Vörður


Vörður - 16.01.1926, Qupperneq 1

Vörður - 16.01.1926, Qupperneq 1
IV. ár. Reykjavík 10. jan. 1926. Slysatrygging rikisins Eftir Ásgeir Þorsteinsson cand. poiyt. Á síðasla þingi voru gerðar breytingar og viðbætur á lögum um skyldubundnar slysatrygg- ingar í landinu, og gengu lögin i gildi nú um áramótin. Breytingarnar, sem hin nýju lög fjalla um, eru aðallega í fólgnar, að framvegis verður at- vinnurekendum lögð á herðar víðtækari skylda til að tryggja starfsmenn sina fyrir slysurn, en áður hefir verið. Til þessa heíir slystrygging verið lögboðin fyrir farmenn og fiskimenn eina, en framvegis mun tryggingarskyld- an einnig . ná til þeirra starfs- manna, er stunda eftirtaldar at- vinnugreinar : a. Ferming og afferming skipa ogbáta, svo og vöruhúsvinna og vöruílutningur í sam- bandi þar við. b. Vinna í verksmiðjum og verkstæðum, þar með tekin gas- og rafmagnsframleiðsla; vinna í sláturhúsum, námu- gröftur, ennfremur fiskverk- un, ísvinna og vinna við rafmagnsleiðslur, þar sem 5 manns eða fleiri vinna, eða aílvjelar eru nolaðar að staðaldri. c. Húsabyggingar, bæði smiði nýrra húsa og viðbælur og breylingar á eldri húsum, nema um venjuleg bæjar- hús eða úlihús í sveitum sje að ræða. d. Vegagerð, brúargerð, hafn- argerð, vitabyggingar, síma- lagningar og viðgerðir, svo og vinna við vatnsleiðslur og gasleiðslur. Ennfremur skulu trygðir hafnsögumenn, lögreguþjónar, tollþjónar, vitaverðir og starfsmenn við vita, sótarar, póstar og slökkvilið, ráðið að opin- berri tilhlutun. það er skilyrði fyrir trygg- ingarskyldu þeirra, sem nefndir eru hjer að framan, að starfið sje rekið annaðhvort fyrir reikn- ing ríkis eða sveitarfjelags, eða þá einstaklings eða fjelags, sem hefir það að atvinnu. þó fellur þar undir smíði nýrra húsa og verulegar breytingar á eldri hús- um, þótt það sje framkvæmt fyrir reikuing manna, sem ekki hafa húsasmíði að atvinnu. Viðgerðir á hreppa-eðasýslu- veguin eru undanskildar lögun- um og ennfremur trygging skrif- stofufólks, sem ekki tekur bein- an þátt í tryggingarskyldum störfum fyrirtækisins. Hlunnindin, sem eldri trygg- ^ngarfjelög veittu hinum trygðu, eru óbreytt í þessum nýju lög- UI«. sem sje 2000 kr. bætur til aðstandenda, ef slys veldur dauða, og 4000 kr. bælur fj'rir algera öiorku af völdum slyss. En að auki eru nú veittar bæt- ur fyrír atvinnutjón, ef meiðsl valda sjúkleika lerigur en fjórar vikur. Eflir þann tíma greiðast dagpeningar, 5 kr. á dag, sem þó mega ekki fara fram úr 3U af dagkaupi hins trygða, nje veitast lengur en í 6 mánuði. . Hjer skal eigi að öðru leyti farið út í að skýra lögin frá sjónarroiði þeirra, sem trygg- ingarinnar verða aðnjólandi, enda eru lögin þess eölis, að tryggjendum er á öllum sviðum lagt á herðar að annast alt, sem að tryggingunni lýtur út á við, svo sem tilkynningar um trygg- ingarskylda starfsmenn, greiðsl- ur iðgjalda og tilkynningar um slys, sem að höndum bera. Og þótt eilthvað veröi vanrækt í þessum efnum af hálfu tryggj- enda, verður rjettindum hinua tryggingarskyldu í engu fyrir- gert af þeirri ástæðu. En þar sem lögin þannig leggja atvinnurekendum marg- víslegar skyldur á herðar, sem þeim er nauðsyn á að vel sjeu ræktar og rjett sjeu skildar (brot á lögunum varða sektum frá 50—1000 kr.), þykir ástæða til að gefa nokkrar upplýsingar um starfstilhögun og fyrirkomulag slysalryggingarinnar, og vekja athygli á þvi, sem þá mestu varðar. Stjórn og fyiirkomulag slysa- tryggiugarinnar. Slysatrygging ríkisins er i rauninni tvær deildir, sjómanna- trygging og iðntrygging. Fyrir- tækinu er veitt forstaða af 3 mönnum, er stjórnarráðið skip- ar, en auk þess hafa tveir menn rjett til að fylgjast með stjórn og rekstri þess, og sje annar fulltrúi atvinnurekenda, en hinn fulltrúi Alþýðusambandsíslands. Deildirnar verða óháðar og aðgreindar með allar fjársýslur, en þó skulu þær hlaupa undir bagga hvor með annari, þegar erfiður fjárhagur krefst þess. Koslnaðurinn við stjórn slysa- trj'ggingarinnar greiðist úr rík- issjóði, sem einnig ábyrgist að fyrirtækið standi í skilum, enda hefir stjórnarráðið yfirumsjón með því. Áhættullökkur og iðgjold. Skiftingin í áhæltuflokka og ákvörðun iðgjalda hefir verið gerð i samráði við 5 manna nefnd, sem lögin heimiluðu at- vinnurekendum að útnefna, til að gæta hagsmuna þeirra i þeim efnum. Nefudin er skipuð full- trúum helstu atvinnuflokkanna, er undir trj'gginguna falla, og er skylt að taka tillit lil álita hennar um ákvarðanir er hjer að lúta. Atvinnugreinunum hefir verið skipað eftir slysahættu i7 ílokka og er llokkagjaldið eins og hjer segir : I. fl. G aur. á viku f. hvern mann II. il. 10 — - — - — — III. fl.20--------- — — IV. Í1.40 — ----------— — y. fi.8o--------— — YI.Í1,90 — - — - — — VII.fl.120— - — - — — Vikan legsttil giundvallar fyr- ir iðgjaldagreiðslunni, enda þótt kaupið sje miðað við ár, mán- uð, dag eða ldukkustund. Árið reiknast sem 50 vikur, en mán- uður V12 úr ári. Ein vika er 6 dagar eða 60 stundir. Telja má saman tíma allra þeirra, sem trygðir eru í einu, en brot úr viku, sem þá verð- ur afgangs, telst sem heil vika. Til þess er ætlast, að saman- lagðar iðgjaldagreiðslur allra flokka hrökkvi fyrir útgjöldum slysatryggingaarinnar, í hvorri deild fyrir sig, og er því nauð- synlegt að áreiðanlegar upplýs- ingar um slysahættu fyrirtækj- anna sjeu fj'rir hendi, svo að á- kveða megi sem sanngjarnast iðgjaldagreiðslur þeirra, og að ekki sje iþyngt med ofháum greiðslum, nje ranglega skipað niður iðgjaldatöxtunum. í þessu efni skortir oss hjer á landi alla reynslu, nema um slj'sahættu við sjómensku, sem nokkur reynsla hefir feugist um, síðan sjómannatryggingin hófst. Iðgjaldataxta fyrir aðrar at- vinnugreinar hefir því orðið að ákveða eftir erlendri reynslu, og hefir þótt heppilegast að taka norsku slysatrygginguna til fyr- irmyndar, þar eð hjerlend að- staða mun einna likust kring- umstæðum þar í landi. Þó verð- ur ekki hjá þvi lcomist, að eitt- hvað kunni að skakka frá rjettu niðurskiftingin í áhættuílokka, en slíkt má lagfæra smám sam- an eflir að innlend reynsla er fengin. Sjómannastarfsemin hefir ver- ið flokkuð með hliðsjón af reynslu síðustu 6 ára. Áður var gjaldið jafnt fyrir alla sjómenn (1 kr. á viku), en reynslan hef- ir sýnt, að talsverður munur er á slysahættu, eftir því hver skipakostur er, og munurinn er jafnvel meiri en fram kemur við flokkunina eins og hún er nú. Gufuskip teljast í V. flokk, seglskip í VI. flokk, mótorbátar allir í VII. flokk, og róðrarbát- ar í V. flokk. Iðnaðarfj'rirtækjum og öðrum verklegum störfum hefir verið skipað í 5 fyrstu flokkana. 3. blað. Slinxinn mikli við Gizeh, rjett hjá Kairo, er eitt hið frægasta fortíðarminnismerki í Egyptalandi. Ilaun er talinn um 5000 ára gamall, er nú að hálfu soklcinn í jörðu, en andlitið sandorpið og skaddað. Egypska stjórnin hefir nú veitt fje til að gera við andlit sfinxins, og er mynd pessi tekinn eftir að pallar höfðu verið reistir kringum það, en áður en viðgerðin hófst. Egypsku sfinxarnir eru allir karlkyns, ljónslíkami og mannshöfuð. Er talíð að þeir hafi veriö ímynd konunganna eða verndarguða muster- anna. — í Giseh eru líka liæstir pýramidar í Egyptalandi. Pað var hjer sem Napoleon sigraði Mamelukana 1798, í hinni frægu »orustu við pýra- mídana«. Reglugerð slysatrj'ggingarinnar um áhættuflokkunina og igjöld- in mun verða sjerprentuð síðar, en þó þykir lilýða að gefa mönnum kost á að kynnast henni hjer, þar eð nánar verð- ur vikið að einstöku liðum hennar. í I. flokki eru: Þeir sem vinna að brjóstsyk- urs,- súkkulaði- og konfekt- gerð, á prjónastofum og sanmastofum; skósmiðirsöðla- smiðir, gull- og silfursmiðir, úrsmiðir prentarar, bókbind- arar, ljósmyndarar. í II. flokki: þeir sem vinna I bakarium, að seglasaum, netagerð eða gúmmíiðnaöi; húsgagnafóðrar- ar og sútarar. í III. flokki: Þeir sem vinna að niðursuðu, smjörlikisgerí, gosdrykkja- og ölgerð, í klæða- og ullarverk- smiðjum, við fatalitun og hreinsun, gas- og vatnslagn- ingu, uppsetningu á hitaleiðsl- um og skolppípum á reið- hjólaverkstæðum, við rafar- magnslagningu í hús, gasgerð, sápugerð, fiskverkun og fiski- mat, síldarverkun og söltun; bæjarpóster og brjefberar, slátrarar, reykingamenn og járnsmiðir. í IV. flokki. Peir sem vinna í íshúsum og við ísvinnu, í þvottahúsum og á straustofum; múrarar, steinhöggvarar og aðrir sem að húsbyggingum vinna; þeir sem vinna að steinsteypu (steinn og pípur), skipa- og bátasmiðum og viögerðum; trjesmiðir, húsgagnasmiðir, málarar, beykjar, sótarar, blikkksmiðir; þeir sem vinna að járnstej'pu óg í vjelsmiðjum, við rafmagnsframleiðslu oglínu- lagning, lýsisbræðslu, símavið- gerðir og lagningu, uppskipun og útskipun við bryggju og vöruflulninga á landi, (pakk- húsvinnu og uppskipun), vita- störf, hafnargerð, vatnsvirkjun, vegagerð; vitabyggingar, bif- reiðaverkstæði, grjót- og jarð- vinuu, sandtöku, acetylengas- gerð; lögreglu- og tollþjónar. í V. flokki: Þeir sem vinna að upp- og útskipun á bátum og prömm- um, við síldarverksmiðjur eða brúargerð; landpóstar, slökkvi- liðar, hafnsögumenn. Til að geta flokkað fyrirtækin í landinu, hafa verið sendar fyrirspurnir um starfsemina, til allra þeirra, er til greina koma, og mun af svörunum ráðið hver iðgjöld skulu greidd af fyrirtækjunum fyrst í stað. Það er áríðandi fyrir atvinnu- rekendur, engu siður en fyrir Slysatrygginguna, að fyrirspurn- areyðublöðin sjeu greinilega út- fylt og á það sjerstaklega við aðgreiningu hinna ýmsu starfa fyrirtækisins, að hún sje í sem bestu samræmi við liði gjald- skrárinnar. Óljós aðgreining gel- ur haft það í för með sjer, að Slysatrj'ggingin krefjist þess, að vinnuskrár sjeu haldnar eftir hennar fyrirmælum. Nú má vart við því búast, að gjaldskráin sýni svo glögglega takmörk vinnugreinanna, að eigi geti valdið misskilningi, og skulu hjer tekin dæmi, er betur skýra þetta. Ýms fyrirtæki hafa með hönd- um störf, sem eru samtengd en teljast þó til mismunandi flokka

x

Vörður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.