Vörður


Vörður - 09.01.1926, Side 4

Vörður - 09.01.1926, Side 4
4 VÖRÐDR H.f. Eimskipafélag íslands. AÐALFUNDUR. i Aðalíundur Hlutafélagsins Eimskipafélag íslands verður hald- inn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavik, laugardaginn 26. júní 1926, og hefst kl. 1 e. h. Dagskrá: 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endur- skoð.íða rekstrarreikninga til 31. desember 1925 og efnahags- reikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórn- arinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu ársarðsins. 3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt félagslögunum. 4. Kosning eins endurskoðanda, í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Peir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Að- göngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðs- mönnum hiuthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavik dagana 23. og 24. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn hjá hlutafjársöfnurum félagsins um alt land og af- greiðslumönnum þess, svo og á aðalskrifstofu félagsins í Ileykjavik. Reykjavik 16. desember 1925. Stjórnin. ÚTYEGSMENN og aðrir, sem steinoliu nota, skiftið við Landsverslun, því það mun verða hagkvæmast, þegar á alt er litið. — Olíuverðið er nú frá geymslustöðum Landsverslunar: nótt slösuðust 400 manns í borginni, 455 voru handsamaðir og 8 sjálfsmorð voru framin. England. Símað er frá Lon- don, að blöðin telji að búast megi við miklum tekjuhalla á ríkisbúskapnum, á hinu nýbyrj- aða ári. Frakkland. Símað er frá París, að engar likur sje til þess, að stjórninni takist að semja fjár- lagafrumvörp, sem þingið muni ganga að. Er því búist við, að stjórnin muni fara frá bráðlega. — Stjórnin hefir lýst yfir, að aðstaða Frakka í Sýrlandi fari stórum batnandi. Fulitrúi frá Abd-el-Iírim kom til Parísar og ætlaði að reyna að semja um frið milli stjórnarinnar og Abd-el-Krims. Pótti hann kröfuharður og fjekk litla áheyrn og hvarf aftur við svo búið. Ungverjaland. Símað er frá Budapest, að komist hafi upp um einhverja hina geypilegustu peningafölsun, er sögur fara af. Prins Windischgreaelzh var forsprakkinn, en aðrir þátltak- endur voru fjöldi hátt setra embættismanna, og þeirra á meðal ráðherrar. Höfðu menn þessir látið búa til tugi miljóna af þúsund-franka seðlum, er þeir ætluðu að selja í útlöndum, í þeim tilgangi að útvega prins- inum og vinum hans meðal aðalsmanna og embættismanna fjármagn. Prinsinn sóaði pen- ingum vitfirringslega og tapaði t. d. á einni nótt heilli miljón í fjárhættuspili. Aðaltilgangur fyrirtækisins var að gera Al- brechl erkihertoga að konungi. Fjöldi manna hefir veriö hand- samaður. Prinsinn hefir lýst yfir því, að miljónum seðla hafi verið komið ■ fyrir til geymslu í ýms- um stórborgum. Pólitiskt mark- mið fyrirtækisins var að koma Habsborgurum að völdum. Með- al helstu forsprakkanna var sjálfur lögreglustjóri borgarinn- ar. Fjelagið hafði þegar selt talsvert af seðlunum til ýmsra landa. Stórblöðin kalla viðburð- inn stærsta pólitíska hneykslis- málið sem komið hefir fyrir í sögu Ungverjalands. Grikkland. Símað er frá Aþenu- borg 4 þ. m., að þar hafi verið gerð stjórnarbylting og hafi Pangalos tekið sjer alræðisvald. Fundum þingsins frestað um óákveðin tíma. Pangalos hefir sagt, að hann ætli að stjórna Grikklandi með aðstoð hers og flota. Danmörk. í desember var tala atvinnulausra í Danmörku 61, 389. Á sama tíma 1924 var hún 25,900 og 1923 32,300. Ansturríki. Stjórn Austurríkis hefir snúið sjer til Pjóðbanda- lagsins með óskir um það, að það útvegi 60,000 atvinnulaus- um verkamönnum atvinnu. Stjórnin telur ómögulegt að veita fólki þessu atvinnu í sjálfu landinu. Norður-Ameríka hefir neitað um innflutning á verka- fólki frá Austurríki. Verði eng- in bót ráðin á atvinnuleysinu, telur stjórn Austurríkis ekki annað fyrirsjáanlegt, en landið sameinist Þýskalandi. Kuldar vestanhafs. Um ára- mótin var símað frá Bandaríkj- unum, að kuldar miklir væru þar vestra og hafi um hundrað manns frosið í hel. Vatnavextir á meginlandinu. Eftir langvarandi frostatið og snjóþyngsli um alla Mið-Evrópu kom asahláka eftir áramótin. Hlýnaði svo í veðri, að t. d. í Berlín var 14 stiga hiti, en 17 stig í Múnchen. Frá Belgíu er símað 3. jan., að 8 þúsund hús sjeu umflotin í borginni Liege. Fjöldi bygg- inga þar sje kominn að hruni og er skaðinn í þessum eina bæ áætlaður 8 miljónir franka. Fólk fer mestmegnis á bátum um borgina. Heiliðið hefir verið kallað til hjálpar og aðstoðar það borgarbúa eftir mætti. Liege er fögur, fræg og göm- ul menningarborg. Nýjustu skeyti herma, að tjón- ið af vatnavöxtunum í Pýska- landi nemi 30 miljónum marka. Enn hermir skeyti, að Signa vaxi afskaplega, og að allar hugsanlegar ráðstafanir sjeu gerðer til þess að varna því að hún flói yfir bakkana í París. Loftkastalar Mussolini. Svo er sagt í skeyti frá Lunúnum, að mörg blöð hermi þær frjettir, að Mussolini muni ætla að gera Ítalíu að keisaradæmi, láta út- búa flotastöð á eynni Rodos og enn, að hann hyggi á landvinn- ing í Litlu-Asiu. Kveður hann ítölum brýna nauðsyn að fá fleiri nýlendur, vegna mann- fjöldans i landinu. Fjöldi facista-þingmanna hafa farið þess á leit við konung- inn, að hann geri Mussoiini að forsætisráðherra æfilangt. Bannið I Bandaríkjunum. Símað er frá New York, að prófessor Butler, forseti Columbia-háskól- ans, sem er með fremstu vísinda- mönnum í Ameríku, hafi sent blöðunum þar opið brjef um á- fengisbannið. Telur hann það mestu mistök í sögu Banda- rikjanna, og hafi það haft geypi- lega siðspillingu í för með sjer. Símað er frá New York, að fádæma drykkjuskapur hafi verið þar í borg á jólunum og nýársnótt. Fjörutiu menn voru fluttir dauðveikir á spítala. Höfðu þeir drukkið eitraðan spiritus, heimabruggaðan. Enskt þröngsýni. Símað er frá London, að fyrverandi lögreglu- stjóri að nafni Thomson hafi verið dæmdur i átta þúsund sterlingspunda sekt fyrir lög- reglurjetti, vegna þess að lög- regluþjónn kom að honum að kvöldi til, er hann var að tala við götustelpu í garði nokkrum í borginni. Dómarar álitu veru hans þar ósiðferðilega. Svaraði Thomson því einu til, að hann hefði verið að kynna sjer nætur- lífið og hefði hann hugsað sjer að skrifa blaðagreinar um það. Mál þetta hefir vakið mikla athveli i Englandi og víðar. Flóðbylgja geysimikil gekk yfir eyna Yap og sópaði burt öllu, sem var á eynni. Talið er að allir eyjarskeggjar hafi druknað, en þeir voru um 10000. Fregnir óljósar, og er ógerningur að rannsaka staðinn enn þá vegna óveðurs. — Ey þessi er ein af Karolinu-eyjum í suðurhluta Kyrrahafs, 247 ferkm. að stærð. Verslunarjöfnuður Norðmanna er 100 milj. kr. hagstæðari í ár heldur en í fyrra, vegna minni innfiutnings. PÓIflug. Frá New York er símað, að fjelag þar í borginni vinni að undirbúningi pólflugs að vori. Vilhjálmur Stefánsson kveður minni hættu að fljúga til pólsins heldur en yfir At- lanshaf. Sprenging í Saarbriicken. í skeyti fra Saarbiúcken segir, að kviknað hafi í vörugeymsluhúsi, er í voru 500 kg. af púðri. Varð ógurleg sprenging þegar eldur- inn náði í púðrið. Hundrað manns særðust og fjöldi húsa skemdist. Breski flotinn. Símað er frá London, að vara-aðmíráll Sir Lambert haldi því framiblaða- grein, að enski fiotinn hafi verið suivrvA MJÖLNIR GASOLIA illa út búinn á styrjaldarárunum og kveður hann þýska flotann hafa haft yfirhöndina í bardag- anum í Norðursjónum. — Krefst hann endurbóta á flotanum. Vesúvius hefir gerst órólegur síðustu dagana, og tveir 'nýir gigir myndast. Hægfara hraun- flóð streymir út úr þeim. Kosningin í Gullbr.- og Kjósar- sýslu fer fram í dag. Siðustu fundi sína bjeldu frambjóðend- urnir að Brúarlandi í Mosfells- sveit og að Reynivöllum i Kjós Umræður á báðum fundum voru kappsamlegar en kurteisar. — Frambjóðendur höfðu ekki kom- ist yfir að halda fund í Höfnum, en í þeirra stað brugðu þeir 30 aura kílóið 3@ _ --- Jón Porláksson og Jón Bald- vinsson sjer þangað suður i vikunni og skutu á fundi með kjósendum. — Atkvæði munu verða talin á þriðjudag. Nýr doktor. Jón Helgason meistari í norrænum fræðum varði doktorsritgerð sina við háskólann 7. þ. m. Söngskemtanir. Peir bræður, Eggerl Ste/ánsson og Sigvaldi Kaldalóns, efndu til »KaIdalóns- kvölds« á þriðjudag. Söng E. St. lög eftir bróður sinn, tónskáldið, sem lék undir. Áheyrendur fögn- uðu báðum af heilum hug. — Sigurður Birkis efndi til söng- skemtunar siðastliðinn sunnu- dag með aðstoð frú Guðrúnar Agúsldóllur, Halls Þorleifssonar og Óskars Norðmanns. Sungu þau ýmsa kaíla úr frægum söng- leikjum (óperum og óperettum) og þótti takast prýðilega. Dr. Jón Helgasonbiskup hefirritað sögu isl. stúdenta i Khöfn. Bókin er samin á dönsku verður bráðlega gefin út af dansk- islenska fjelaginu. Fálkaorðan. Nýlega hefir land- símastjóri O. Forberg, verið sæmdur stórriddarakrossi Fólka- orðunnar og Sigurður Sigurðs- son ráðunautur riddarakrossi sömu orðu. Frá ísafirði. Bæjarstjórnar- kosningin 5. þ. m. fór svo að Alþýðuflokkslistinn fjekk 346 atkvæði og voru kosnir af hon- um Finnur Jónsson og Jón M. Pjetursson, en lhaldslistinn fjekk 217 atvæði og var af honum kosinn Jóhann Bárðarson. Þrjá-^ tíu og níu seðlar voru ógildir og 1 auður. Bæjarstjórnarkosning fer fram bjer í bæ 23. þ. m. Tveir listar hafa komið fram. Á öðrum eru; Pjetur Halldórsson bósali, Jón Ásbjörnsson hæstarjettarlögmað- ur, Hallgrlmur Benediktsson stórkaupmaður, Árni Jónsson timburkaupmaður og Sigurður Halldórsson trjesmiðameistari. Hinn listinn er frá Alþýðu- fiokknum og eru á honum: ólafur Friðriksson, Haraldur Guðmundsson kaupfjelagsstjóri, Sigurjón Ölafsson, form. Sjó- mannafjel., Nilculás Friðriksson og Agúst Pálmason. Kappskákir teíldu Reykvíking- ar og Akureyringar um nýjárið símleiðis, eins og að undanförnu. 17 skákir voru tefldar, unnu Reykvíkingar 10, Akureyringar 3, en 4 urðu jafntefli. Dánarfregnir. Asgeir Blöndal, fyrv. hjeraðslæknir, ljest á Iiúsa- vik 2. þ. m., tæpra 68 ára að aldri. — Elísabet Bjerring, ekkja Hinriks Bjerring, sem eitt sinn var verslunarstjóri í Borgarnesi, lést 3. þ. m. i Vestmannaeyjum. — Kristín Sveinsdóttir Möller, kona Tómasar Möller’s sim- stjóra í Stykkishólmi, er nýlátin. Kaupdeila hefir staðið yfir í Vestmannaeyjum og valdið nokkrum . óeirðum. Samningar hafa nú tekist um kaupið milli verkamanna og atvinnurekenda. Standakirkja. Áheit til hennar hafa á siðastliðnu ári numið 10666 krónum 10 aurum, mest afhent dagblöðunum hjer í Reykjavík. Rauði krossinn efnir til hjúkr- unarnámsskeiðs hjer í bæ, sem hefst 18. þ. m. Verður kent í tveim deildum eins og í fyrra, »hjálp í viðlögum« og »heima- hjúkrun«. Gengið. Rvík. 8. jan. 1926. pund sterl. . . . kr. 22,15 dönsk kr................— 113,01 norsk — .... — 92,84 Gerist kaupendur VARÐAR Prentsrniðjan Gutenberg. 33 — --- SÓLARÖLIA 33 — --- Olian er flutt heim til kaupenda hér í bænum og á bryggju, að skipum og bátum, eftir því sem óskað er. SÉ VARAN TEKIN VIÐ SKIPSHLIÐ OG GREIDD VIÐ MÓTTÖKU, ER VERÐIÐ 2 AURUM LÆGRA KÍLÓIÐ. — Stáltunnur eru lánaðar ókeypis, ef þeim er skilað aftur innan 3 mánaða. Trétunnur kosta 12 krónur, og eru teknar aftur fyrir sama verð, ef þeim er skilað óskemdum innan 3 mánaða. Landsverslun. Jörð til sölu. 7* hluti (10 hundruð að fornu mati) af jörðinni JPlatey á Breiðafirði fæst til kaups og ábúðar í næstu fardögum. Upplýsingar hjá Kristjáni Bergssyni, forseta Fiski- fjelags íslands og Pjetri Magnússyni hæstarjettarmála- flutningsmanni, Reykjavík.

x

Vörður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.