Vörður - 12.06.1926, Blaðsíða 1
Ritstjóri og ábyfgð
armaður
Kristján Albertson
Túngötu 18.
Ifc, .„«'
Afgreiðslu- og inn-
heimtumaður
Ásgeir Magnússort
kennari.
Utgrefandi s BÆiÖstjórti tli&itlsfloUIisiiie.
IV. ár.
Reykjavík 12. Jiiní 1020.
25. blao.
HIii forna konungshöll Póllands
í Posen er höfuð aðsetur andstæðinga Pilsudskys. Yfir henni vinstra
megin á myndinni er fyrv. forseti Póllands Wojciechowsky, en
hægra meiíin Witos fyrv. forsætisráðherra. .
Byltingiii
i Póllandi.
Hinn 10. maí tók ný stjórn
við vöidum í Póllandi. Forsæt-
isráðherra varð íhaldsmaðurinn
og bændaforinginn Witos og
h
Pilsudsky.
stjórnina studdu 238 af 444 þing-
mönnum í fulltrúadeild þings-
ios (sem á pólsku heitir sejm).
11. maí birli eitt af blöðun-
Unum í Varsjá viðtal við Pilsud-
skg marskálk, þar sem hann
^óf þungum orðum um spill-
lngu og sið.Ieysi margra hinna
Dýju ráðherra. Stjórnin gerði
blaðið upptækt og jafnaðar-
mannablöðin hótuðu hefndum
fyrir tiltækið.
Daginn eftir Haug sú fregn
um Varsjá að Pilsudsky væri á
leið til borgarinnar með her
manns og hygðist að hrekja
stjórnina frá völdum.
Síðan fyrir aldamót heflr Pd-
sudsky verið einn af fremstu
foringjum pólskra verkamanna
og jafnframt pólskra sjálfstæðis-
manníi, meðan kúgun Rússa
stóð. Hann hafði stofnað og
komið skipulagi á allar þær
Ieynilegu herdeildir, sem voru
reiðubúnar til ]>ess að berjast
fyrir frelsi Póllands þegar færi
byðist og reyndu að rísa gegn
rússneska hernum í ófriðarbyrj-
un 1914. Hann hefir skapað
pólka herinn og er emn af þjóð-
ardýrðlingum Pólverja, einn af
fremstu fulltrúum þess krafts,
sem helir endurreist sjálfstæði
Póllands.
Kl. 4 eftir hádegi hinn 12.
maí var Pilsudsky kominn með
her sinn að höfuðborginni. Hann
nam staðar við Poniatowsky-
brúna og í sama mund kom
bifreið á braðri ferð innan úr
bænum |!og stansaði við brúna.
Wojciechowsky, forseti pólska
lýðveldisins, gamall samherji
Pilsudsky frá þeim tíma er
Rússar kúguðu Pólverja, steig
út úr bílnum og seDdi eftir Pil-
sudsky. Þeir mættust á brúnni.
Pilsudsky krafðist þessaðWitos
legði niður völd þegar i stað.
Forsetinn neitaði að ganga að
því.
— Hugsið yður um, hr. mar-
skálkur, þjer gerið uppreisn
gegn stjórnarskrá landsins.
— Alt er vandlega hugsað,
jeg er æðsti marskálkur Pól-
lands, jeg geri það sem mjer
sýnist, svaraði Pilsudsky.
Forsetinn ók aftur inní War-
sjá og Piludsky hóf sókn sína.
f tvo daga var barist á götun-
um. Kl. 5 eftir hádegi hinn 14.
maí ruddist herlið Piludskys
Raiaj.
inn i höllina Belvedere, —stjórn-
in og forsetinn höíðu lagt á
flótta. Borgarastyrjöldinni var
lokið. 302 hófðu fallið.yftr 1000
særst.
Samkvæmt pólsku stjórnar-
skránni átti nú forseti þingsins,
Mathieu Rataj, að útnefna nýja
stjórn, þangað til þing kæmi
saman. Hann sneri sjer nú til
Piludsky og þeim kom saman
um skipun ráðuneytisins. Sjilf-
ur varð Pilsudsky hermálaráð-
herra. Jafnfiamt var þingið
kvatt saman í lok mánaðarins
til þess að kjósa forseta.
Pað kom brátt í Ijós aðjafn-
aðaTmenn og frjálslyndari flokk-
arnir fylgdu Pilsudsky og að
hann hafði herinn á sínu bandi.
En i Posen hóf hatursmaður
hans Haller general andblástur
gegn honum og safnaði sjálf-
boðaliði til þess að fara með
til Warsjá og steypa Pilsudsky.
Hafði flokkur Hallers höfuðað-
setur sitt i höllinni i Posen.
Pilsudsky Ijet nú daglega birta
viðtöl við sig i blöðum sinum,
þar sem hann gerði grein fyrir
stefnu sinni og markmiði bylt-
ingarinnar. I viðtölum þessum
er hann gifurmæltur og illorð-
ur með afbrigðum, talar um
hina mörgu »óþokka, morð-
ingja, þjófa og gömlu lands-
mála-glæpamenn« i þinginu.
En orðalag hans er alt ó-
ákveðnara þegar hann Jýsir
stjórnarstefnu sinni. Þó kveður
hann eindregið að orði um
nauðsyn þess, að breyta stjórn-
arskránni í þá átt, að vald
þingsins verði minkað og vald
forsetans aukið. Síðan 1918, er
Pólland varð sjálfstætt riki, hafa
14 ráðuneyti setið þar að völd-
um og stjórnartaumarnir sjald-
an verið í sömu höndum slund-
inni lengur. Nú vill Pilsudsky
skapa sterkari stjórn. Uppreisn
hans er í anda Mussolinis að
því leyti, að hann vill veikja
þingræðið og setja í þess stað
einskonar einræði. En hins veg-
ar er stefna hans frjálslyndari
bæði í þjóðernis- og þjóðfjelags-
málum, en stjórn Mussolinis.
Enn hefir ekkert orðið ur
gagnbyllingu Hailers, og þingið
kom saman 31. maí og kaus
forseta í ró og næði. Pilsudsky
hlaut kosningu, en hvoit sem
honum hefir þótt meiri hlutinn
of 1 till eða hilt hefir valdið,
að hann vildi ekki vinna eið
að núgildandij stjómarskrá, þá
neitaðí hann að taka við for-
setatign og mælti með kosningu
Moscicki prófessors. Hann er
sextugur að aldri, hefir verið
prófessor í efnafræði í London
og víðar, er forstjóri stórrar
köfnunarefnis-verksmiðju í Pól-
landi síðan 1920. Hann hefir
aldrei fengist við stjórnmál, en
er vinur Pilsudskys.
Moscicki náði kosningu. Og
er nú búist við því að Pilsud-
sky myndi bráðlega nýtt ráðu-
neyti og reyni sfðan að koma
fram stjórnarskrárbreytingu.
England. Kolanámadeilan er
enn óútkljáð. Námaeigendur
gerðu fyrir skemstu sáttaboð.
Fjellu þeir frá kröfum sínum um
launalækkun en fóru fram á að
vinnutíminn yrði lengdur.
Verjíamenn höfnuðu boðinu.
Harðar deilur hafa staðið milli
verkalýðsleiðtoganna um baráttu-
aðferðina, sjerstaklega hvort
hyggilegt hafi verið að hætta
allsherjarverkfallinu. Cook tel-
ur afturköllun þess hafa verið
svik við málstað námamanna
og svartasta blettinn í baráttu
^verkalýðsins í Englandi. En aðr-
ir, og þar á meðal "MacDonald,
halda því fram, að allsherjar-
verkföll sjeu ónýtt vopn í bar-
áttu vekalýðsins, og komi altaf
fyrst honum sjálfum i koll.
Þá hefur og kastast í kekki
milli foringja frjálslynda flokks-
ins, Asquiths og Lloyd George,
út af afskiftum hins síðarnefnda
af koladeilunni og greinum hans
um hana i amerísk blöð. Reis
Asquith upp og brá Lloyd George
um hlutdrægni í garð námaeig-
enda og skort á samvinnuþýð-
Sol.Ií'uniiiin í Marolclío,
Stríðinu f Marokko er lokið.
Uppreisnarmaðurinn Abd-el-
Krim, sem ætlaði að komasl
inn i höfuðborgina Fez og
steypa soldáninum af stóli, hefir
orðið að gefast upp og ganga
Frökkum á hönd sem fangi.
Á hann nú að beygja höfuð
sitt í auðmýkt fyrir soldáninum
og votta honum iðrun og holl-
ustu.
leik við flokk sinn. Var um
skeið gert orð á því í enskwm
blöðum, að Lloyd-George myndi
bráðlega ganga í jafnaðar-
mannaflokkinn, uns hann sjálf-
ur tók af skarið og kvað sjer
aldrei hafa komið það til hug-
ar. Síðar hefur komið í ljós, að
mikill meiri hluti frjálslynda
flokksins í enska þinginu er á
hans bandi í deilunni við As-
quith og ber fult traust til hans
sem foringja.
Uppreisn í Portugal. 1 lok
maí má'n, gerðust þau tiðindi i
Portúgal, að tvær herdeildir
gerðu uppreisn, fóru til Lissabon
og tóku höfuðborgina orustu-
laust. Stjórnin lagði á flótta og
herforingjar mynduðu þriggja
manna stjórn, sem rauf þing
þegar í stað. Landssamband
verkamanna Ij'sti yfir allsherjar-
verkfalli og mótmælti hervald-
inu. Síðustu fregnir (8. þ. m.)
herma, að Cozta hershöfðingi"
hafi tekið sjer einræðisvaidi f
líkingu við Mussolini og Primo
de Rivera. Foringjar verkamanna
hafa verið handsamaðir, starf-
semi verkalýðsfjelaganna bönn-
uð og öll verkföll í landinu
talin dauðadæmd meðan einræðið
stendur.
i
Noregur. Miklar kaupdeilur
hafa risið í Noregi i vor og vald-
ið verkföllum og verkbönnum.
Nú hafa tekist samningar milli
vinnuveitenda og verkalýðs um
17% kauplækkun.