Vörður - 31.07.1926, Qupperneq 4
4
V Ö R Ð U R
Gagnfræðakenslu
hefja undirritaðir aptur 1. október i haust og verðtir að þessu sinni
kent i tveimur bekkjum, fyrsta og öðrum.
Námsgreinar og stundafjöldi hinn sami og i sömu bekkjum
hins Almenna mentaskóla (íslenska, danska, enska, sagnfræði,
stærðfræði, landafræði, náttúrusaga, dráttlist og eðlisfræði) og
verður alt miðað við það, að nemendurnir verði færir um að ná
gagnfræðaprófi við þann skóla.
Kensla stendur til 30. maí, og verða próf haldin um miðjan
vetur og í lok kenslutimans.
Til kenslu verða teknir piltar og stúlkur á hæfilegum aldri,
sem hafa venjulega barnaskólaþekkingu, eru heilbrigð, og setja
tryggingu fyrir greiðslu kenslukaupsins kr. 35.00 á mánuði er
greiðist fyrir fram við hver mánaðamót.
Þeir, sem kynnu að vilja setjast i annann bekk sýni auk þess,
að þeir hafi næga þekkingu i fyrsta bekkjar námsgreinum.
Menn gefi sig fram við meðundirritaðann Guðbrand Jónsson,
Lindargötu 20 B.
Guðbr. Jónsson. Sigfús Sigurhjartarson.
Alþýðuskólinn á Hvítárbakka.
Skólinn starfar frá veturnóttum til sumarmála (skóli settur
fyrsta vetrardag). Námsgreinar eru þessar: íslenska, danska, enska,.
tölvísi, íslandssaga, mannkynssaga, fjelagsfræði, landafræði, nátt-
úrusaga, eðlisfræði, siðfræði, söngur, leikfimi, og hannyrðir. Þýska
er og kend og bókhald, þeim er óska.
Heimavist er í skólanum og kostaði fæði og þjónusla kr. 1,70'
á dag fyrir pilta og kr. 1,33 fyrir stúlkur síðastliðinn vetur. Skóla-
gjald var kr. 75,00. Fá nemendur fyrir það kenslu, húsnæði, Ijós og:
hita. Var þá allur hinn beini kostnaður pilta í vetur til jafnaðar kr.
384,00 og stúlkna kr. 317,00 (bækur eru þó eigi reiknaðar með).
Eldri nemendur og nýnemar, sem óska inntöku i skólann næstæ
vetur, sendi umsóknir sínar fyrir 1. okt. n. k. Inntökuskilyrði eru
þessi:
a. Umsækjandi sje 10 ára gamall; þó getur skólastjóri veitt
undanþágu frá þessu, sje umsækjandi fullra 14 ára.
b. Umsækjandi sje eigi haldinn neinum næmum sjúkdómi.
c. Umsækjandi hafi óflekkað mannorð.
d. Umsækjandi hafi öðlast þá mentun, sem krafist er til fulln-
aðarprófs í fræðslulögunum.
e. Umsækjandi leggi fram sikrnarvottorð og bólusetningar og
yfirlýsingu frá áreiðanlegum manni um ábyrgð á greiðslu
þess kostnaðar, er skólaveran hefir í för með sjer.
Nemendur þurfa að leggja sjer rúmfatnað (rúmunum fylgir
dýna og heykoddi), handklæði, mundlaugar, sápu, skóáburð, sltó-
bursta, fatabursta og því um líkt.
Umsóknir sendist undirrituðum eða Andrjesi Eyjólfssyni i
Síðumúla (símleiðis). Þeir gefa og allar nánari upplýsingar.
Hvitárbakka, 16. júni 1926.
G. A. SVEINSSON
íþróttanámsskeið.
tverður haldið hjer í Reykjavik, frá 1. nóvember n. k. tiF
1. mars 1927, að tilhlutun íþróttasambands íslands og.
Sambands Ungmennafjelaga íslands. Námsgreinar eru
þessar: Fimleikar, sund, glímur, knattspyrna, einmenn-
ings úti-íþróttir, útileikir, heilsufræði, Mullers-æfing-
ar og víkivakar. Kenslan verður bæði munnleg og verk-
leg, og sjerstök áhersla lögð á að gera nemendurna hæfa til að
kenna. Einnig verður veitt tilsögn i því, hvernig halda á leikmót
og mæla leikvelli fyrir mót. Að minsta kosti 20 menn verða að gefa
sig fram á námskeiðið. Kenslugjald er 75 krónur fyrir allan tímann.
Þeir iþróttamenn, sem sendir eru frá fjelögum innan í. S. í. og:
U. M. F. í,. ganga fyrir öðrum umsækjendum.
Umsóknir og ábyrgð tveggja manna fyrir öllum greiðslum við
námskeiðið sjeu komnar, eigi síðar en 1. október n. k., til hr. Jóns
íþróttakennara Þorsteinssonar frá Hofstöðum (Mullerskólanuin í
Reykjavík), sein veitir námskeiðinu forstöðu. Hann útvegar nem-.
endum einnig fæði og húsnæði, ef þess er óskað. Á þessu námskeiði
kenna bestu iþróttakennarar vorir.
Stjórn Iþróttasambands íslands.
þeim standa, kæmu betra skipu-
lagi á þau.
Fjelagsmenn eiga að æfa sig
vel heima undir mótin.
Minst % mánuði fyrir mótið eiga
þeir hvér um sig að hafa fje-
lagsmót heima hjá sjer, og velja
þar sina bestu menn í hverri
grein til að keppa á hjeraðsmót-
inu fyrir fjelagið. Nöfn þessara
manna, aldur þeirra og í hverju
þeir eiga að keppa, skulu fje-
Iagsstjórnirnar þegar í stað
senda hjeraðsstjórninni. Býr hún
þá út leikskrá fyrir mótið, og
lætur vjelrita hana eða prenta.
Þá skal hjeraðsstjórnin hafa sjeð
fyrir öllum nauðsynlegum starfs
mönnum og starfsáhöldum fyr-
ir mótið, og skýrslum á leik-
vanginum.
Þið skuluð sanna, að með þess
ari aðferð fáið þið miklu fleiri
góða iþróttamenn og betur æfða,
margfalt betri árangur á mótinu
i öllum greinum, og svo verða
mótin skemtilegri. Sjerstaklega
þó, ef þið reynið að velja þannig
keppendur ykkar, að hlaupin og
stökkin geti farið fram á meðan
gliman stendur yfir. Það gefur
áhorfendum meiri fjölbreytni
fyrir augun og athyglina.
Frh.
Kirkjuhljómleikar
Páll ísólfsson hefir nú lokið
tveim fyrstu hljómleikum sin-
um, þeim er hann ætlar að
halda i mánuði hverjum.
Fyrsta hljómleik sinn hjelt
hann 27 júní s. 1. Aðsókn var
ágæt. Efni hljómleiksins var á
þessa leið:
Bach: Toccata og fuga, d-moll.
— Kóralspil: ó, hve mig
leysast langar.
— Passacaglia og fuga, c-
moll.
Boellmann: Priére á Notre Dame.
Dame.
Bannet: Variations de Concert.
Einsöngvar: Frú Erica Darbo.
Hljómleikar þessir þóttu tak-
ast ágætlega í alla staði, bæði
einsöngurinn og orgelverkin.
Öll verkin eftir Bach hefir Páll
spilað hjer nokkrum sinnum
áður og hafa eigi svo fáir tón-
listarvinir notað hvert tækifæri
til að hlusta á þau, enda eru
þau hvert öðru fegurra. Nú
hljómuðu þau í fyrsta sinn i
allri sinni dýrð, frá hinu nýja
og fullkomna orgeli frikirkj-
unnar.
Öll þess háttar verk verða
menn að heyra mörgum sinn-
um, til þess að geta notið þeirra
til fulls. Verk þessi eru sigild,
en einkenni alls þess er, að feg-
urð þess er aldrei tæmd. Nú
hafa verk þessi lifað yfir 200
ár og eru enn i dag hvarvetna
flutt meðal hins besta og háleit-
asta, sem til er í heimi sönglist-
arinnar, og svo mun verða með-
an trú og tilbeiðsla á sjer itök
i sálum mannanna.
Annar hljómleikur var flutt-
ur 22. þ. m. Aðsókn var góð.
Viðfangsefni voru:
Bach: Preludium og tripelfuga,
es-dúr.
Mendelsohn: Andante tranqu-
illo.
Reger: Toccata og fuga (d-moll)
og (d-dúr.).
Jón Leifs: Forleikur að sálmin-
um:
Grátandi kem jeg nú
guð minn til þín.
César Franck; Choral pour
grand orgue,
a-moll.
Hr. Óskar Norðm.: Einsöngvar.
Hljómleikur þessi var að öllu
leyti vel af hendi leystur og vel
til hans vandað. Verk Bachs pg
Mendelsonns eru gömul og sigild
og bæði mjög fögur hvert á sína
vísu.
Toccata og fuga eftir Reger er
aftur nýtisk, en þó með svipuð-
um blæ og kirkjutónlist Bachs,
og er það i heild sinni afar fag-
urt og mikið verk.
Forleikur Jóns Leifs lætur vel
i mínum eyrum og virðist mjer
hann i besta samræmi við hinn
dapra og auðmjúka sálm, sem
hann er saminn við.
Verk Césars Franck hefir ný-
tískublæ með ótal hljómbrigð-
um og er í heild sinni mjög við-
hafnarmikið og fjölskrúðugt
tónverk.
Einsöngvarnir fjellu mjer á-
gætlega að öllu öðru leyti en því,
að þeir voru allir sungnir á út-
lendum málum, svo sem nú er
mikið tiðkað. Jeg álít að söngv-
arar vorir ættu að fá, þó eigi
væru nema lauslegar þýðingar
yfir söngva sína. Söngvar á er-
lendu máli njóta sín ekki til
fulls, en vera má að þýðing sje
nokkrum örðugleikum bundin.
Óskar Norðmann er að mín-
um dómi einn af vorum allra
bestu söngvurum og ber margt
til þess: Röddin er mjög
fögur og vel tamin, en látlaus
með öllu, og framburður orðs-
ins er svo góður sem hann get-
ur bestur orðið. Mjer sagt, að
ó. N. sje eigi mjög mikið „lærð-
ur“ söngvari. Jeg get vel trúað
því. En söngur hans er lifandi
dæmi þess, hve sjálfsmentun
getur náð mikilli fullkomnun,
þegar miklar gáfur og ástundun-
fylgist að.
Páll ísólfsson er aðallega
Bachs-spilari, eins og kallað er.
— Því er svo varið að í heimi
tónlistarinnar skifta menn verk-
um líkt og öðrum starfssvið-
um mannlifsins. Hljóðfæra-
meistar ástunda oftast nær. verk
eins höfundar öðrum fremur,
því að mestu andans menn í
tónlistarheiminum hafa látið
eftir sig liggja þá gnægð and-
legra auðæfa, að eigi veitir af
æfi manns til að kanna þau til
hlítar, og fá svo á vald sitt að
aðrir geti notið þeirra til fulln-
ustu.
Nú er það von allra þeirra,
sem hljómlist unna, að hljóm-
leikar þessir geti haldist, þrátt
fyrir fámenni vort, þvi að þeir
eru ein af hinum mörgu og
virðingarverðu tilraunum til
þess að opna þjóðinni nýja
heima og hefja og göfga andg
hennar.
Á. M.
Kristján Albertson
ritstjóri var meðal farþega á
„Gullfossi“ hjeðan á mánudags-
kvöldið. Ætlar hann að sitja
fund norrænna blaðamanna í
Málmey snemma í næsta mán-
uði, en síðan alþjóðafund blaða-
manna, sem haldinn verður i
Genf i septembermánuði. Gerði
hann ráð fyrir, að verða í ferð
þessari þangað til í byrjun októ-
bermánaðar. 1 f jarveru hans ann-
ast Árni Jónsson frá Múla út-
komu blaðsins og eru menn beðn-
ir að snúa sjer til hans með
greinar og annað, sem birtast á
í blaðinu. —
Heimilisfang: Brattagata 6,
Reykjavik.
Sveinn Björnsson
sendiherra og fjölskylda hans
fóru utan með „Gullfossi“ síðast.
Tekur Sveinn nú aftur við sendi-
herrastarfinu í Kaupmannahöfn.
Fiskarnir
heitir vísindarit mikið, sem ný-
komið er út, eftir Bjarna Sæ-
mundsson. Er bókin XVI + 528
bls. i stóru 8 bl. broti. —, Svo
farast Pálma Hannessyni orð
um bók þessa i Morgunbl.:
Höfundur bókarinnar er mik-
ils lofs verður fyrir alt sitt
staf í þágu íslenskrar fiskifræði,
en mest þó fyrir þessa bók, sem
jeg tel tvímælalaust besta rit,
sem nokkru sinni hefur komið
út um íslenska dýrafræði, rit
sem jafnast fyllilega á við bestu
fiskifræðirit annara þjóða á
Norðurlöndum og sannarlega er
það sjaldgæft að likt megi segja
um önnur rit, sem hjer koma út.
Síldveiðin
hefir gengið stopult vegna
ógæfta. Einnig hefir ill-
kynjuð kvefpest gengið á skipun-
um, svo sum hafa orðið að liggja
á höfnum marga daga. Mest af
þeirri síld, sem veiðst hefir, hef-
ir farið í bræðslu. 1 Akureyrar-
umdæmi hafa að eins verið salt-
aðar 1510 tunnur. Fyrsti verulegi
þurkdagur nú í hálfan mánuð í
dag og hefir bændum tekist að
bjarga töðu sinni, sem lá undir
skemdum. í Öxnadal hafði taða
skemst til muna á sumum bæj-
um. Og svo mun viðar, þó ekki
hafi til spurst enn. Óþurkarnir
munu hafa verið mestir i dölum
inn til fjalla.
Síðustu símfregnir.
Simað er frá London, að for-
ingjar verkalýðsfjelaganna sjeu
í vandræðum, þar eð margir
námumenn sjeu farnir að vinna,
án þess að skeyta boðum þeirra.
Cook, foringi námumanna, telur
sig fúsan til þess að semja nm
ný launakjör.
Kaupmannahöfn, FB. 26. júli.
Símað er frá Moskva: Hæg-
l'ara meirihluti kommunista-
flokksins víkur Sinovjev frá,
„politisk bureau“. Lasjsvitsj hót-
að útilokun, nema hætti andvigri
starfsemi.
Kaupmannahöfn, FB. 27. júlú
Simað er frá París, að Poin-
care hafi lagt nefndarálit sjer-
fræðingannna til grundvallar
fyrirætlunum sínum í fjárhags-
málinu. Sennilegt er talið, að
lagðir verði á nýir óbeinir skatt-
ar, sem afli rikissjóðnum upp-
hæð, er nemi hálfum þriðjai
miljarð franka.
Ennfremur ætla menn, að
tekjusköttunum verði breytt
svo, að iðnaðinum verði ljettir
að, og að skattar lækki á þeim
hluta verkalýðsins, sem verst er
launaður.
Kaupmannahöfn, FB. 28. júlí.
Símað er frá París, að Drús-
ar hafi óvænt gert snarpa árás
á Frakka nálægt Damaskus. Af
Frökkum fjellu 50 menn, en
100 særðust. Tveir flugmenn
brunnu lifandi i nauðalendingu.
Prentsmiðjan Gutenberg.