Vörður - 20.03.1926, Síða 1
! Ritstjóri ,og ábyrgð-
.arrnaður''
Kristján Alúórtsoii
T/ingötu J8._
Afgreiðslu- og inn-
heimtumaður
Ásgeir Magnússon
' kennavi/
______S
IV. ár.
Reykjavik 20. mars l 926
13. biað.
Kaupdeilur.
Eins og frá var skýrt hjer í
blaðinu 27. f. m. hafa útgerðar-
menn inarga undanfarna mán-
uði verið að reyna að ná samn-
ingum við verkam.fjel. Dagsbrún
og verkakvennafél. »Framsókn«
um lækkun á kaupi eyrarvinnu-
manna og verkakvenna.
Enn hafa engir samningar
náðst, en þó hafa þau tíðindi
gerst, er í frásögur eru færandi.
Fyrir nokkru var svo komið
samningaumleitunum við »Fram-
sókn«, að samninganefnd þess
fjelags hafði boðist til að semja
um 82 aura tímakaup, en það
hafði áður verið 90 aurar, og
hlutfallslega lækkun á annari
samningsvinnu. Útgerðarmenn
viídu eigi ganga að þessu boði.
Bentu þeir á, að ef kaupið ætti
að samsvara kaupinu fyrir stríðið,
þá ætti það samkvæmt dýrtíð-
inni að vera um 50 aurar, en
samkvæml afurðaverðinu að eins
35 aurar. Samt buðu útgerðarm.
80 aura kaup, og svo mun hafa
farið, að samninganefnd verka-
kvenna sá að hjer var um kosta-
boð að ra^ða, og mælti með því
við verkakonur, að það yrði
sainþykt. Er ekki að efa, að kon-
ur myudu hafa gengið að því
boði, ef þeir hefðu verið ein-
ráðar.
En svo var eigi. Því er kom
til fundar-ákvörðunar í fjelaginu
»Framsókn«, mættu þar tveir
helstu æsingamenn úr Kom-
múnistahóp, þeir Ólajur Frið-
riksson og Bjðrn Blöndal, oghöíðu
í hótunum við verkakonur, ef
þær gengju að slíkum boðum.
Báru þeir hærri hlut frá borði
í orðasennu við lítt herskáar
konur og spiltu samkomulagi.
Bjeðu þeir því síðan, að konur
auglýstu taxta og skyldi nú tíma-
kaupið vera 85 aurar, eða 3
aurum hærra en konur höfðu
boðist til að staðfesta með samn-
ingi og 5 aurura hærra en samn-
inganefnd kvenna mælli með.
Auglýsingu þessari svöruðu
útgerðarm. með því, að bjóða
kvennfólki vinnu fyrir 80 aura
tímakaup, og fengu þegar í stað
nóg fólk. En er æsingameun-
irnir sáu það, geiðu þeir atför
að verkakonum og skipuðu þeim
að hætta vinnu. Höfðu þeir í
hótunum, og kváðust mundu
sjá um, að þær konur er ó-
hlýðnuðust valdboði þeirra,
skyldu verða atvinnuiausar að
e>bfu, þvi þeir mundu neita að
semja við atvinnurekendur nema
með þeim skilmálum, að þær
yrðu reknar úr vinnu.
Að vonum ljetu sumar konur
uudan siga fyrir hótunum æs-
lngamannanna, en þó voru þær
e,g> allfáar, sem ljetu sig hvergi.
Sáu nú öfgaraennirnir sitt ó-
vænna, og að cigi mælti við svo
búið standa.
þeir fólu þvi málið Alþýðu-
sambandi íslands, en þá tók
eigi betra við. Alþýðusambandið
tilkynti þegar í stað útgerðar-
mannafjelaginu, að ákveðið væri
að slöðva vinnu við uppskipun
fiskjar úr togurunum, þangað
til konur fengju goldið það kaup,
sem þær höfðu auglýst.
það er vert að íhuga, hvað
gerst hefir.
í haust þegar vísitalan var
279, verður það að samkomu-
lagi milli form. Alþ.samb. ísl.,
Jóns Baldvinssonar, og form.
Dagsbrúnar, Magnúsor Jóhannes-
sonar annarsvegar, en samninga-
nefndar útgeröarmanna hins-
vegar, að tímakaup verkamanna
skuli vera kr. 1,25. Fjelagið
Dagsbrún hafnaði þessu sam-
kþmulagi fyrir undirróður æs-
ingamanna. Nú er vísitalan 261.
Eyrarvinnukaup ætti samkvæmt
henni að vera 91 eyrir, en sam-
kvæmt afurðaverði 53 aurar, en
er 140 aurar, og hafa eyrar-
vinnumenn hjer 'í bæ aldrei átt
við svo góð kjör að búa. —
þessum mönnum skipa nú Jón
Baldvinsson, Hjeðinn Valdi-
marsson og hinir forkólfarnir
að hefja verkfall, til þess að
reyna að þröngva útgerðarmönn-
um til að gjalda kvennfólkinu
það kaup, sem Björn Blöndal
og Ól. Fr. hafa skipað því að
heimta, kaup sem kvenfólkið
sjálft alls ekki fer fram á, vegna
þess a5 það skilur, að útgerðin
getur ekki greitt það, og finnur
að 80 aurar nú er hœrra kaup
en 90 í fyrra.
Hjer er greinlegt hvert stefnir.
Óbilgirnin hefir aldrei náð slíku
hámarki hjá forkólfuuum. Nú
um .háverlíðina hefja þeir stríð
á slíkum grundvelli. þarf engan
að undra þó að útgerðannenn
standi þjelt saman og láti sig
hvergi.
Nokkrir togarar hafa komið
inn síðan verkfallið hófst. Hafa
þeir ekki fengið afgreiðslu hjer.
Fóru spmir vestur og voru af-
greiddir þar þrátt fyrir bann
forkólfanna reykvísku, en aðrir
fóru til Hafnarfjarðar.
Sem vita mátti, reyndi Alþ.-
sambandið að stöðva afgreiöslu
þeirra, og svo fór að þrátt fyr-
ir mótmæli aðalalþýðuforingjans
í Hafnarfirði, þess mannsins
sem sagt er að verkafólkið trúi
og treysti á, tókst æsingamönn-
unum hjeðan að fá sijórnir
verkalýðsfjelaganna í Hafnarfirði
til að samþykkja, að ekki mætti
afgreiða togarana þar.
þegar hjer var komið sögu
lágu 2 togarar og biðu afgreiðslu
í Hafnarfirði. Og er sljórnar-
samþvktin hafði verið gerð, fóru
þeir Hjeðinn og Björn Blöndal
niður að skipunum og tilkyntu
verkamönnum, að nú gætu þeir
farið heim, því bann væri við
afgreiðslu togaranna. En nú
var þolinmæði Hafnfirðinga lok-
ið. Lustu verkamenn upp ópi,
kváðu gestina ábyrgðarlausa
æsingamenn, er skyldu hafa sig
í brott hið bráðasta eða hafa
verra af. Skifti nú engum tog-
um aö bíllinn brunaði með hina
sigruðu foringja heim til reyk-
víksku átthaganna, en Hafnfirð-
ingar losuðu skipin í friöi.
Er þetta vottur um sjálfstæði
Hafnfirðinga og þeim til hins
mesta sóma.
Hjer í Reykjavík er nú stöðv-
uð öll hafnarvinna fyrir útgerð-
ina. Er ekki að vita hve lengi
það ástand helst, en fyrir gæti
komið að verkamenn Reykja-
víkur gerðu foringjunum sömu
skil og Hafnfirðingar, rækju á
flótta hina ábyrgðarlausu æs-
iugamenn, sem með óbilgirni
sinni hafa nú svift verkafólk
mikilli vinuu og reynt að stöðva
framleiðsluna um hávertíðina
og baka þar meö þjóðarbúinu
stórtjón.
Mannskaðar i Grindavik. það-
an er símað 15. þ. m.: í gær-
morgun reru nokkrir bátar.
Veður var gott, en mikið brim.
Fjórir bátar lentu nálægt þor-
kötlustöðum. Einn báturinn fórst
í lendingu. Voru á honura ellefu
menn og druknuðn niu þeirra:
1. Guðjón Magnússon, bóndi
i Baldursbaga.
2. Guðbrandur Jónsson, Nesi,
lausamaður.
3. Guðm. Sigurðsson, frá Helli,
Holtum, lausamaður.
4. Hallgrímur Benediklsson,
Ivirkjubæjarklaustri, lausam.
5. Lárus Jónsson Hraungerði,
Grindavik, vinnumaður.
6. Stefán Halldór Egjólfsson,
lausamaður, Hólmavík.
7. Sveinn Ingvarsson, Holti,
Grindavík, bóndi.
8. Guðm. Guðmundsson, Núpi
Dalsmýri, bóndi.
9. Erlendur Gíslason, Vík,
Grindavik, vinnumaður.
þessir björguðust:
Guðm. Kristjánsson, Lundi,
Grindavík, bóndi.
Valdimar Stefánsson, Lang-
stöðum, Iiraungerðishreppi, Flóa.
Mönnum þessum bjargaði
Guðmundur Erlendsson Grund,
Grindavík, og varð hann að
ryðja mestu af fiskinum úr
bátnum, til þess að geta bjarg-
að þeim. Skipið rak í gær og
voru 2 lík í þvi, flækt í línu.
Tvö blöð af Verði koma
út í dag.
?-T? wML
- lEx-Sjíríi ■>- 1
2}
Hús Þjóöbandalagsins í Genf.
Erjur innan Pjóöabandala^sins.
Þeir sem bjuggust við aö meö Locarnosamningnum myndi hefjast nýtt
tímabil trausts og friðsamlegrar samvinnu milli Evrópu-þjóöanna, virðast
lljótt ætla aö verða vonsviknir. Nú þegar, nokkrum mánuðum eftir sam-
ingsgeröina, virðist gamli þjóðarígurinn aftur í algleymingi og Evi'ópa
vera að greinast að nýju i ríkjasambönd, sem lita hvort annað augum
lortrygni og jafnvel fjandskapar.
Pegar Locarno samningurinn var
; gerður, var það ráðgert að þýska-
iand skyldi leita upptöku i þjóða-
bandalagið og fá fastan fuiltrúa í
ráðinu. Svo sem kunnugt er kemur
þing bandalagsins sarnan einu sinni
á ári, og sækja það fulitrúar allra
þjóða, sem i þvi eru. En þess á
milli stjórnar ráðið, sem hefir að-
setur i Genf og heldur slööugt
fundi. Ráðið skipa 10 fulitrúar. Af
þeitn eiga fjórir fast sæti i því (frá
England', Frakkiandi, Ítalíu og
Japan), en 6 eru kosnir af þinginu
og eru þeir sem stendur frá Belgiu,
Spáni, Sviþjóö, Tjekko-Slóvakíu, Bra-
siliu og Uruguay.
Páu ríki, sem stóðu að Locarno-
samningunum, höföu heitið að
styðja að þvi, að Pýskaland fengi
fastan fulltrúa í ráðinu. En þegar
fram í janúar kom, kröfðust Pól-
land, Spánn og Brasilía, að þeim
væri jafn hátt undir höfði gert sem Pýskalandi. Krafa Póllands, sem er
studd af Frakklandi, hefir valdið miklum deilum og mestu vandræðum.
Ef Pólland fær fastan fulllrúa i ráðiuu um leið og Pýskatand, þá verða
áhrif Frakka ótireytt frá því sem nú er, því Pólverjar eru þeim liáðir á
ýmsa lund og vísir til að styrkja þá að hverju máli. Frönsku blöðin hafa
óspart látið þá skoðun í ljósi, í sambandi við kröfu Póllands, að Pjóð-
dr. Luther, þýski ríkskanslarinn.
verjum sje ekki treystandi, að ekki veiti af að styrkja samheldni nágranna
þeirra, að hindra veröi að þeir
gerist of miklir fyrir sér að nýju
o. s. frv. 1 öllum þvítíkum ummæl-
um felst ótrú á þá, að Locarno-
samningurinn einn veiti næga trygg-
ingu fyrir samlyndi og framtíðarfriði
— ótrú á gildi þess verks, sem átti
að fyrirbyggja það, að Evrópa skift-
ist aö nýju í tjandsamleg ríkjasatn-
bönd.
Ráðið á sjálft að leggja samþykki
á, að ný ríki fái fulltrúa í því, og
verður samþyktin að vera einróma.
En i siðasta máuuði tilkynti Svíþjóð
aö lulltrúi þess myndi greiða at-
kvæði gegn þvi að ný ríki önnur
en Pýskáland fengju fulltrúasæti í
ráðinu og ensku blöðin tóku ein-
dregið í sama streng. Noregur
Danmörk, Holla.nd og Sviss kváðust
og samþykk yfirlýsingu Svía.
Hinsvegar liótuðu frönsk blöð að
Frakkland myndi beita sjer gegn
upptöku þýsks fulltrúa i ráðið, nema að pólskur fulllrúi fengi samtímis
sæti í því.
Pjóðbandalagsþingið kom saman i Genf 8. þ. m. 48 riki sendu fulltrúa.
6 íorsætisráðherrar og 14 utanrikisráðherrar sóttu þingið, þar á meðal
Pjóðverjarnir dr. Luther og Stresemánn, ennfremur Briand og Chamberlain.
í byrjun fundarins kvisaðist út að Pólland hefði í hótunum um að
ganga úr þjóðaband daginu, ef kröfu þess yrði synjað. Síðan hafa skeyti
hermt, að miklar erjur hafi risið i Genf út af þessum málum, og nú sið-
ast að Brasilia hafi krafist þess skiiyrðislaust að fá fastan fulltrúa í ráð-
inu og að öðrum kosti hótað að neita að leggja samþykki á að Pjóðverjar
fái fulltrúa þar. Ettir þetta var inntöku Pýskalands í Pjódabandalagið
frestað þangað til i haust.
Siðasta skeyti hermir, að ríki þau er undirskrifuðu Locarno-samning-
inn, hafi gefið út yfirlýsingu um, að þessi atburður skuli enginn áhrif
hafa á samninginn nje þann anda, sem haun er af getinn.