandi, en allmjög þrekuð og marin. Var þá liðinn sólarhringur frá því er flóðið reið yfir, og hafði kon- an legið allan þenna tíma hjá líki barns síns. — Skriðan tók allar skepnur og öll hey hins bóndans. Mósúlmáiifl. Símað er frá Vin- arborg, að tvrkneska herforingja- ráðið hkfði fundi þessa dagana og ræði líklega Mósúlmálið. — Frá Lundúnum er símað, að þeir hafi átt íal um Mósúl-málið, tyrkneski sendiherrann og Bald- win forsætisráðherra, og er talið, xð saman hafi dregíð með þeim. Afvopnunarráðstefn?. Frá Was- hington er símað, að Banda- ríkjunum hafi verið boðið að taka þátt í afvopnunarráðstefnu. Stjórnin íhugar málið, en blöðin eru flest meðmælt því, að boð- inu verði tekið. Prentsmiðjfln Gutenberg. hf. Eimskipafjel. Suðurlands verður haldinn laugard. 20, febr. 1926 á skrifstofu hr. hæstarjettarmálaflutningsmanns Lárusar Fjeldsted, Hafnarstræti 19, Reykjavík, og hefst kl. 4 eftir hádegi. Dagskrá samkv. 14. gr. fjelagslaganna. Reykjavík 31. des. 1925. Fj elag-sstj órnin. 8 - álta - mlarstalir til sl. VerslunarMs, vörubirgðir, útístandandí skuldir m. m. Hlutafjelagið HINAR SAMEINDÐU 18LEN8KU VERSL- ANIR í Kaupmannahöfn helir ákveðið að selja eftirtalda 8 versl- unarstaði og verslanir. I. JL>jtipivogur. Ibúðarhús og sölubúð, geymslu- hús, bræðsluhús, peningshús, bryggja, alt með lóðarrjettindum, verslunaráhöld, vörubirgðir og útistandandi skuldir. EsRif jöx’öur. íbúðarhús og sölubúð, mörg geymsluhús, ís- og frystihús, sláturhús, steinoliuhús, lýsisbræðsla, peningshús, stórskipabryggja með öllum áhöldum, tún, mikið landsvæði, 5 íbúðarhús einstakra manna, verslunaráhöld, vöru- birgðir, útstandandi skuldir o. fl. Ennfremur á sama stað eignir h.f. tslandia, síldveiðahús, geymsluhús, sildarnætur og önn- ur áhöld. 3. "V"estdalseyri. Sölubxíð, mörg geymsluhús, slál- urshús, fiskþvottahús, járnbrautir, bryggjur, 9 íbúðarhús, jörðin Vestdalseyri, jörðin Vestdalur, 3 mótorbátar, lítilsháltar vöru- birgðir og útistandandi skuldir. 4. Borgarfjöröur. N.-Múlas. íbúðarhús og sölu- búð, ýms geymsluhús, ís- og frystihús, geymsluhús á Unaós, sláturshús. Jarðeignirnar Bakki og Bakkagerði, V* úr jörðinni Njarðvík, íbúðarhús og sjóbúð í Glettinganesi, bryggja, 4 íbúðar- hús, 4 hesta Danmótor, verslunaráhöld, vörubirgðir og útistand- andi skuldir. 5. V opnnf jörötxr. íbúðarhús, sölubúð, ýms geymsluhús og íbúðarhús, bryggjur, frystihús, verslunaráhöld, vörubirgðir og útistandandi skuldir. Ö. Hesteyxú. íbúðarhús og sölubúð, geymsluhús, sildarplan með vatnsveitu, lóöarrjettindi. - Bolungarvík. íbúðarhús og sölubúð, mörg geymsluhús og fiskihús, verbúðir, mörg íbúðarhús, lóðarrjetlindi, fiskreilir, 2 mótorbátar og hlular í 4 mótorbátum, verslunaráhöld, vörubirgðir, og útistandandi skuldir. m. m. Ennfremur þessar jarðeignir: Ytribúðir, Árbær og */* Grundarhóll. 8. JF'Ia.teyri. íbúðarhús, sölubúð, mörg geymsluhús, bálar, bryggja með síldarplani, lóðarrjettindi, fiskreitir, járnbrautir, lýsisbræðsla, peningshús m. m., verslunaráhöld, vörubirgðir og útistandandi skuldir. Tilboð í framangreindar eignir óskast send undirrituðum í síðasta lagl 28. febrúar 192G. Tilboðin óskast í hvern versl- unarstað um sig með öllu lilheyrandi, þar á meðal vörubirgðum og útstandandi skuldum. Einnig má gera sjerstaklega tilboð í ein- stakar eignir, svo og i eignirnar allar í einu, í útistandandi skuldir á öllum verslunarstöðunum o. s. frv. Eignirnar seljasl í því ástandi, sem þær nú eru, eða þegar sala fer fram. Upplýsingar um ástand eignanna m. m. má fá hjá núverandi umboðsmönnum Hinna sameinuðu íslensku verslana á hverjum stað um sig. Um aðrar upplýsingar geta menn snúið sjer til undirritaðs eða Jóns konsúls Arnesens á Akureyri. Tilboð sem koma kunna, óskast sem skírust og greinilegust bæði um það hvað óskast falið í kaupunum, um borgun kaupvcrðsins og annað. Kaup geta- fljótl farið fram, með því að jeg hefi un.boð tii sölunnar. Sveinn Björnsson hæstarjeUarmálaflutningsmaður. Reykjavík. — Símnefni „íebjörn.44.

x

Vörður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.