Vörður


Vörður - 20.03.1926, Side 1

Vörður - 20.03.1926, Side 1
! Ritstjóri ,og ábyrgð- .arrnaður'' Kristján Alúórtsoii T/ingötu J8._ Afgreiðslu- og inn- heimtumaður Ásgeir Magnússon ' kennavi/ ______S IV. ár. Reykjavik 20. mars l 926 13. biað. Kaupdeilur. Eins og frá var skýrt hjer í blaðinu 27. f. m. hafa útgerðar- menn inarga undanfarna mán- uði verið að reyna að ná samn- ingum við verkam.fjel. Dagsbrún og verkakvennafél. »Framsókn« um lækkun á kaupi eyrarvinnu- manna og verkakvenna. Enn hafa engir samningar náðst, en þó hafa þau tíðindi gerst, er í frásögur eru færandi. Fyrir nokkru var svo komið samningaumleitunum við »Fram- sókn«, að samninganefnd þess fjelags hafði boðist til að semja um 82 aura tímakaup, en það hafði áður verið 90 aurar, og hlutfallslega lækkun á annari samningsvinnu. Útgerðarmenn viídu eigi ganga að þessu boði. Bentu þeir á, að ef kaupið ætti að samsvara kaupinu fyrir stríðið, þá ætti það samkvæmt dýrtíð- inni að vera um 50 aurar, en samkvæml afurðaverðinu að eins 35 aurar. Samt buðu útgerðarm. 80 aura kaup, og svo mun hafa farið, að samninganefnd verka- kvenna sá að hjer var um kosta- boð að ra^ða, og mælti með því við verkakonur, að það yrði sainþykt. Er ekki að efa, að kon- ur myudu hafa gengið að því boði, ef þeir hefðu verið ein- ráðar. En svo var eigi. Því er kom til fundar-ákvörðunar í fjelaginu »Framsókn«, mættu þar tveir helstu æsingamenn úr Kom- múnistahóp, þeir Ólajur Frið- riksson og Bjðrn Blöndal, oghöíðu í hótunum við verkakonur, ef þær gengju að slíkum boðum. Báru þeir hærri hlut frá borði í orðasennu við lítt herskáar konur og spiltu samkomulagi. Bjeðu þeir því síðan, að konur auglýstu taxta og skyldi nú tíma- kaupið vera 85 aurar, eða 3 aurum hærra en konur höfðu boðist til að staðfesta með samn- ingi og 5 aurura hærra en samn- inganefnd kvenna mælli með. Auglýsingu þessari svöruðu útgerðarm. með því, að bjóða kvennfólki vinnu fyrir 80 aura tímakaup, og fengu þegar í stað nóg fólk. En er æsingameun- irnir sáu það, geiðu þeir atför að verkakonum og skipuðu þeim að hætta vinnu. Höfðu þeir í hótunum, og kváðust mundu sjá um, að þær konur er ó- hlýðnuðust valdboði þeirra, skyldu verða atvinnuiausar að e>bfu, þvi þeir mundu neita að semja við atvinnurekendur nema með þeim skilmálum, að þær yrðu reknar úr vinnu. Að vonum ljetu sumar konur uudan siga fyrir hótunum æs- lngamannanna, en þó voru þær e,g> allfáar, sem ljetu sig hvergi. Sáu nú öfgaraennirnir sitt ó- vænna, og að cigi mælti við svo búið standa. þeir fólu þvi málið Alþýðu- sambandi íslands, en þá tók eigi betra við. Alþýðusambandið tilkynti þegar í stað útgerðar- mannafjelaginu, að ákveðið væri að slöðva vinnu við uppskipun fiskjar úr togurunum, þangað til konur fengju goldið það kaup, sem þær höfðu auglýst. það er vert að íhuga, hvað gerst hefir. í haust þegar vísitalan var 279, verður það að samkomu- lagi milli form. Alþ.samb. ísl., Jóns Baldvinssonar, og form. Dagsbrúnar, Magnúsor Jóhannes- sonar annarsvegar, en samninga- nefndar útgeröarmanna hins- vegar, að tímakaup verkamanna skuli vera kr. 1,25. Fjelagið Dagsbrún hafnaði þessu sam- kþmulagi fyrir undirróður æs- ingamanna. Nú er vísitalan 261. Eyrarvinnukaup ætti samkvæmt henni að vera 91 eyrir, en sam- kvæmt afurðaverði 53 aurar, en er 140 aurar, og hafa eyrar- vinnumenn hjer 'í bæ aldrei átt við svo góð kjör að búa. — þessum mönnum skipa nú Jón Baldvinsson, Hjeðinn Valdi- marsson og hinir forkólfarnir að hefja verkfall, til þess að reyna að þröngva útgerðarmönn- um til að gjalda kvennfólkinu það kaup, sem Björn Blöndal og Ól. Fr. hafa skipað því að heimta, kaup sem kvenfólkið sjálft alls ekki fer fram á, vegna þess a5 það skilur, að útgerðin getur ekki greitt það, og finnur að 80 aurar nú er hœrra kaup en 90 í fyrra. Hjer er greinlegt hvert stefnir. Óbilgirnin hefir aldrei náð slíku hámarki hjá forkólfuuum. Nú um .háverlíðina hefja þeir stríð á slíkum grundvelli. þarf engan að undra þó að útgerðannenn standi þjelt saman og láti sig hvergi. Nokkrir togarar hafa komið inn síðan verkfallið hófst. Hafa þeir ekki fengið afgreiðslu hjer. Fóru spmir vestur og voru af- greiddir þar þrátt fyrir bann forkólfanna reykvísku, en aðrir fóru til Hafnarfjarðar. Sem vita mátti, reyndi Alþ.- sambandið að stöðva afgreiöslu þeirra, og svo fór að þrátt fyr- ir mótmæli aðalalþýðuforingjans í Hafnarfirði, þess mannsins sem sagt er að verkafólkið trúi og treysti á, tókst æsingamönn- unum hjeðan að fá sijórnir verkalýðsfjelaganna í Hafnarfirði til að samþykkja, að ekki mætti afgreiða togarana þar. þegar hjer var komið sögu lágu 2 togarar og biðu afgreiðslu í Hafnarfirði. Og er sljórnar- samþvktin hafði verið gerð, fóru þeir Hjeðinn og Björn Blöndal niður að skipunum og tilkyntu verkamönnum, að nú gætu þeir farið heim, því bann væri við afgreiðslu togaranna. En nú var þolinmæði Hafnfirðinga lok- ið. Lustu verkamenn upp ópi, kváðu gestina ábyrgðarlausa æsingamenn, er skyldu hafa sig í brott hið bráðasta eða hafa verra af. Skifti nú engum tog- um aö bíllinn brunaði með hina sigruðu foringja heim til reyk- víksku átthaganna, en Hafnfirð- ingar losuðu skipin í friöi. Er þetta vottur um sjálfstæði Hafnfirðinga og þeim til hins mesta sóma. Hjer í Reykjavík er nú stöðv- uð öll hafnarvinna fyrir útgerð- ina. Er ekki að vita hve lengi það ástand helst, en fyrir gæti komið að verkamenn Reykja- víkur gerðu foringjunum sömu skil og Hafnfirðingar, rækju á flótta hina ábyrgðarlausu æs- iugamenn, sem með óbilgirni sinni hafa nú svift verkafólk mikilli vinuu og reynt að stöðva framleiðsluna um hávertíðina og baka þar meö þjóðarbúinu stórtjón. Mannskaðar i Grindavik. það- an er símað 15. þ. m.: í gær- morgun reru nokkrir bátar. Veður var gott, en mikið brim. Fjórir bátar lentu nálægt þor- kötlustöðum. Einn báturinn fórst í lendingu. Voru á honura ellefu menn og druknuðn niu þeirra: 1. Guðjón Magnússon, bóndi i Baldursbaga. 2. Guðbrandur Jónsson, Nesi, lausamaður. 3. Guðm. Sigurðsson, frá Helli, Holtum, lausamaður. 4. Hallgrímur Benediklsson, Ivirkjubæjarklaustri, lausam. 5. Lárus Jónsson Hraungerði, Grindavik, vinnumaður. 6. Stefán Halldór Egjólfsson, lausamaður, Hólmavík. 7. Sveinn Ingvarsson, Holti, Grindavík, bóndi. 8. Guðm. Guðmundsson, Núpi Dalsmýri, bóndi. 9. Erlendur Gíslason, Vík, Grindavik, vinnumaður. þessir björguðust: Guðm. Kristjánsson, Lundi, Grindavík, bóndi. Valdimar Stefánsson, Lang- stöðum, Iiraungerðishreppi, Flóa. Mönnum þessum bjargaði Guðmundur Erlendsson Grund, Grindavík, og varð hann að ryðja mestu af fiskinum úr bátnum, til þess að geta bjarg- að þeim. Skipið rak í gær og voru 2 lík í þvi, flækt í línu. Tvö blöð af Verði koma út í dag. ?-T? wML - lEx-Sjíríi ■>- 1 2} Hús Þjóöbandalagsins í Genf. Erjur innan Pjóöabandala^sins. Þeir sem bjuggust við aö meö Locarnosamningnum myndi hefjast nýtt tímabil trausts og friðsamlegrar samvinnu milli Evrópu-þjóöanna, virðast lljótt ætla aö verða vonsviknir. Nú þegar, nokkrum mánuðum eftir sam- ingsgeröina, virðist gamli þjóðarígurinn aftur í algleymingi og Evi'ópa vera að greinast að nýju i ríkjasambönd, sem lita hvort annað augum lortrygni og jafnvel fjandskapar. Pegar Locarno samningurinn var ; gerður, var það ráðgert að þýska- iand skyldi leita upptöku i þjóða- bandalagið og fá fastan fuiltrúa í ráðinu. Svo sem kunnugt er kemur þing bandalagsins sarnan einu sinni á ári, og sækja það fulitrúar allra þjóða, sem i þvi eru. En þess á milli stjórnar ráðið, sem hefir að- setur i Genf og heldur slööugt fundi. Ráðið skipa 10 fulitrúar. Af þeitn eiga fjórir fast sæti i því (frá England', Frakkiandi, Ítalíu og Japan), en 6 eru kosnir af þinginu og eru þeir sem stendur frá Belgiu, Spáni, Sviþjóö, Tjekko-Slóvakíu, Bra- siliu og Uruguay. Páu ríki, sem stóðu að Locarno- samningunum, höföu heitið að styðja að þvi, að Pýskaland fengi fastan fulltrúa í ráðinu. En þegar fram í janúar kom, kröfðust Pól- land, Spánn og Brasilía, að þeim væri jafn hátt undir höfði gert sem Pýskalandi. Krafa Póllands, sem er studd af Frakklandi, hefir valdið miklum deilum og mestu vandræðum. Ef Pólland fær fastan fulllrúa i ráðiuu um leið og Pýskatand, þá verða áhrif Frakka ótireytt frá því sem nú er, því Pólverjar eru þeim liáðir á ýmsa lund og vísir til að styrkja þá að hverju máli. Frönsku blöðin hafa óspart látið þá skoðun í ljósi, í sambandi við kröfu Póllands, að Pjóð- dr. Luther, þýski ríkskanslarinn. verjum sje ekki treystandi, að ekki veiti af að styrkja samheldni nágranna þeirra, að hindra veröi að þeir gerist of miklir fyrir sér að nýju o. s. frv. 1 öllum þvítíkum ummæl- um felst ótrú á þá, að Locarno- samningurinn einn veiti næga trygg- ingu fyrir samlyndi og framtíðarfriði — ótrú á gildi þess verks, sem átti að fyrirbyggja það, að Evrópa skift- ist aö nýju í tjandsamleg ríkjasatn- bönd. Ráðið á sjálft að leggja samþykki á, að ný ríki fái fulltrúa í því, og verður samþyktin að vera einróma. En i siðasta máuuði tilkynti Svíþjóð aö lulltrúi þess myndi greiða at- kvæði gegn þvi að ný ríki önnur en Pýskáland fengju fulltrúasæti í ráðinu og ensku blöðin tóku ein- dregið í sama streng. Noregur Danmörk, Holla.nd og Sviss kváðust og samþykk yfirlýsingu Svía. Hinsvegar liótuðu frönsk blöð að Frakkland myndi beita sjer gegn upptöku þýsks fulltrúa i ráðið, nema að pólskur fulllrúi fengi samtímis sæti í því. Pjóðbandalagsþingið kom saman i Genf 8. þ. m. 48 riki sendu fulltrúa. 6 íorsætisráðherrar og 14 utanrikisráðherrar sóttu þingið, þar á meðal Pjóðverjarnir dr. Luther og Stresemánn, ennfremur Briand og Chamberlain. í byrjun fundarins kvisaðist út að Pólland hefði í hótunum um að ganga úr þjóðaband daginu, ef kröfu þess yrði synjað. Síðan hafa skeyti hermt, að miklar erjur hafi risið i Genf út af þessum málum, og nú sið- ast að Brasilia hafi krafist þess skiiyrðislaust að fá fastan fulltrúa í ráð- inu og að öðrum kosti hótað að neita að leggja samþykki á að Pjóðverjar fái fulltrúa þar. Ettir þetta var inntöku Pýskalands í Pjódabandalagið frestað þangað til i haust. Siðasta skeyti hermir, að ríki þau er undirskrifuðu Locarno-samning- inn, hafi gefið út yfirlýsingu um, að þessi atburður skuli enginn áhrif hafa á samninginn nje þann anda, sem haun er af getinn.

x

Vörður

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.