Vörður


Vörður - 22.05.1926, Blaðsíða 1

Vörður - 22.05.1926, Blaðsíða 1
» Útgefandi: Miðstjórn íhaldsfilokksins. IV. ár. Reykjavík 22. mai 1926 22. blað. Foringjar nórnamanna fytfr utan Downing Street 10 (forsætis- ráðhenabústaðinn i London), að afloknum fundi hjá Baldwin. Yst til vinstri handar stendur Richards, þá A. J. Cook (ritari sam- bands enskra námamanna), Herbert Smith (formaður sambands- ins) og Richardson. Vimudeilurnar á Englandi. Verkamenn þyrpast saman á götu í London, til þess að lesa á- varp um verkfallið frá stjórninni. Saga breska allsherjarverk- faltsins virðist í stuttu máli vera þessi, eftir því sem ráða má af nýkomnum erlendum blöðum og sfðustu skeytum: Sunnudaginn 2. maf náðist samkomulag um kaup kola- námamanna milli Baldwins og Thomas og annara fulltrúa miðstjórnar verkalýðsfjelagauna. Er talið að hinir síðarnefndu hafi fallist á nokkra lækkun á launum námamanna fyrst um sinn. Sunnudagskvöldið komu foringjar námamanna saman til fundar til þess að ræða þessa málamiðlun, en áður en því væri lokið, kom algerlega óvænt tilkynning frá stjórninni um að hún sliti samnÍDgunum. Ástæð- an var sú, að prentarar blaðs- ins Daily Mail (sem er eitt af stærstu og merkustu stjórnar- blöðunum) höfðu stöðvað út- gáfu blaðsins, vegna þess að ritstjórnin hafði hafnað kröfu frá þeim um að breyft yrði grein um kaupdeiluna, sem birtast átti í blaðinu. Pegar svo var komið náðu hinir róttækari meðal verka- mannaforingjánna (Cook og fylgjendur hans) öllum yfirráð- um í sfnum herbúðum og svör- uðu stjórninni með allsherjar- verkfalli. t*að hefði verið til litils að lála sjer nægja að hefja kolaverktall — náma- menn höfðu enga von um að vinna það. Námaeigendur myndu hafa Iátið sjer það í ljettu rúmi liggja, þótt vinnan stöðvaðist um hríð, úr þvi að stórtap var fyrirsjáanlegt á námarekstrinum. Allsherjarverkfall var, úr því sem. komið var, eina vopn verka- manna. En það var tvieggjað vopn — og beittari sú eggin er að þeim vissi, sem það átti að verja, nefnilega verkalýðnum sjálfum. Algert samgöngubann og sá matvælaskortur í bæjun- um, sem af þvi leiddi, kom auðvitað fyrst niður á fátæk- lingunum. far við bættist að óeirðir og upphlaup mögnuðust í bæjunum með hverjum degi, allsherjarverkfallið varð óvin- sælt, þjóðin skipaði sjer undir merki stjórnarinnar og sjálf- boðaiiðið, sem tók samgöngurn- ar í sínar hendur, óks daglega. Baldwin krafðist þess að samnÍDgar hæfust að nýju, en neitaði að taka þátt i þeim fyr en allsherjarverkfallið væri aft- urkallað. Hann kvað það vilja sljórnarinnar, að freista allra ráða til þess að komast hjá því að lækka þyrfti laun verka- manna. Hann lofaði því aö leggja fast að vinnuveitendum að teygja sig eins langt til samkomulags og fjárhagur kolaiðnaðarins frekast leyfði. Hann bað menn að skilja það, að námareksturinn gæti ekki borið það kaupgjald sem verka- menn hefðu haft, og að hins vegar væri það óverjandi að halda áfram að skattleggja borgara þjóðfjelagsins til þess að geta styrkt námaiðnaðinn. En stjórnin myndi taka til nýrrar yfirvegunar, hvað hægt væri að gera til endurbóta á öllum rekstri kolavinslunnar. 12. maí var allsherjarverk- fallið afturkallað. Baldwin hefir borið fram umtangsmikla samn- ingatillögu i kolaiðnaðarmálinu og er simað að hún hafi fengið góðar undirtektir i þinginu. Leggur hann til að 3 miljónum sterlingspunda verði varið til styrktar námarekstrinum á með- an verið er að endurbæta skipu- lag hans. Annað úr tillögum hans hefir enn ekki verið simað. Námamenn greiddu atkvæði um tillögurnar á fimtudag. Talið er að þjóðartapið á allsberjarverkfallinu nemi um 25 milj. punda. Ellen Key. Ellen Key Ijest 25. apríl, 76 ára að aldri. Hún var í tölu hinna fremstu andlegu leiðtoga Svia og hinna merkustu kven- rithöfunda í Evrópu. Bækur hennar eru tlestar heim- spekilegs og siðfræðilegs efnis og hinar frægustu um sálarlif konunnar og stöðu hennar í Iífinu, um heimilin, uppeldi barna o. s. frv. t*ær þykja ekki fyrst og fremst ágætar að skap- andi krafti, en hún boðar trú sína á betra lif, fegurri og sælli kynslóðir með heitum sannfær- andi krafti góðleiks, hreinleiks og sannleiksástar. Hún erisenn vitur og barnsleg — kjarninn í kenningu hennar er sá, að eng- inn sem ekki sje sannur, heill og fullur sakleysis geti verið skáld, listamaður, hugsjónamað- ur, vinur, persóna eða yfirleitt dugað til neins nýtilegs og góðs. Köllun hennar var að vekja og eggja ungar sálir, gefa þeim kjark og löngun til þess áð keppa að þroska og lifsgleði. Rit hennar eru fyrirheit um rík- ari hamingju, sem sje fólgin í vexti þeirra krafta, er hlýði hin- um göfugustu tilhneigingum í mannsbrjóstinu. Selma Lagerlöf ritaði um Ell- en Key eftir andlát hennar í eitt af sænsku blöðunum og sagði að hún hefði verið hinó- krýnda drotning kvennahreyfing- arinnar i Svíþjóð. »Hún var og verður hinn bjarti, hugdjarfi, ástsæli leiðtogi allra þeirra, sém með orðinu »kvennahreyfing« meina mildari breytni, bjartara heimilislíf, skemtilegri bernsku- ár, miskunsamara hugarfar.list- rænni og frjálsari Hfshætti«, skrifar Selma Lagerlöf. PÓlílllg Amiuidseii!*. Eins og lesa má i sfðasta blaði voru menn farnir að ótt- ast að Amundsen hefði hlekst alvarlega á, þegar sú fregn barst á sunnudag að »No>ge« hefði lent við Teller í Alaska eftir 71 stundar flug og væru allir far- þegar við bestu liðan. Sólskin hafði verið fyrsta daginn. Var flogið nokkra hringi yfir 'pólnum i athugunarskyni. Að morgni næsta dagsvarkom- in þoka og hjelst hún upp frá því alla leið tii Alaska. Var því mjög hættulegt að nálgast land. 1 Alaska er mikið tjalllendi og hátt og áttu þeir von á að renna loftfariuu á fjöllin. það jók og á örðugleika ferðarinnar að inik- ill ís myndaðist á skipinu, og til þess að koma í veg fyrir að hann þyngdi það um of, varð að eyða honum jafnóðum. Inn yfir Alaska stefndi loft- farið i stormviðri og þoku, en að lending tókst slysalaust var mest því að þakka, að samband náðist við loftskeytastóð, sem sent gat loftförunum leiðbein- ingar um hvar þeir væru staddir. Amundsen er sagður mjög á- nægður með förina. Hefir hann látið svo uramælt, að hann hafi nú náð því marki er hann setti sjer ungur — að komastábáða póla. — Bylting í Póllandi. 1 rniöri fyrri viku voru pau tiö- indi símuð út um heim frá Póllandi, aö Pilsudski herforingi heföi haflö uppreisn og væri á leið til Varsjár með her manns. Stjórnin sendi út ávarp til hersins og skoraði á hann aö sýna löghlýðni og koma í veg fyrir borgarastyrjöld. Áskorunin bar ekki pann árangur, er til var ætl- ast, meiri hluti hersins veitti Pil- sudski lið og hann hertók höfuð- borgina eftir allsnarpan bardaga. 200 manns tjellu og um 1000 særð- ust. Flóttamenn sögðu að bærinn líktist vigvelli eftir oiustuna. Stjórn- in hafðist við i höllinni Belvedere og bjóst paðan til varnar. Her Pil- sudski settist um höllina, hóf skot- hrið á hana og braust loks til inn- göngu — en pá var stjórnin lögð á flótta í tlugvjelum. — Tók Pilsudski siðan við völdum og fylgja honum jafnaðarmenn og frjálslyndari flokk- arnir og mikill porri manna i borg- nm landsius. Lýsti hann yfir pvi, að hann myndi virða pingræðiö og að bráðlega myndi fram fara kosn- ing rikisforseta Pingið kemur sam- an 25. p. m. Búist er við að ineiri hluti pess sje andvigur Pilsudski og að skamt veröi að bíða ping- rofs og nýrra kosninga. — Símað er að Haller hershöfðingi safni liði í Posen og hyjgist að fara til Var- sjár og steypa Pilsudski af stóli. Meðan á verkfallinu stóð slógu hersveitir tjöldum ,í£Hyde Park, þar sem matvælum var úthlutað, til þess aðfvera til^taks gegn á- rásum.

x

Vörður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vörður
https://timarit.is/publication/375

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.