Vörður - 15.05.1926, Qupperneq 1
Ritstjóri og ábyrgð-
^rmaðuri'
Kristján AféérfáQti
Tjlrjgö/tis.18..
Afgreiðslu- og inn-
í. heimtumaöur '
Ásqéir Magnússon
; épimnf
Útgetnndi: Miðstjórn íhaldsflokksins.
IV. ár.
Reykjavík 1 5. mai 1926.
21. blað.
Mussolini afhendir norskn nefndinni loftfarið »Norge«. Við borðsendann stendur Mussolini,
á vinstri hlið honum stjórnandi ' loftfarsins, ítalinn Nobile, en til hægri Elsworth og við hlið hans
Thommesen ritstjóri, formaður norska flugfarafjelagsins.
Point Barrow. Regn er ijfir
Alaska og óveður í aðsigi. Ern
menn allhrœddir um afdrif
skipsins.
í morgun er símað: Enginn
veit neitt um afdrif loflskipsins
Norge. Annað hvort hefir þad
lent einhversstaðar, án þess
nokkur viti„ eða það rekur.
Menn giska á, að benzin/orðinn
hafi gengið iil þurðar á föstu-
dagsmorguninn.
Loftfariö »Norge«.
Allsherjarverkfallirvu
í j3retlaridi lokið.
Amundsen og Byrd haía báðir flogið
yfir Norðurpoiinu.
Æsingar og óeirðir halda áfram
Undanfarið hafa þeirAmund-
sen og Ameríkaninn Byrd ver-
ið að undirbúa flugferðir til
Norðurpólsins frá Kingsbay á
Byrd.
Spitsbergen — og vafalaust ver-
ið mikill hugur í hvorum um
sig, að verða fyrri til en hinn.
Byrd ætlaði í flugvjel til póls-
ins og þaðan aftur til Spitsberg-
en, en Amundsen ætlaði í loft-
fari sínu yfir pólinn og áfram
til Alaska — þvert yfir Norður-
heimsskautið.
B^'rd var kominn með flug-
Xjel sína til Kingsbay áður en
ioftskip Amundsens kom þang-
að, en framan af þessum mán-
uði voru örðugleikar á að hefja
hana til flugs vegna fannkyngi.
fók hann þá það til bragðs að
Þjappa snjónum og gera sjer
frárennisvöll »fyrir framan loft-
farsskýli Amundsens«, að því er
skeyti herma — og þaðan flaug
hann af stað norður eftir á
sunnudagsmorgun. Gerði hann
ráð fyrir að ferðin til pólsins
fram og aftur tæki einn sólar-
hring og hálfa sextándu klukku-
stund.
Á mánudagskvöld barst svo-
hljóðandi skeyti frá Khöfn :
»Byrd kominn aftur, örlitið
kalinn á höndum og nefi. Sjer-
fræðingar eiga erfilt með að á-
kveða, hvort hann hafi komist
á pólinn, og líta svo á, að ná-
Amundsen og Elsworlh.
kvæm vísindaathugun hafi ver-
ið ókleyf úr flugvjelinni á hreyf-
ingu. Flug Byrds þykir einstæð
íþróttaframmistaða. Hann hafði
mat til tveggja daga. Hefði hon-
um hlekst á, þó að eins hefði
verið litilsháttar, var dauðinn
vís.
Símað er frá Washington, að
Coolidge forseti og flotamála-
ráðherrann hafi sent Byrdham-
ingjuóskir. Mikil gleði meðal
þjóðarinnar«.
Daginn eftir var símað, að
því ,sje alment trúað að Byrd
hafij flogið yfir pólinn. »Hann
sá ekki land, en að eins fáar
og smáar sprungur í fsnum«,
segir í skeytinu og ennfremur
að margir óttist að Byrd muni
Nobile.
nú reyna að fljúga til Alaska á
undan Amundsen.
En um kvöldið kom skeyti
um að Amundsen hefði lagt af
stað frá Kingsbaykl. 10 á þriðju-
dagsmorguninn. Um miðnætti
frjettist til loftfarsins á 89. gr.
norðl. br. Var þá Ijett þoka.
Kl. 1 um nóttina sveif það yfir
norðurpótinn og varpaöi þá
Amundsen niður norska, ame-
ríska^og ítalska fánanum (Coo-
lidge forseti hafði gefið honum
amerískan fána í þ'essu skyni,
en Mussolini ftalskan). Síðan
frjettist ekki til loftfarsins fyr en á
fimtudag, er símað var út um
heiminn að til þess hefði sjest
frá Point Barrow í Alaska.
Frá Khöfn er símað seint í
gærkveldi að ekkert útvarpssam-
band hafi verið við loftskipið í
15 klukkustundir. Hefir það
ekki sjest síðan það sási frá
Khöfn, 8. maí árdegis.
Götubardagar i London i gœr.
Sextíu sœrðir. Fjöldi manna
settur i fangelsi.
Kveikt var i bgggingu Times,
en eldurinn slöktur.
í stjórnarblaðinu Britisk Ga-
zette stendur, að þjóðin verði
að velja milli stjórnarskrárinnar
og ofbeldisvalds. Ástandið telur
sljórnin batnandi. Vissa sje um
sigur, ef útheldnin bili ekki.
Khöfn, 8. mai siðdegis.
300 járnbrautarlestir fóru
rnilli aðalstöðvanna i Englandi
í gær og 80 i Skotlandi.
í Edinborg hafa rán verið
framin i búðum og lögreglu-
þjónar og borgarar sœrst.
í Glasgow hofa orðið alvar-
legust friðarspjöll i landinu.
Skotgarðavirki ha/a verið hlaðin
á götum og öll vagnaumferð
stöðvuð. Verk/allsmenn hindra
flutninga til borgarinnar og frá
henni.
Miklir bardagar hafa hindrað,
að hœgt vœri að úthluta mat-
vœlutn frá aðalmatvœtastöðinni í
Hgde Park. Lögreglu-sjálfboða-
lið Lundúnaborgar hefir verið
aukið um 50,000.
Khöfn, 9. maí.
Múgurinn í East End í Lon-
don hóf i gœr árás á lögreglu-
liðið og hafði flöskur að vopn-
um. Lögreglan notaði skilminga-
grimur sjer til hlifðar.
í gær voru 182 skip affermd
í Englandi og fáein fermd. Um
650 járnbrautarlestir voru í
gangi.
Eitt þúsund bifreiðastjóra,
sem annast matvælaflutning
fyrir Lyons matsölakrærnar,
gerðu verkfall. Varð mikill bagi
að, enda skifta matsöluslaðir
þessir hundruðum og eru afar
mikið sóttir.
Sú skoðun virðist alment ríkj-
andi, að undirrœtur verkfallsins
sjeu pólitiskar, en kaupgjaldið
aukaatriði.
í Middlebrough (hafnarborg
í North York, íbúatalan ea.
131.000, járniðnaður, skipabygg-
ingar, kolaútflutningur), hafa
verið nokkrar róstur. Tilrauri
var gerð til þess að hlegpa far-
þegalest af sporinu skamt frá
borginni. Múgurinn egðilagði
vörubirgðir á slöðinni. Her-
mannadeild úr flotanum dreifði
mannfföldanum og kom kgrð á.
ÍGlasgow hafa verkamenn verið
athafnasamir. Gerðu þeir tilraun
til þess að hefta brauðflutning.
Var tvísýnt hvernig sá bardagi
myndi fara um skeið, en lög-
reglan bar sigur úr býtum.
Fyrsta Lundúnalest síðan alls-
herjarverkfallið hófst.
Khöfn, 9. maí síðdegis.
Bardagi, sem þúsundir manna
tóku þátt i, var háður i nóit i
London, þagar farþegabifreiðnm
(omnebuses) var ekið i bif-
reiðaskýlin. Margir hlutu meiðsl
af steinkasti og tveir voru
drepnir. Regent Park hefir verið
gerður að geymslustöð fyrir
farþegabifreiðarnar, því í garð-
inum er auðvelt til varnar gegn
áhlaupum.
Viða á Scotlandi er óeirða-
samt. »The Flying Scotsman«
(hraðlestin sem fer á milli
Lundúna og Edinborgar) fór
frá Lundúnum í fyrsta sinn í
gær, síðan allsherjarverkfallið
hófst. Fjöldi b jálka hafði verið
bundinn á brautarteinana 13
kilom. fgrir sunnan Edinborg,
i þeim tilgangi að hlegpa hrað-
(Framh, á 4. síðu.)