Vörður - 24.04.1926, Qupperneq 2
2
V Ö R Ð U R
♦oooooooooooooooooooooo*
O V Ö K Ð U K kemur út O
á laugardögum
SRitstjórinn: g
O Kristján A/áertsonTúngötu 18. O
o Simi: o
ö 1961- ð
O Afgreiðslan: O
Laufásveg 25. — Opin
g 5—7 siödegis. Sími 1432. 9
O V e r ð : 8 kr. árg. O
8 Gjalddagi 1. júlí. §
O O
♦0000000000000000000000$
Henry Ford
og verkamenn hans.
Fyrirlestnr eftir Stgr. Matthíasson'
Niðurlag.
Hjer skal nú að endingu
skýrt frá einni athugun Fords,
sem vakti furðu mína. Það er
alkunnug og margtuggin setn-
ing, að margt verksmiðjustarfið
sje svo einhæft, að verkamað-
urinn verði eins og hjól eða
ás i sigurverkinu og verði fyrir
það bæði sljógur og andlaus,
en að velvakandi maður hljóti
fljótt að fá andstygð á svo fá-
breyttum verknaði og heimti
tilbreytingu og nýtt og nýtt
starf.
Ford segist sjálfur hafa lengi
hugsað þannig. I*ess vegna hefir
hann gert sjer far um að kom-
ast nær hinu sanna um þetta.
Hann hefir hvað eftir annað
gefið verkamönnunum kost á
að skifta um starf, en það er
að eins sjaldan sem þeir hafa
kært sig um það. Fyrir hefir
komið að menn hafa beöið um
að fá að breyta til, en oftast
hafa þeir sjeð eftir því þegar
þeir einu sinni voru orðnir
vissu starfi vanir.
»Eitthvert einhæfasta starfið
í verksmiöjum mínum«, segir
Ford, »er fólgið í þvl, að mað-
ur tekur upp vjelarhluta með
stálgogg, dýfir honum niður í
„Misskilningsfoksandur"
Margeirs Jónssonar.
Perlur nefndi jeg greinarstúf,
sem birtist í jólablaði Alþýðu-
blaðsins 1925.
Get jeg þar Stuðlamála I að
nokkuru.
Fimtán visur birti jeg, svo að
lesendur biaðsins gætu sjeð, hve
vel höfundar Stuðlamála kváðu.
Visur þessar voru valdar. Vissi
jeg að Ijóðelskum konum og
ljóðrænum mönnum myndi þykja
gaman að Iesa vísurnar og iæra.
Stóð þeim svo opið að eignast
kverið, sem vildu og gátu, til
þess að sjá og heyra meira af
því, sem fallegt var.
Lofsorði lauk jeg á mesta á-
gætið. Læt jeg svo mælt um
einn höfundinn : »Fer víða sam-
an hjá honum besta mál, óbrjál-
uð hugsun, andriki og ágætt
rím«.
Aðra höfunda lofa jeg einnig
og sýni perlur þeirra. Og að
lokum segi jeg: »Hafi þessir
höfundar allir bestu þakkir fyr-
ir alt það, sem þeir hafa vel
kveðið.
Safnanda og útgefanda berað
þakka framkvæmdir. En mest
gagn gera þeir meðþvíað safna
perlum einum og sýna þær«.
trog með olíu og leggur hann
síðan niður i körfu. Það er
engin tilbreyting í hreyfingum
þessa manns — vjelarpartarnir
koma stöðugt aðvifandi til hans
á sama staðinn, hann tekur
hvern af öðrum öldungis á sama
hátt og leggur hann ætið í
körfu sem stendur alt af á sama
stað. Hjer er um enga verulega
vöðvaáreynslu að ræða og and-
leg áreynsla engin heidur. Hann
gerir ekki annað en að hreyfa
hendurnar með hægð fram og
til baka og stálgoggurinn er
laufljettur. Þrátt fyrir þetta hefir
maðurinn sem þetta starfar un-
að vel stöðu sinni í samfleytt
8 ár. Hann hefir lagt upp fje
og á nú 40 þúsund dali á rentu.
í hvert skifti sem honum hefir
verið boðið að fá skemtilegri
atvinnu hefir hann margkrossað
á móti«.
Eftir itarlegustu ranusókn
hefir Ford ekki fundið þess
dæmi að nokkur verkamaður
hafi sljófgast sálarlega við ein-
hæf slörf.
Pegar menn mega sjálfir ráða,
velur mikill meiri hluti hin fá-
breyttustu störfin, þau sem út-
heimta Iitla áreynslu og enga
hugsun þarf við. — »Sjálfur
verð jeg að játa«, segir Ford,
»að mjer væri lifsómögulegt að
vinna hið sama daginn út og
daginn inn, en hitt þori jeg að
fullyrða, að öllum porra manna
er kœrust sú vinnnan, sem er
allra tilbreytingaminst og ekki
regnir á heilann eða hið skap-
andi imyndunaraflv.
Það þarf nú eigi lengra mál
til að sýna hve Ford lætur sjer
ant um verkamenn sina, enda
er mikið af þvi látið vestanhafs
hve þeir eigi viö góð kjör að
búa.
Skyldu þeir þá ekki vera
ánægðir? Það eru auðvitað
margir svo gerðir. að þeir láta
sjaldan óánægju í Ijósi, en gikk-
Vitur maður og góðgjarn,
hrokalaus og athugull myndi
ekki hafa reiðst grein minni.
Hann myndi hvorki hafa
gripið til brigsla nje atyrða.
Hann myndi hafa tekið því með
stillingu, sem jeg sagði stökun-
um til vansa.
Grunnfærnin hefði ekki hrund-
ið honum út á svellið.
Margeir Jónsson fer öðruvísi
að. — Ljettir hann á bjarta sínu
í 16. tbl. Varðar.
Skal nú vikið að því, sem
mestu máli skiftir.
II.
Margeir Jónsson fer býsna
hratt úr hlaöi. Farast honum
svo orð í formála kversins:
»Prátt fyrir það, þó að skáld-
gáfan sje mörgum miðluð, er
ekki alt gull sem glóir«, þegar
litið er á ljóðagerð síðustu ára.
Að meöaltali kemur stundum
út ljóðabók á mánaðarfresti og
eru 'það hrein og bein jökul-
hlaup í skáldskaparelfunni og
þá verður örðugt að sjá til botns
fyrir grugginu. En ljóðstraum-
arnir þurfa að haldast hreinir
og því hefir mjer dottið í hug,
að fengjust skáldmæltustu menn
og konur til að efna til úrvals
safns á Ijóðasviði, mæta þar á
»sameinuðu þingi«, með bestu
og fegurstu kostagripi hagmælsku
ir finnast alstaðar, sem ekki
þegja ef þeim finst eitthvað að.
Mennirnir eru nú svona gerðir,
að það er ekki fyrir Ford frem-
ur en guð almáttugan að gera
svo öllum liki. Börnin heimla
nýtt gull til að leika sjer að.
Ánægjan varir aldrei lengi.
Skáldið segir:
»Hún Gæfa er stássmey
ljett í lundu —
sem lengi’ ei stendur við um kjurt,
hún strýkur hár þitt upp frá enui
og eftir kossinn stekkur burt«.
Pað er ekki von að verka-
menn geti verið ánægðir úr því
jafnvel miljónamæringarnir sjálf-
ir geta ekki orðið það.
Jeg hjó eftir því í skýrslu
um sjálfsmorð í Bandaríkjun-
um, að miljónaeigendur voru
taldir í fremsta flokki þeirra
sem ráða sjer bana. »Enginn
er sæll fyrir sitt endadægur«
sagði Sólon við Krösus hinn
ríka og mun svo vera enn þann
dag í dag.
Skyldi það verða betra á ann-
ari stjörnu?
í ýmsum þjóðsögnum er getið
um að heimurinn hafi verið
miklu betri fyrrum en nú og
að menn yfirleitt hafi þá getað
kallast farsælir. Pær eru eítir-
tektarverðar, og sýna bjartsýni
manna, þessar gömlu sagnir um
gullaldir jafnt í fortlð sem frara-
tíð. Eins og menn hafa trúað
á þúsundárariki velsældar i
framtiðinni, eins hafa menn trú-
að á sæluástand manna fyr á
tímum, eins og l. d. í aldin-
garðinum Eden. í Kína trúa
menn því, að í fyrndinni hafi
á tímabili undir stjórn viturs
konungs drottnað friður og ein-
drægni og að mennirnir hafi
þá lifað i lukkunnar gengi eins
og góðir bræður og systur.
Samskonar sögn er alkunn á
Norðurlöndum. Pegar Fróði
konungur ríkti stóð friður og
velsæld i 50 ár. Pá þektust
sinnar og hugsunar, mundi nást
einskonar »met« í ljóðagerð, sem
aðrir gætu þá kept við — —«
Hjer er rnarkið sett ærið hátt,
og ber ekki að lasta það. —
Þetta hafði jeg fyrir augum,
e? jeg lagði dóm á nokkurar
vísur i safni þessu. Pótti mjer
sjáifsagt, að hámarkið væri galla-
laus staka að efni og formi. Og
ekki var til of mikils mælst,
þótt ein og ein staka næði því
hámarki. —
Aðrar stökur gátu komist ná-
lægt því, og það gera margar
vísur í kverinu.
Hástuðlun er glæsilegasta
stuðlaskipunin, en fallstuðlun
og lágstuðlun eru miður fagrar.
Vegna þessa taldi jeg það Iýti
á visu Matthíasar, að annar
hlutinn var fallstuðlun, en hinn
lágstuðlun.
Vísan náði ekki því hámarki
að vera hástuðluð. Sjeu tvær
vísur jafnar að efni og anda en
önnur fallstuðluð og og hinlág-
stuðluð, ber að taka fallstuðl-
uðu vísuna fram yfir hina.
En hástuðluðu visuna á að
taka fram yfir hinar báðar, að
öðru jöfnu.
Gallalausar stökur að efni og
formi eru ekki á hverju blaði.
Pær eru meiri gersemar en svo.
En þær eru til.
ekki rán eða gripdeildir. »Þá
lá gullhringur á Jalangursheiði
lengi«, segir i Snorra-Eddu og
datt engum í hug að hirða
hann, því einhver hlaut að eiga
hann. Og Fróði var ríkur og
voldugur, en hann var þó ekki
áuægður. Hann keypti sjer tvær
ambáttir, Fenju og Menju, og
Ijet þær mala gull og varð vell-
auðugur og alt ljek í lyndi utn
stund. En brátt vaið Fróði svo
gráðugur í gullið að hann unni
ekki ambáttunum meiri hvíldar
en meðan gaukurinn þagði eða
Ijóð var kveðið. Þá þoldu am-
báttirnar ekki ánauðina lengur,
en gerðu verkfall og hættu að
mala gull. Þetta mun hafa verið
eitt af fyrstu verkföllunum, sem
sögur fara af. En þær ljetu ekki
þar við lenda, heldur tólcu til
sinna ráða og »mólu her at
Fróða«. Kom þá Mýsingur sæ-
konungur með óvígan her,
vann á Fróða og allri hans ætt,
lagði undir sig land og þegna
og tók sjálfur við stjórninni.
Þessi þjóðsaga bendir á, að
heldur ekki í gamla daga hafi
mennirnir verið lengi ánægðir.
Og reynslan hefir ætið sýnt hið
sama, að mikið vill meira.
Pað er trú min að eins muni
verða lengi, að hvorki verka-
menn nje aðrir uni lengi sinum
stundarhag, heldur fæðist ætíð
nýjar kröfur þegar hinum fyrri
er fullnægt. Þetta ereðlimanns-
andans. Guði sje lof vil jeg
segja. Hugur manna unir engri
kyrstöðu, heldur stefnir slöðugt
hærra og hærra. Og þessari
mannsins náttúru eigum vjer,
þegar vel er aðgáð, allar fram-
farir að þakka og alla fram-
þróun. Pað er ætíð varasamt,
að vilja vefengja sannindi gam-
alla sagna. Jeg get vel ímyndað
mjer að oft hafi komið íyrir í
gamla daga meðan mannkynið
var á lágu þroskastigi, að þá
hafi mikill hluti manna unað
Eftirfarandi stökur eru sýnis-
horn gallalausra vísna :
Viljann manar viöur sær.
Vonar leikur gránar;
enginn vegur er mjer fær
yfir kili Ránar.
Guðm. Friðjónsson.
Pó að vanti þenna nið
pjer finst ekki saka,
Engir hjerna utan við
eftir pessu taka.
Porst. Erlingsson.
Sje jeg þú við sólu ber,
seta mun ei boðin,
mikið dekur mannsins er
með hin nýju goðin.
Matth. Jochumsson.
Allar þessar stökur eru há-
stuðlaðar, endarím svo nákvæmt,
að lengra verður ekki komist,
engar áherðsluskekkjur, engin
mállýti, efni gott og bugsun ó-
brjáluð. Hjer getur að líta há-
mark rímsnildar.
Pvf meiri sem innri skáldfeg-
urð vísunnar er, þess fremur
skyldi búning vanda.
Pær munu vera teljandi fer-
hendur góðskálda vorra, sem
gallalausar eru. Og fsr það að
vonum, þvi að markið er hátt,
og skáldin eru takmörkun háð
eins og aðrir menn.
Miðlungsmenn ná ekki því
hámarki, sem sum þeirra ná,
að láta anda, efni og rím fara
saman í stöku, svo að lýtalaus
verði.
vel hag sinum og getað talisí
nokkurnveginn ánægðir, þar eð
þeir voru svo að segja sofnaðir
í værð kyrstöðunnar, svo þeir
gátu vart hugsað sjer annað
betra. En það var að þakka því,
að þá höfðu þeir ekki enn feng-
ið að bíta nóg í ávexti skiln-
ingstrjesins. Pá lifðu þeir svip-
uðu sælunnar ástandi og skyn-
litlar skepnur lifa enn þann dag
í dag, ef þær hafa nóg að borða,
(en það getur orkað tvimælis
hve sú sæla er mikiis virði).
Pá á timum stóðu kröfurnar
ekki hærra. En það ástand stóð
ekki lengi sem betur fór. Peir
urðu smám satnan sólgnari og
sólgnari í ávexti skilningstrjes-
ins. »En hver sem eykur sína
þekking, hann eykur sína þján-
ing«! Exelsior I Hærra ! Hærra E
var viðkvæðið og sama við-
kvæðið hljómar erm og mun
stöðugt hljóma hærra og hærra
í hugskoti allra manna. Ánægj-
an er góð og henni viljum við
stöðugt ksppkosta að ná, í nýrri
og nýrri mynd, en óánægjan er
einnig nauðsynleg til þess að
við getum stefnt hærra og bærra.
Bókmentafjelagið,
Skírnir 100 ára.
Nú á að fara að prenta árs-
rit bókmentatjelagsins fyrir þetta
ár. Pau verða að sjálfsögðu sitt
heftið af hverju þeirra verka
sumra, sem fjelagiö er að koma
út, nefnilega 3. hefti tólfta bind-
is af Fornbrjefasafninu fræga, 5.
heftið af Annálunnm, lokahefti
af þriðja hefti íslendinga-sögu
Boga Melsteðs, og svo 100. ár-
gangnrinn af gamla Skirni, ju-
bil- árgangur, sem ritstjóranum,
Árna bókaverði PáLsyni, tekst
óefað að gera úr garði á viðeig-
andi hátt. — Skírnir mun vera
Jón S. Bergmann og Ólína
Andrjesdóttir eru þeir höfundar
Stuðlamála, ssm næst komast
þessu hátt setta marki. Og sum-
ir munu það mæla, að þau hafi
fyllilega náð þvi i tveim stök-
um, sem jeg birti eftir þau í
Perlum.
Nokkurir hiuna hafa komist
í námunda við þaö.
III.
Margeiri Jónssyni þykir jeg
setja markið of hátt og dæma
stökur Stuðlamála of hart. Virð-
ist hann þá gleyma hirium fagra
og háleita ásetningi, sem feist í
formálaorðum hans, vúrvalssafn
á íjóðasviði, bestu og fegurstu
kostagripi hagmœlsku og hugs-
unar og y>metinu«.\ —
Páð er nokkuð bátt fali ofan
af þessum siguihæðum og nið-
ur að visunni hans Andrjesar:
»Pað er fúlt í flöskunni
»fordjerfaður« andskoti,
hentu henni ofan í helvíti I
Hana, taktu við /ienni/«
Margeir virðist ekki vera eins
glöggskygn á »gruggið« í Stuðla-
málum og í ljóðabókunum, sem
hann drepur á í formála sínum.
Pegar Stuðlamálavisurnar ná
ekki hámarki, »metinu«, finnur
Margeir þá afsökun, að óþektur
mælikvarði hafii verið lagður á
stökurnar. Petta er sagt án at-
hugunar.