Vörður


Vörður - 15.05.1926, Blaðsíða 1

Vörður - 15.05.1926, Blaðsíða 1
Ritstjóri og ábyrgð- ^rmaðuri' Kristján AféérfáQti Tjlrjgö/tis.18.. Afgreiðslu- og inn- í. heimtumaöur ' Ásqéir Magnússon ; épimnf Útgetnndi: Miðstjórn íhaldsflokksins. IV. ár. Reykjavík 1 5. mai 1926. 21. blað. Mussolini afhendir norskn nefndinni loftfarið »Norge«. Við borðsendann stendur Mussolini, á vinstri hlið honum stjórnandi ' loftfarsins, ítalinn Nobile, en til hægri Elsworth og við hlið hans Thommesen ritstjóri, formaður norska flugfarafjelagsins. Point Barrow. Regn er ijfir Alaska og óveður í aðsigi. Ern menn allhrœddir um afdrif skipsins. í morgun er símað: Enginn veit neitt um afdrif loflskipsins Norge. Annað hvort hefir þad lent einhversstaðar, án þess nokkur viti„ eða það rekur. Menn giska á, að benzin/orðinn hafi gengið iil þurðar á föstu- dagsmorguninn. Loftfariö »Norge«. Allsherjarverkfallirvu í j3retlaridi lokið. Amundsen og Byrd haía báðir flogið yfir Norðurpoiinu. Æsingar og óeirðir halda áfram Undanfarið hafa þeirAmund- sen og Ameríkaninn Byrd ver- ið að undirbúa flugferðir til Norðurpólsins frá Kingsbay á Byrd. Spitsbergen — og vafalaust ver- ið mikill hugur í hvorum um sig, að verða fyrri til en hinn. Byrd ætlaði í flugvjel til póls- ins og þaðan aftur til Spitsberg- en, en Amundsen ætlaði í loft- fari sínu yfir pólinn og áfram til Alaska — þvert yfir Norður- heimsskautið. B^'rd var kominn með flug- Xjel sína til Kingsbay áður en ioftskip Amundsens kom þang- að, en framan af þessum mán- uði voru örðugleikar á að hefja hana til flugs vegna fannkyngi. fók hann þá það til bragðs að Þjappa snjónum og gera sjer frárennisvöll »fyrir framan loft- farsskýli Amundsens«, að því er skeyti herma — og þaðan flaug hann af stað norður eftir á sunnudagsmorgun. Gerði hann ráð fyrir að ferðin til pólsins fram og aftur tæki einn sólar- hring og hálfa sextándu klukku- stund. Á mánudagskvöld barst svo- hljóðandi skeyti frá Khöfn : »Byrd kominn aftur, örlitið kalinn á höndum og nefi. Sjer- fræðingar eiga erfilt með að á- kveða, hvort hann hafi komist á pólinn, og líta svo á, að ná- Amundsen og Elsworlh. kvæm vísindaathugun hafi ver- ið ókleyf úr flugvjelinni á hreyf- ingu. Flug Byrds þykir einstæð íþróttaframmistaða. Hann hafði mat til tveggja daga. Hefði hon- um hlekst á, þó að eins hefði verið litilsháttar, var dauðinn vís. Símað er frá Washington, að Coolidge forseti og flotamála- ráðherrann hafi sent Byrdham- ingjuóskir. Mikil gleði meðal þjóðarinnar«. Daginn eftir var símað, að því ,sje alment trúað að Byrd hafij flogið yfir pólinn. »Hann sá ekki land, en að eins fáar og smáar sprungur í fsnum«, segir í skeytinu og ennfremur að margir óttist að Byrd muni Nobile. nú reyna að fljúga til Alaska á undan Amundsen. En um kvöldið kom skeyti um að Amundsen hefði lagt af stað frá Kingsbaykl. 10 á þriðju- dagsmorguninn. Um miðnætti frjettist til loftfarsins á 89. gr. norðl. br. Var þá Ijett þoka. Kl. 1 um nóttina sveif það yfir norðurpótinn og varpaöi þá Amundsen niður norska, ame- ríska^og ítalska fánanum (Coo- lidge forseti hafði gefið honum amerískan fána í þ'essu skyni, en Mussolini ftalskan). Síðan frjettist ekki til loftfarsins fyr en á fimtudag, er símað var út um heiminn að til þess hefði sjest frá Point Barrow í Alaska. Frá Khöfn er símað seint í gærkveldi að ekkert útvarpssam- band hafi verið við loftskipið í 15 klukkustundir. Hefir það ekki sjest síðan það sási frá Khöfn, 8. maí árdegis. Götubardagar i London i gœr. Sextíu sœrðir. Fjöldi manna settur i fangelsi. Kveikt var i bgggingu Times, en eldurinn slöktur. í stjórnarblaðinu Britisk Ga- zette stendur, að þjóðin verði að velja milli stjórnarskrárinnar og ofbeldisvalds. Ástandið telur sljórnin batnandi. Vissa sje um sigur, ef útheldnin bili ekki. Khöfn, 8. mai siðdegis. 300 járnbrautarlestir fóru rnilli aðalstöðvanna i Englandi í gær og 80 i Skotlandi. í Edinborg hafa rán verið framin i búðum og lögreglu- þjónar og borgarar sœrst. í Glasgow hofa orðið alvar- legust friðarspjöll i landinu. Skotgarðavirki ha/a verið hlaðin á götum og öll vagnaumferð stöðvuð. Verk/allsmenn hindra flutninga til borgarinnar og frá henni. Miklir bardagar hafa hindrað, að hœgt vœri að úthluta mat- vœlutn frá aðalmatvœtastöðinni í Hgde Park. Lögreglu-sjálfboða- lið Lundúnaborgar hefir verið aukið um 50,000. Khöfn, 9. maí. Múgurinn í East End í Lon- don hóf i gœr árás á lögreglu- liðið og hafði flöskur að vopn- um. Lögreglan notaði skilminga- grimur sjer til hlifðar. í gær voru 182 skip affermd í Englandi og fáein fermd. Um 650 járnbrautarlestir voru í gangi. Eitt þúsund bifreiðastjóra, sem annast matvælaflutning fyrir Lyons matsölakrærnar, gerðu verkfall. Varð mikill bagi að, enda skifta matsöluslaðir þessir hundruðum og eru afar mikið sóttir. Sú skoðun virðist alment ríkj- andi, að undirrœtur verkfallsins sjeu pólitiskar, en kaupgjaldið aukaatriði. í Middlebrough (hafnarborg í North York, íbúatalan ea. 131.000, járniðnaður, skipabygg- ingar, kolaútflutningur), hafa verið nokkrar róstur. Tilrauri var gerð til þess að hlegpa far- þegalest af sporinu skamt frá borginni. Múgurinn egðilagði vörubirgðir á slöðinni. Her- mannadeild úr flotanum dreifði mannfföldanum og kom kgrð á. ÍGlasgow hafa verkamenn verið athafnasamir. Gerðu þeir tilraun til þess að hefta brauðflutning. Var tvísýnt hvernig sá bardagi myndi fara um skeið, en lög- reglan bar sigur úr býtum. Fyrsta Lundúnalest síðan alls- herjarverkfallið hófst. Khöfn, 9. maí síðdegis. Bardagi, sem þúsundir manna tóku þátt i, var háður i nóit i London, þagar farþegabifreiðnm (omnebuses) var ekið i bif- reiðaskýlin. Margir hlutu meiðsl af steinkasti og tveir voru drepnir. Regent Park hefir verið gerður að geymslustöð fyrir farþegabifreiðarnar, því í garð- inum er auðvelt til varnar gegn áhlaupum. Viða á Scotlandi er óeirða- samt. »The Flying Scotsman« (hraðlestin sem fer á milli Lundúna og Edinborgar) fór frá Lundúnum í fyrsta sinn í gær, síðan allsherjarverkfallið hófst. Fjöldi b jálka hafði verið bundinn á brautarteinana 13 kilom. fgrir sunnan Edinborg, i þeim tilgangi að hlegpa hrað- (Framh, á 4. síðu.)

x

Vörður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.