Vörður - 03.07.1926, Síða 4
4
V Ö R Ð U R
Kvennaskólinn á Blönduósi.
Skólinn starfar frá 15. október til 14. maí, en kennsla í haust-
störfum byrjar 1. október, svo æskilegt er, að sem flestir nemendúr
sjeu þá komnir. Eftir skólauppsögn 14. maí verður garðyrkjunáms-
skeið í 6 vikur. Aðalkennslugreinir eru: Hússtjórnarstörf, vefnað-
ur, allskonar kvenfatasaumur og karlmannafatasaumur i sjerstakri
deild. f bóklegu er sjerstaklega lögð áhersla á íslensku, reikning,
heilbrigðisfræði og uppeldisfræði.
Inntökuskilyrði á skólann eru þessi:
a) . að umsækjandi sje helst ekki yngri en 18 ára
b) . að hann hafi engan næman sjúkdóm og sje hraustur og heilsu-
góður og sendi læknisvottorð um þetta.
c) . að hann hafi vottorð urn góða hegðun.
d) . að helmingurinn af skólagjaldi og fæðisgjaldi sje greitt við inn-
töku og ábyrgð fyrir eftirstöðvum.
e) . að umsækjandi sanni með vottorði, að hann hafi tekið fullnað-
arpróf samkv. fræðslulögum, ella gangi undir inntökupróf þegar
hann kemur á skólann.
Skólagjaldið er 75 kr. yfir námstimann.
Nemendur hafa haft matarfjelag og skólinn sjer um allar nauð-
synjar.
Skólinn leggur nemöndum til rúmstæði með dýnum. Annan sæng-
urfatnað verða þeir að leggja sjer lil, svo og handklæði og góðar
hlífðarsvuntui< Nemendur hafi með sjer eina eða fleiri flíkur til
að sníða uppúr eða gera við. — Æskilegt að sem flestir nemendur
hafi með sjer saumavjelar. Þá ættu neinendur að hafa með sjer text-
ana við íslenskt söngvasafn, sálmabókina og Passíusálmana.
Umsóknir um inntöku á skólann sendist formanni skólastjórnar-
innar, alþm. Þórarni Jónssyni, Hjaltabakka, fyrir 15. júlí.
Alþýðuskóliryiá Eiðum.
Rar sem húsakynni skólans batna að] forfallalausu mjög í
haust, verður fært að veita þeim framhaldstilsögn hinn 3. vetur,
er lokið hafa prófi 2. árs og kunna að óska hennar.j Sameigin-
legar námsgreinar verða:
íslenska og íslenskar bókmentir.
Eitt erlent tungumál (enska eða danska).
íslandssaga (sjerstök tímabil rannsökuð eftir föngum).
Stærðfræði eða náttúrusaga.
Að öðru leyti geta menn hagað námi sínu í samráði við
kennarana og með hliösjón af þvf, er þeir vilja taka fyrir síðar.
Kenslan verður að nokkru falin í leiðbeiningum um sjálfsnám.
Kennari er ráðinn til þess að kenna stúlkum vefnað og
aðrar hannyrðir um veturinn.
Einnig mun piltum veitt tilsögn í smíðum.
Að öðru leyti verður fyrirkomulag skólans|hið sama og áður„
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Eiðum 17. júní 1926.
Ásmundur Guömundsson.
Kaiipnm nll hæsta verði.
Eflið hag yðar og aukið notkun t á|íslenskum
vörum. — Fatadúkar frá Álafossi eru haldbestir og
ódýrastir. — Alkemba (lyppun) á ull er ódýrust.
best og fljótast unnin.
Verslið við ÁLAFOSS.
Sími 404.
Hafnarstræti 17.
J3s5tu sherry o£ port-
víp eru frá firmariu
CONZÁLEZ BYÁSS & Co.
Jerez & Oporto.
Biðjið ætíð um þau.
um vjer á alla góða drengi, sem
trú hafa á tilgangi voruin og góð-
um vilja, að veita oss liðsinni
með því að kaupa ritið og hvetja
aðra til þess.
Lýst sökum að Lögbergi
á hendur
Þórólfi frá Baidursheimi.
Lesendur Varðar munu minn-
ast ritgerðar minnar: „30 ára
stríðið Sandsbóndans“. — Eftir
tilkomu hennar ritaði Þórólfur
neðanmáls í Tímann 10 álna
langa og tólfræða romsu, mor-
andi í ósannindum og ákúrum í
minn garð. Jeg nenni ekki að
rekja upp allan þann vef, læt
mjer nægja að drepa á eitt atriði,
sem helst skiftir mál, og sýnir
bardagaaðferð þessa vagna-borg-
armeistara.
Hann mælir á þá leið, að jeg
hafi fengið frændur mina — í
Þingeyjarsýslu — til að biðja
Jónas Þorbergsson vægðar, í erj-
um þeim, sem voru milli okkar
í Akureyrarblöðum. Þá segir Þ.
S., að jeg hafi beðið Jónas um
vopnahlje, eða boðið honum sætt-
ir, og ennfremur, að jeg hafi
rofið griðin við Jónas að fyrra
bragði. Þessi ummæli Þórólfs
drótta að mjer ragmensku, lítil-
mensku og griðníðingshætti, og
eru í mesta máta ineiðyrðakend
fyrir mig, ef sönn væru. En þetta
er þreföld lýgi. Og til árjettingar
lýsi jeg nú Þórólf Sigurðsson,
kendan við Baldursheim, fyrir
þessi umyrði og önnur slík í
nefndri Tímagrein opinberan
rógbera og ósanninda mann.
18. júní 1926.
Guðmundur Friðjónsson
á Sandi.
Stórstúkuþingi
er nýlokið hjer í bænum. 92
fulltrúar sátu það og hefur aldr-
ei verið háð jafnfjölment þing
hjer á landi. Reglan hefur og
aldrei verið fjölmennari en nú;
telur hún 7276 fjelaga, en hefur
áður talið flesta árið 1907, þá
6743. Síðastliðin tvö ár hefur
fjölgað í reglunni um 1462.
Brgnleifur Tobíasson var end-
urkosinn stórtemplar með 49 at-
kv„ Sigurður Jónsson barna-
skólastjóri fjekk 45. Fram-
kvæmdastjórn reglunnar situr á-
fram á Akureyri.
Helstu samþyktir þingsins
voru þessar:
Stórstúkuþingið skorar á
framkvæmdanefnd sína að vinna
að því við þing og ríkisstjórn:
I. Að upp verði teknir nýir
viðskiftasamningar við Spán-
verja, er undanþiggi íslendinga
þeirri kvöð, að leyfa eða líða
innflutning áfengis til landsins
og sölu þess í landinu.
II. Að bæja- og sveita-fjelög-
um verði veitt heimild til að á-
kveða með almennri atkvæða-
greiðslu, hvort þau vilji hafa á-
fengissölu eða ekki, meðan
Spánarundanþágan er í gildi.
III. Að numin verði úr gildi
heimild lyfsala og lækna til að
selja mönnum áfenga drykki
eftir lyfseðlum.
IV. Að fá samþykt lög um
sjerstakan rannsóknardómara í
öllum málum, er snerta bann-
lagabrot, og nái valdsvið hans
yfir Reykjavik, Gullbringusýslu
flóa eftir nánaria- rai ETAOA
og sveitirnar umhverfis Faxaflóa
eftir nánari ákvörðun. Hann sje
skipaður eftir tillögu fram-
kvæmdanefndar Stórstúkunnar,
og
V. að koma á sem fullkomn-
astri bann- og toll-gæslu á Siglu-
firði yfir veiðitimann. Að gefnu
tilefni er þess sjerstaklega kraf-
ist, að ríkisstjórnin fari eftir til-
lögu framkvæmdanefndarinnar í
þessum efnum.
VI. Stórstúkan felur fram-
kvæmdanefnd sinni að vinna að
því, að allir frambjóðendur við
næstu' alþingiskosningar skuld-
bindi sig til að vinna að því, að
ekkert áfengi verði haft um hönd
við veitingar þær og veislur, er
ríkisstjórn eða „hið opinbera“
kann að halda við væntanleg há-
tíðahöld alþingis 1930.
Stórstúkuþingið samþykti og
tillögur þess efnis, að reyna að
stofna nokkurs konar bann-
bandalag með áhugasömum
bannmönnum viðsvegar á land-
inu. •
Skeggi
heitir nýtt blað, sem hóf göngu
sína í Vestmannaeyjum nú fyrir
kosningarnar. Ritstjórinn er V.
Hersir. Blaðið fylgir Sigurði
Eggerz mjög eindrægið. „Eng-
um mentuðum andstæðing Sig-
urðar kemur til hugar að leggja
honum nokkurt hjóðsyrði“, seg-
ir blaðið. „Sigurður Eggerz er
óhrekjanlega einn af okkar
vitrustu og reyndustu stjórn-
málamönnum, af því að hann,
bæði andlega og líkamlega ber
höfuð og herðar yfir andstæð-
inga sína. Þess vegna vilja þeir
hann ekki, þeir vilja helst fá
einhverja miðlungsskussa inn á
þingið, það passar í kramið“.
Blaðið er afar tillöguhart í
menta- og sjálfstæðismálum. Um
háskólann segir það, að i stað
þess að ríra hann „væri meiri á-
stæða fyrir oss að gera hann svo
úr garði, að hann gæti orðið
öndvegisháskóli Norðurlanda.“
Fræðslumálin segir blaðið, að
frjálslyndi flokkurinn hafi „á-
kveðið að taka til alvarlegrar í-
hugunar, því eins og menn vita
er þeim mjög ábótavaant".
Blaðið segir ennfremur að Sig.
Eggerz vilji „berja niður allan
stjettaríg og einokunarsvínarí“,
og að því sje eðlilegt að Fram-
sókn sje hrædd við að hann nái
kosningu.
Þetta nægir til þess að gefa
nokkra hugmynd um stefnu
blaðsins í landsmálum og af-
stöðu þess við landkjörið.
Landkjörið.
1 Reykjavik kusu um 3800
manns af 6114, sem á kjörskrá
eru, á Akureyri 670 af um 900,
í Hafnarfirði 530 af rúmum 800
og í Vestmannaeyjum 550 af 880.
Viða til sveita hefur kosningin
verið mjög fásótt.
íþróttamál.
Aðalfundur íþróttasambands
íslands var haldin hjer þ. 19. f.
m. Ýms íþróttamál voru til um-
ræðu t. d. um undirbúning næstu
Olumpíuleika og þúsund ára há-
tíðina á Þingvöllum 1930.
Forseti íþróttasambandsins,
Axel V. Tulinius framkvæmda-
stjóri, baðst undan endurkosn-
ingu, en í hans stað var kosinn
Benedikt G. Waage. Axel V. Tul-
inius hefir verið forseti 1. S. í.
frá stofnún þess (þ. 22. jan.
19Í2), og hefir starfað mjög
mikið fyrir íþróttamálin. Enn-
fremur voru kosnir tveir með-
stjórnendur og hlutu kosningu
Halldór Hansen læknir og Mag-
nús Kjaran kaupmaður. En fyr-
ir voru í stjórninni: Guðm. Kr.
Guðmundsson bókhaldari og
Pjetur Sigurðsson bókavörður.
Íslandsglíman verður háð hjer
um miðjan þennan mánuð, þeg-
ar glímuflokkur sá, sem nú er í
Danmörku, er kominn heim aft-
ur.
Verkfall á Akureyri.
Þaðan er símað 28. f. m.: Fisk-
verkunarkonur hafa gert verk-
fall. Krafa þeirra er 65 aurar fyr-
ir þvott á hverjum 100 pundum
fiskjar til miðs júlí og 80 aurar
úr þvi lil hausts. Vinnuveitend-
ur vilja borga 50 aura nú og 60
aurar síðar. Tímakaupskrafa
kvenna er 65 aurar og 80 aurar
frá 15. júlí. Vinnnveitendur vilja
borga 60 og 70 aura síðar.
Þverá.
Byrjað er að undirbúa stíflun
Þverár, og stjórnar Óskar Thor-
arensen á Breiðabólstað verkinu,
en Jón ísleifsson verkfræðing-
ur hefur umsjón með því fyrir
rikið. Skógur hefur verið grisj-
aður inn á Þórsmörk og á að
nota hrísið í stífluna, sem á að
bægja ánni frá Fljótshlíðinni og
koma í veg fyrir frekari land-
spjöll þar af hennar völdum.
Fyrirhleðsunni' er hagað svo,
að malarfyltir pokar eru bundnir
innan í hrís og sökt niður. Hl.eð-
ur þá áin með framburði sínum
sandi að böggunum svo að þéttur
garður myndast.
43 nýir stúdentar
útskrifuðust 30. f. m. Þann dag
við skólauppsögn gáfu 25 ára og
40 ára stúdentar Bræðrasjóði
1000 kr. hvorir.
Pálmi Hannesson
hefur lokið meistaraprófi £
náttúrufræði við háskólann og er
væntanlegur hingað heim bráð-
lega.
Manngildi Tímaritstjórans o. fl.
heitir nýútkominn bæklingur
eftir Árna Árnason frá Höfða-
hólum.
Einar Þveræingur heitir Dýtt
blað á Akureyri, málgagu frjáls-
lyndra manna. Ritstjóri er Sig-
urður Hlíðar dýralæknir.
Norsk-íslenzkt knattspyrnumót í
sumar. Knattspyrnufélögin í Rvík
hafa boðið hingað í sumar
knattleikaflokk úr íþróttafélaginu
»Djevö« í Bergen. Koma þeir
með Lyru 13. júli, dvelja hér
þrjá daga og keppa tvisvar við
úrvalslið Reykvíkinga.
Prentsmiðjan Gutenberg.