Vörður


Vörður - 01.05.1926, Síða 1

Vörður - 01.05.1926, Síða 1
Rltstjóri og ábyrgð .arnjaður'' (_ Kristján AfÉéftfflj 'TjirigöfuCf d.. Ifc—------------------ð) VORÐUR Útg-efaudi : Miöstjórn íhaldsflokksins. IV. ár. . Reykjavík j. maí 1926. 19. blað. „Stóruílineykslin“. LoítfariO „Norgeí4? sem Amundsen ætlar að fljúga í til Norðurpólsins í þessum mánuöi, er smíðað í Ítalíu og var áð- ur ríkiseign og notuð í þjónustu hersins. Massolini afhenti sjálfur Amundsen loflfarið hátíðlega og árnaði honum heilla á norðurförinni. Myndin er tekin í Pulham, rjett hjá Loudon, þar sem »Norge« kom við á leiðinni til Oslo. í*aðan tók það krók á leið sína til Leningrad, en flaug í gær áleiðis til Spitsbergen. Er Amund- sen þangað kominn sjóleiðis, til þess að undirbúa förina til Pólsins. Svo sem einu sinni á missiri (minst) ærir Timinn sig upp út af imynduðum stórkostlegum hneykslismálum, sem ríða eiga virðingu íhaldsflokksins að fullu. Blaðið flytur nokkrar feitletrað- ar og fjálgar greinar um alla »spillinguna« og »svívirðuna«, bölsótast og bannfærir og hróp- ar hástöfum á reiði þjóðarinnar yfir hina seku — uns það átt- ar sig á því, að enginn tekur mark á öllum látuin þess, að loddarabátturinn kemur því i koll sjáifu og engum öðrum — þá bjaðnar alt niður og steingleymist. En illa væri ís- lenska þjóðin komin, ef alt væri heilagur sannleikur, sem Timinn segir við slík tækifæri. Mönnum mun til dæmis í fersku rninni árásirnar á Morgun- blaðið. Meðal þeirra manna, sem áttu hlntabrjef í því, voru nokkr- ir kaupmenn hjer í bæ danskir að ætt — alt menn, sem ekk- ert hafa látið til sín taka í ís- lenskum stjórnmálum og engra hagsmuna hafa að gseta, ann- ara en sameiginlegra hagsmuna íslenskra kaupmanna. En þessa ályílu notaöi Timinn til þess að setja saman ógurlegan reyfara um »danska valdið«, sem stæði að baki stærsta íhaldsblaðs á ís- landi, — um Bessastaðavaldið illræmda, sem nú væri risið úr gröf sinni og legði aftur hramma sína nm frelsi og gæfu íslensku þjóðarinnar! Á síðastliðnu sumri gaf Tím- inn i skyn i gífurmæltri feitletr- aðri forustugrein, að mútur frá eriendum og íunlendum stór- gróðamönnum hefðu ráðið því, að lagðar voru niður einkasöl- urnar á tóbaki og steinolíu. Hvílíkt regin — hneyksli — ef satt hefði verið! Vörður krafðist þess þá, að Timinn tæki skýrar til orða og legði spilin á borð- ið. Það var nóg til þess að blaðið mintist ekki framar einu orði á þúsundirnar, sem ame- riski steinolíuhringurinn hafði átt að borga fyrir afnám einka- sölunnar. Vörður eggjaði Timann lögeggjan — helti sjer yflr hann, reyndi með góðu og illu að fá hann til að tala tvímælalaust og íletla ofan af hneykslinu. En það var ekki nærri því kom- andi. Blaðið forðaðist eins og heitan eldinn að minnast fram- á múturnar. Nú er enn eitt »stórhneyksl- ið« á ferðinni í Timanum. Bæj- arfógetinn i Reykjavík hefir dæmt tr. t*. í allháar skaða- bætur fyrir ummæli um hesta- verslun Garðars Gislasonctr. Blað- ið hnýtir þeirri athugasemd aft- an við frásögnina um dóminn, að bæjarfógetinn sé lhaldsþing- maður og »einn harðsnúnasti pólitíski andstæðingur samvinnu- stefnunnar og ritstjóra Tímans«. Jafnframt flytur það forustu- grein um »Misbeiting dómsvalds- ins«, talar um að þessi mis- beiting sje »einhver algengasta aðferðin sem yfirstjelt nútímans noti til þess að klekkja á for- ystumönnum nýrra hreyfinga«. öll er greinin tilraun til að hnekkja virðingu þjóðarinnar fyiir dómsvaldinu í landinu ai- ment, og jafnframt grímuklædd árás á bæjarfógetann í Reykja- vík sjerstaklega. Það virðist lítil ástæða til þess að eyða mörgum orðum að þessu síðasta »stóra hneyksli«. Það er nú orðið svo margreynt hve blekkingar og óhemjulæti Timans hafa lítil áhrif. Þjóðin festi aldrei trúnað á að Morg- unblaðið væri í höndum nýs Bessastaðavalds, sem seiidist lil pólilískra áhrifa á íslandi. Hún trúði því heldur ekki, að ame- rískir milljónamæringar hefðu borið fje á þingmeirihlutann 1925. Hún trúir því aldrei að dómsvaldið á íslandi sje notað af einhverri yfirstjett til þess að klelckja á andstæðingum hennar. Og það er með öllu vonlaust, að ætla að læða þeirri skoðun inn hjá henni, að bæjarfógetinn í Reykjavík dæmi eða sýkni eftir því, hvort hinir ákærðu sjeu andstæðingar hans eða samherjar í stjórnmálum. Til þess er Jóh. Jóh. altof kunnur maður, alt of vinsæll og virtur. Tíminn hefir aldrei getið sjer orð fyrir rjeltdæmi um pólitíska andstæðinga og aðra þá, sem blaðinu er í nöp við. Það er því lítil von til þess fyrir blaðið, að þjóðin fáist til þess að trúa því, að það riti af sanngirni og rjettsýni um dórnara, sem er nýbúinn að dæma það í 25 þús. kr. skaðabætur. Tíminn hefir ekki reynt með einu orði að rökstgðja dylgj- ur sínar um að dómurinn væri hlutdrægur. Eða heldur blaðið að það sje frambærileg rök fyrir slíkri ásökun — að minna á að dómarinn sje í- haldsmaður? Hvað yrði þá um alla dómana sem t. d. Trgggvi Pórhallsson og Jónas frd Hriflu kveða upp yfir stjórninni og íhaldinu? Vill Tíminn viðurkenna að þeir hljóti allir að vera rang- látir — vegna þess að dómar- arnir sjeu Framsóknarmenn? Auðvitað eru dómar þeirra um stjórnina yfirleilt ranglátir. En hvort fyndist mönnum t. d. Vörður geta látið sjer nægja að sanna það með þvi einu, að þeir Tr. P. og J. J. værn stjórnar- andstæðingar? Leikhúsið »I*rett£Lndalivöld«. Um sömu mundir og nokkrir viðsýnir þingmenn eru að reyna að efla þjóðleikhússjóðinn, fækka með því árunum, sem ísl. þjóðin verður að bíða eftir þessu vænt- anlega óskabarni sinu, þá skeð- ur sá merkilegi atburður í sögu ísl. leiklistar, að fyrsta skiptið er leikið bjer leikrit eftir heims- meistarann Shakespeare, — gleði- leikurinn »Þreltándakvöld«. Og þrátt fyrir þau húsakynni, sem leikfjel. á við að búa, og ekki eru 'ísl. leiklist samboðin, og þrátt fyrir það hve mikla fjöl- breytni og fegurð leikrit þetta útheimtir á Ieiksviði, verða á- horfendur þess lítt varir að nokkru sje ábótavant. Leiktjöld og búningar er hvorutveggja skrautlegt, og með- ferð leik^ins öll leiðbeinandan- um, hr. Indriða Waage til mik- ils sóma. Leikur þessi er að mörgu leyti óvenjulegur fyrir okkur Reykvíkinga, og ekki ólíklegt, að mörgum finnist að ýmislegt í honum heíði mátt vera á ann- an veg. En sem heild, getur engum dulist, að skenrtilegri og gáskafyllri leikur hefir ekki sjest hjer. wE'rettándakvölda er sjónleik- ur blekkinga. Gáfaðasta persón- an í leiknum tekur á sig fífls- gerfi, og innan friðhelgi þess sýnir það mönnunum vankant- ana á þeirra innri manni. Oíivia, greifafrú, fær ást á konu er tekið hefir á sig karl- mannsgerfi, og sú sama kona blekkir hertogann af Ulyriu, Andrjes Bleiknefur, fmynd ó- menskunnar, hefir ekki snefil af sjálfsþekkingu og nýtur lífs- ins fyrir það. Og innan um al!a þá, er þannig vaða í villu, reikar hinn hátíðlegi, sjálfs- elskufulli, ærukæri vesalingur, Malvolio. En inn í leikritið er svo vafið fögru ástaræfintýri þeirrar af kvenpersónum Shakes- peare’s, í karlmannsgerfi, er talin hefir verið fegurst, Violu »hirðsveins« hertogans. Hún gengur þau þungu spor, að biðja þeim manni konu, er hún elskar. En hún sveipar dásam- legri gleðiblæju yfir alvöru sína og flytur erindi húsbónda sins falslaust. Meðferð flestra leikenda á hlutverkum sínum er piýðileg, en nokkuð skemmir það heild- arsvipinn, að valið i sum hlut- verkin er ekki sem ókjósanleg- ast; eru það hlutverk Sebast- ians, Fabians og Oliviu. Ró að ungfrú Emilía leiki hlutverksitt (Oliviu) vel, þá er það ekki við hennar hæfi. Mesta athygli vekja þeir Bryn. Jóhannesson (Andres Bleiknefur) og Indriði Waage (Malvolio) fyrir frumlegan og oft snjallan leik. Er sýnilegt hvert hæfileikar þeirra stefna, og að þar eru á ferðinni ungir leikendur, sem leggja mikla al- úð við starf sitt. Munu Reyk- víkingar tæplega hafa sjeð mannleysuna í átakanlegri mynd, en Brynjóifur sýnir hana. Fíflið er eitt vandasamasta hlutverkið, útheimtar fjölbreytta leikárahæfileika. Ágúst Kvaran leikuf það, óg íekst öftast prýðilega. Violu, meyjuna í karhnanns- gerfi, leikur frú Soffía Kvaran, og er leikur hennar mjög glæsi- legur, einkum er hún flytur mál hertogans. Þessi leiksýning er merkisvið- burður, og vonandi taka Reyk- víkingar henni ekki ver en öðr- um leiksýningum fjelagsins á þessum vetri. Til þess bendir líka aðsóknin þau kvöld, er leikið hefir verið. A. G. P. Dás'.arfregn. Pjetur Gunnlaugsson bóndi í Álfatröðum í Dalasýslu ljest hjer á Landakotsspítalan- um 24. þ. m. eftir uppskurð við krabbameini. Var hann í lölu bestu bænda fyrir sakir greind- ar og mannkosta. Hann var bróðir ungfrú Katrínar Gunn- laugsdóttur. ' Halldór Kiljan Laxness kom til bæjarins með »Gullfossi« siðast. Hefir hanu dvalið tæpt ár ytra og lokið nýrri skáldsögu, »Vef- aranum mikla frá Kasmír«. í fyrra sumar dvaldi hann á íta- líu, í vetur í Luxemburg, en kemur nú frá London. Nýja strandvarnarskipinu var hleypt á flot i Khöfn 24. f. ta. Var það skírt ÓJinn. Er það væntanlegt hingað í þessum mánuði.

x

Vörður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.