Vörður - 13.03.1926, Page 1
IV. ár.
Reykjavík 13. mars 1926
1 í. blað.
Kæliskip
Mussolini meðal svartliða.
Landvinuingalnigur Mus^olinis.
A pessum vetri hefir Mussolini stigiö siöustu skrefin til fullkomins
einveldis. Hann hefir látið gera sig að forsætisráðherra æfilangt og leysa
sig af allri ábyrgð gagnvart pinginu. Ekkert mál má taka á dagskrá í
pinginu án sampykkis hans og enginn má gefa út blað, nema með leyfi
stjórnarinnar.
Eftir að Mussolini siðustu prjú ár hefir lagt alt kapp á íjárhagslega
viðreisn Ítalíu og orðið mikið ágengt í peim efnum, pá boðar hann nú
nýja stjórnarstefnu — Ítalía á að verða keisaradæmi, eða eins og hann
sjálfur orðar pað, »rómverska keisararikið« á að endurrisa. Og hann
dregur enga dul á, að hið endurrisna keisarariki ætlar sjer ekki að verða
friðsamlegt, fremur en ástæður leyfa. Hann kveður skýrt að orði um
að pröngt sje um ítali heima fyrir og að peir eigi rjett á nýjum land-
námum. Er sagt að hann haii auga á landspildum bæði í Litlu Asíu og
á norðurströnd Afriku.
Blaðamenn hans og stjórnmálarithöfundar hata gert ljósa grein fyrir
hinum nýju hugsjónum fascista. Einn liinn pektasli peirra, Francesco Co-
ppola, segir í grein í Tríbmia: »Þegar vjer ítalir töluin um ítalskt keisara-
riki, pá eigum við fyrst og fremst við nýlenduriki, ríki sem nái út fyrir
Evrópu«. Hann dvelur við hina öru fólksfjölgun i Ítalíu, atvinnuleysið,
skort landsins á mikilsvarðandi hráefnum (kolum og jarni) og telur pær
nýlendur, sem ítalir nú eiga, fátækar að gæðum og ónógar. Ef Ítalía eigi
ekki að horfa fram á hnignun og vandræði, pá verði hún að eignast ný-
lendur, miklar og auðugar að hráefnum. »Vilja Bandamenn gefa Ítalíu á
friðsamlegan hátt pað sem hún parfnast«? spyr hann og bætir við, að
ef peir vilji pað ekki, pá taki peir á sig hina pungu ábyrgð.
Bretar virðast fúsir á að styðja Ítalíu til nýlenduaukninga. Þeim virðist
sú tilhugsun ekki óljúf, að við hlið Frakklands verði annað jafnsterkt stór-
veldi á meginlandi Evrópu — og i vináttusambandi og pakkarskuld við
England.
Þeir munu verða æði margir
í sveitum landsins, sem gleðjast
yfir þvi hagkvæma samkomu-
lagi, sem Magnúsi Guðmunds-
syni atvinnumálaráðherra hefir
tekist að ná við stjórn Eim-
skipafjelagsins um byggingu
kæliskips, og kemur fram í frv.
því, sem prentað er á öðrum
stað í blaðinu og landbúnaðar-
nefnd Nd. tók til flutnings fyrir
ráðherrann. Þar með er þetta
mál komið á rjetta braut. Skip-
ið verður í förum alt árið eftir
fastri áætlun, afnotin frjáls fyr-
ir alla jafnt til útflutnings á
hverskonar nýjum matvælum til
markaðs i Englandi og öðrum
nágrannalöndum. Vjer lifum svo
að segja eingöngu á því að
framleiða matvörur handa öðr-
um þjóðum, en höfum hingað
til ekki haft aðstöðutil að koma
neinu nýmeti á erlendan mark-
að, sem þó ætti að vera mögu-
legt eftir legu lands vors. Skip-
ið á að verða hið myndarleg-
asta, stærð og ytra útlit og
ganghraði að öllu sem Goðafoss,
rúm fyrir 20 farþega á 1. og 20
á 2. farrými. Lestarúm skipsins
verður fult svo mikið sem á
Goðafossi, og má nota meira
eða minna af því fyrir kæli-
flutning eftir vild. Einnig verö-
ur skipið sjerstaklega hentugt
til flutninga á lifandi peningi, t.
d. sauðfje.
Þess er fastlega að vænta að
framtakssemi einstakra manna og
tjelaga í landinu láli ekki á sjer
standa um notkun þeirra mögu-
le>ka, sem skipið býður þegar
Það er fengið. Það er margt
íleira Pn kjötið í sláturstíðinni
sem hjer getur komið til greina.
Veið á nýju kjöti og fleiru ný-
meti er á ýmsum tímum árs
svo hátt í nágrannalöndunum, að
liklega mundi vel borga sig að
breyta lil um framleiðsluaðferð-
ir að einhverju leyti til þess að
hagnýta sjer þetta háa verð.
Alt slikt er hægt að reyna fyrst
f smáum stíl og færa sig svo
upp á skaftið eftir því sem
reyuslan vísar til, þegar föst á-
ætlun um kæliskipsferðir alt
árið liggur fyrir.
Menn höfðu i rauninni búist
v’ð miklu meiri útlátum en
3^0 þús. kr. úr ríkissjóði til
úrlausnar þessa nauðsynjamáls,
jafnvel komið til tals að ríkis-
sjóður bygði skip í þessu skyni
seni kosta mundi á 2. milj. kr.
Og þá var þó enn óráðinn
vandinn um útgerð og nolkun
skipsins þá tíma árs, sem ekki
er þörf fyrir sjerstakt kæliskip.
Ur þessu er nú ráðið á öldungis
eðlilegan hált, og um leið bætt
úr skipsþörf Eimskipafjelagsins
- bili, og þar með úr þörf
landsraanna fyrir auknar sam-
göngur bæði til úllanda og milli
hafna innanlands.
Málið hefir fengið mjög góðar
undirtektir í þinginu, en þó
reyndi Framsóknarflokkurinn í
Nd. allur, að undanskildum
Klemens Jónssyni, að koma
málinu fyrir kattarnef með
ísmeygilegum fleyg. Samgöngu-
málanefnd deildarinnar hafði
tekið við áliti milliþinganefndar,
sem sett var í fyrra, um aukn-
ingu strandferða. Hún var búin
að athuga þær og hafði ekki
treyst sjer til að fara fram á
að bygt yrði nýtt strandierða-
skip að svo stöddu, heldur bar
hún fram tillögu til þingsálykt-
unar um að tekið yröi á leigu
skip til strandferða yfir haust-
mánuðina, þegar mest vantar á
að Esjan geti fullnægt öllum
þörfum. Þetta var Nd. búin að
samþykkja og afgreiða til Ed.
þegar kæliskipsmálið kom fram,
alveg ágreiningslaust. En við 2.
umræðu kæliskipsins bar Sveinn
í Firði (sem sjálfur á sæti í
samgöngumálanefnd, og var því
meðal flutningsmanna þeirrar
tillögu um leiguskip, sem búið
var að samþykkja) fram breyt-
ingartiliögu þess efnis, að áður
en ráðist yröi í framlag til
kæliskipsins skyldi rikissjóður
byggja strandferðaskip fyrir
»alt að 400 þús. kr.«. —
Upplýst var að skipið mundi
ekki kosta minna en 500 þús.
kr. Auðvitað var þetta alveg
nýtt mál, kæliskipinu óviðkom-
andi. íhaldsmennirnir og Kl. J.
tjáðu sig ekki geta gr'eitt tillög-
unni atkvæði af fjárhagsástæð-
um, og fjell hún svo með 14 á
móti 13 atkv. Ef hún hefði náð
samþykki voru forlög kæliskips-
ins mjög í tvísýnn, því að það
mun vera fastur ásetningur
meiri hluta þingsins að reyna
að halda fjárhagnuin i horfinu
á þeim krepputíma, sem nú
virðist vera i garð genginn.
Ýmsum getum er að því leitt,
hvað þeim hafi gengið til, sem
fleyginn smiðnðu. Að þeir sjeu
því mótfallnir, að landið fái
kæliskip, kemur engum til hug-
ar. Hins er geliö til, að þeim
muni vera ógeðfelt að íhalds-
stjórnin beri gæfu til að ráða
fram úr svo mikilsverðu vanda-
máli, sumum hverjum. Og menn
vita að brjóst forkólfanna ern
harmi þrungin yfir þvi, að skip-
ið verður öllum jafnt til afnota
og engum tengslum bundið við
neina samábyrgðar-einokun.
Tryggvi SYeinbjörnsson
Enn hefir íslendingi hlotnast sú
sæmd, að sjónleikur eftir hann hefir
verið sýndur á konungl. leikhúsinu
í Raupmannahöfn. »Regnið« eftir
Trj'ggva Sveinbjörnsson var Jeikið
par í fyrsta sinni 17. f. m. T. Sv.
er liðlega þrítugur maður, svarf-
dælskur að ætt. Hann tók stúdents-
próf hjer 1914, hefir síðan dvalið
í Danmörku og er nú ritari á ís-
lensku seudiherraskrifstofuuni í
Khöfn. Iiann hefir áður gefið út
sjónleikinn »Myrkur«.
Tryggvi Sveinbjörnsson.
Ummæli danskra blaða um
»Regnið« eru j'firleitt miður lofsam-
leg. Hlýlegast ritar Sven Lange í
Politiken. Bendir hann á að leikur-
inn sje viðvaningslega saminn, en
viðurkennir að hann hafi innra
gildi, sálarlifslýsingarnar sjeu sann-
ar, samtölin eðlileg og lifandi. »Han
er vislnok Digter«, skrifar Lange
um höf. verksins.
Strangari er Julius Clausen í Berl.
Tidende. Hann segir að höf. virðist
hafa viljað segja eitthvað fallegt,
en hafi bersýnilega ekki nema á
stöku stað haft liæfileika og vald
til pess að varpa ljósi ylir pær til-
finningar mannshjartans, sem hann
vildi skýra. Leiksagan sje missmiði,
viðvaningsbragur á mörgum atrið-
um, sjerstaklega vanli pau samstill-
ingu (Koncentration). »í sjónleik
má helst ekkert tilsvar vera tilvilj-
un, pó að svo líti út — alt verður
að miða að eirihverju, segja eitt-
hvað; en í þessum leik var sannar-
lega ot mikið af ómerkilegu masi
um ekkert og af altof langdregnum
alriðum . . . Sem sjónleikur var
verkið fult af áberandi göllum og
pess vegna ekki gott. Og pó var í
pví undirstraumur skáldlegrar til-
finningar — sem kliðaði eins og
lítil lind undir yfirborði verksins«.
Lange og Ciausen eru sammála
um að leikurinn hafi ekki verið
sem besl leikinn — og m& vera að
pví sje að nokkru ieyti um að
kenna, live daufar viðtökur hann
liefir fengið.
Konungskoman. Svo sem frá
hefir verið skýrt hjer í blaðinu,
koma konungshjónin hingaðl2.
júní í vor. Fara þau vestur 15.
júni, en munu ætla að bregða
sjer hjeðan upp í sveitir efveð-
ur verður gott. Konungur held-
ur ríkisráð áður en hann ferúr
Reykjavík. Til ísafjarðar koma
kouungshjónin 16. júníogdvelja
þar sólarhring, til Akureyrar
koma þau 18. júní og ætla að
fara í Vaglaskóg ef vel viðrar.
Á Seyðisfirði verða þau 21.júní
en halda daginn eftir áleiðis til
Danmerkur. — Jón Sveinbjörns-
son konungsritari verður í för-
inni og nokkrir danskir hirð-
menn.
Síra Ragnar Kvaran og frú
hans komu hingað um síðustu
helgi frá Vesturheimi og dvelja
hjer fram á sun ar. Svo sem
kunnugt er hefir R. K. þjónað
öðrum íslenska söfnuðiuum í
Winnipeg síðustu 4 ár og er
ráðinn til þess að þjóna honum
enn um tveggja ára skeið.
Landsmálafjelagið »Vörður« hjelt
fund um fyrri helgí, sem varð
bæði fjölsóltur og ijörugur. Jón
Porláksson fjármálaráðherra flulti
erindi um stefnur í stjórnmál-
um. Mun það bráðlega birtast
á prenti og skal efni þess
ekki rakið hjer að þessu sinni.
Miklar umræður urðu á eftir
og stóð fundurinn fram yíir
miðnætti.
Þórarinn Guðmundsson efndi til
kirkjuhljómleika á fimtudag með
aðstoð Eggerts Gilfers, Simonar
Pórðarsonar og Axel Wolds.
Skemtnnin þótti hin besta. Fiðlu-
leikur Þórarins er altaf friskur
og djarfur, ungur og hressandi
blær yfir lónum hans.
Hljómsveit Reykjavíkur efndi til
hljómleika á sunnudaginn með
aðstoð frú Guðrnnar Sveinsdóttur.
Frúin hefir hljómþýða og við-
kunnanlega rödd og fór vel með
lög og teksta. Af viðfangsefnum
hljómsveitarinnar tókst »L’Arlé-
sienne« best, það var suðrænt
sólskin yfir hinum ljettstíga og
töfrandi leik tónanna. Mestskorti
á að hljómsveitin gæti ráðið við
»Finnlandia«, þar vantaði lil-
finnanlega fleiri blásturshljóð-
færi.
Rýskt smyglaraskip var lekið
af varðskipinu »Fylla« suður í
Vogurn á mánudag og flutt til
R-ykjavíkur. Höfðu menn áður
farið á iand úr því og þótti för
þeirra grunsamleg. Skipið reynd-
ist að vera hlaðið áfengi, mest
rommi. Einn íslendingur var á
því, Jón Jónsson fyrv. bryti á
Esju. Játaði hann sig eiganda
að nokkrum hluta farmsins, en
kvaðst hafa tekið að sjer að
sjá um sölu á hinu áfenginu.
Síra Halldór Bjarnarson á Prest-
hólum hefir fengið lausn frá
embætti.