Vörður - 30.10.1926, Blaðsíða 4
4
V Ö R Ð U R
Ósbergs-skipið
•r einn þeirra minjagripa, sem
ailir ferðamenn skoða er til Osló
koma. Víkingaskip þetta fanst
1904 í haugi í Vesturfold i Nor-
egi. Hefir það til þessa staðið í
hlikkskúr bak við háskólann, en
nú hefir það verið flutt i þjóð-
minjasafnið i Bygðey.
Myndin fyrir ofan þessar lín-
ur var tekin þegar skipið var
flutt vfir Tordenskjold-torgið, og
hefir Ijósmyndarinn hagað
myndtökunni þannig, að lik-
neski sjógarpsins fræga sýnist
standa upp i skipinu.
verið ásáttir um og starfa svo
saman í hróðerni að útbreiðslu
guðsríkisins. Þetta er mönnum
að skiljast betur og betur.
Það er eins og síra Luðvíg
haldi, að við sjeum að koma hjer
fram með eitthvað nýtt. Hann
virðist ekki hafa fylgst vel með
og ekki lesið vel rit þau, sem
hann segir, að biskupinn hafi
gefið sjer, ef hann veit ekki að
þessi stefna er nú á tímum mjög
að ryðja sjer til rúms í hinum
kristna heimi. í þá átl fara m. a.
hin miklu kirkjuþing, sem nú
eru haldin árlega, þar seih
mæta fulltrúar allra xnögulegra
kirkjudeilda og trúflokka og
rjetta hver öðrum höndina í
einni trú, einni von og einum
kærleika.
Þar er ekki verið að spyrja:
f hverju greinist nú þín trú frá
minni, svo jeg geti sparkað í þig
ef okkur greinir á, heldur er þar
leitað að hinum breiða sameigin-
lega grundvelli. Af þessum grunni
viljuin við láta hina íslensku
þjóðkirkju rísa og sníða kenslu-
hókina í kristnum fræðum handa
börnunum þar eftir. Við teljum
að kennararnir væru þá i minni
vanda settir við kensluna í
kristnilm fræðum og færri ásteit-
ingarsteinar fyrir börnin þegar
þau fara að læra meira og þegar
þau fara sjáJf að kryfja til
mergjar það, sem þeim hefir
verið kent og þau tekið við í
„góðri trú“. Frh.
Björn Stefánsson.
Kosningarnar
í Reykjavík fóru svo, að A-list-
inn fjekk 2557 atkv. en B-Jistinn
3877. Voru þannig kosnir báðir
efstu menn listanna, Hjeðinn
Valdimarsson og Jón Ólafsson.
í Rangárvallasýslu var kosinn
Einar Jónsson bóndi á Geldinga-
læk með 611 atkkv., Jakob Lár-
usson fjekk 361 atkv.
í Dalasýslu var kosinn Jón
Guðnason prestur á Kvenna-
brekku með 271 atkv., Sigurður
Eggerz fjekk 238 atkv., Árni
Árnason læknir 117 atkv.
Fjalla-Eyvind
er nú verið að sýna á Allé-
leikhúsinu (áður Betty Nansen-
leikhúsinu) i Khöfn. Gunnar
Tollnes leikur Eyvind. Sýningin
þykir hafa tekist vel.
L
Meðal annara
orða —.
Úr náttúrunnar riki.
Um fátt var Jónasi frá Hriflu
tíðræddara nú fyrir kosningarn-
ar, bæði í Tímanum og á mann-
fundum, en Estrup og Mussolini.
Hann kvað Estrup hafa stjórnað
Danmörku árum saman „með
ofsa og ofbeldi“ og hrifsað fje
„úr ríkissjóði í herbúnað, þvert
ofan í vilja þjóðarinnar." En
flokksmenn Mussolini á Ítalíu
hafa „í þjónustu sinna Mbl.
kaupmanna, brent og rænt búðir
kaupfjelaganna í gjörvöllu land-
inu“. „Þeir hafa drepið menn svo
þúsundum skiftir fyrir að liafa
aðra skoðun á landsmálum“,
segir J. J. ennfremur. „Þeir
myrtu einn þingmann á leið til
þinghússins" o. s. frv.
Hvað kemur þetta landkjörinu
við? mun margur spyrja í sak-
lausri undrun. Og það stendur
ekki á svörum hjá Jónasi: Hann
segir, að islensku ihaldsblöðin
hafi lofað og lignað „ofbeldið,
manndrápin, ránin og brennurn-
ar“ á Ítalíu. Og ennfremur segir
hann: „Jón Þorláksson hefir í
orði og verki sýnt, að hann lang-
ar til að faeita ofbeldi við stjórn
landsins. Hið eina, sem hindrar
hann og lið hans frá því, er
óttinn við mótstöðuna frá meg-
inþorra þjóðarinnar, bæði í
sveitunum og við sjóinn“.
Með öðrum orðum — Jón Þor-
láksson og íhaldsflokkinn þyrst-
ir í manndráp, rán og brennur —
en kjarkinn brestur!
í sumar flutti Vörður frjetta-
grein um hið svonefnda Berges-
mál, og skýrði m. a. frá þeim
málsbótum, sem færðar væru
fram í Noregi fyrir lánum Berg-
es-stjórnarinnar til Handels-
banken i Osló. Vörður skorar á
hvern sem getur, að vitna i eina
setningu úr þeirri grein, þar
sem blaðið leggi dóm á gjörðir
þeirrar stjórnar. En út af þess-
ari frjettagrein, skrifar J. J. í
Tímann:
„í einni af útgáfum Mbl. gerð-
ist Jón Þorláksson svo djarfur,
að verja atferli Berge. íslenska
íhaldsstjórnin ljet halda því
fram, að hjer bryti nauðsyn
lög1). Hvers vegna gat Jón Þorl.
1) 1 grein Varðar stóð: „En fylgis-
menn hans (þ. e. Berges) haldn þvi
komið til hugar, að láta blað
stjórnarinnar, tilefnislaust, fara
að verja hið vonlausa hneykslis-
mál Berge? Engin ástæða sýnist
önnur til þess en sú, að Berge
framdi ofbeldi í þágu norskra
íhaldsmanna. Jóni dettur í hug,
að gott sje að hafa þarna for-
dæmi, ef íhaldinu íslenslta lægi
á að brúka ríkissjóðinn eins og
Estrup og Berge, án þess að þing
og þjóð leyfði“.
Það fer að verða varhugarvert
fyrir íhaldsblöðin á Islandi að
flytja útlendar frjettir.
Hvað þóknast Iierra Jónasi að
bjóða þjóðinni mest upp á?
Vörður flutti um daginn
fregnir af fellibylnum í Florida.
Mætti elcki skrifa t. d. eitthvað
á þá leið, að Jón Þorláksson
hefði nú hlakkað yfir því í ein-
um af dilkum Mbl., að fellibyl-
ur hefði gjörcytt stórum land-
spildum í Ameríku — og svo
leiða likur að því, hvers
hann óskaði sínu eigin landi. Þá
hefir Vörður og öðru hvoru
minst á kolaverkfallið í Eng-
land. Mætti ekki segja að I-
haldið hefði dálæti á verkföll-
um, gleddist þegar þröngt væri í
búi hjá fátæklingunum o. s. frv.?
Ef Jónas tæki sig lil og ynni
vel úr öllum útlendum frjettum,
sem íhaldsblöðin flytja — ja, þá
yrði margur laglegur kapituli
til!
Þá væri Framsókn borgið við
næstu kosningar.
Og færi þá vel á því, að þing-
flokkurinn bæri hinn drenglund-
aða og sannorða foringja sinn á
gullstól inn i þingsalinn í febr.
1928.
Því það er heiður fyrir hver ja
þjóð, að viðurkenna mikilmenni
sín í lifandi lífi.
Jarðskjálftar.
Aðfaranótt mánudags urðu
allmiklir jarðskjálftakippir á
Reykjanesi og kom allmikil
sprunga í vitann þar, en ljósið
sloknaði vegna þess að kvika-
silfur heltist niður. Annars höfðu
ljósatækin ekkert skemst. Suinir
kippirnir höfðu verið allsnarpir
og ljet svo hátt í húsunum, að
ekki heyrðist mannamál, elda-
vjelar og ofnar hentust til i her-
fram, að hann liafi brotið hana (þ. e.
stjórnarskrána) af brýnni nauðsyn og
nauðsyn brjóti lög“. (Vörður 31. júli).
Verðlækkun á bókum.
Bókaverslunin E m a u s hefir Iækkað verð á eftirtöldum l'orlagg-
bókum sinum:
„Saga Abrahams Lincolns“ kostaði áður 14 kr. innb. og 1-2 kr. heá't:
kostar nú 10 kr. innb. og 8 kr. heft.
„Vormenn íslands“. Æfisögur Skúla fógeta, Jóns Eiríkssonar, EgRerte
Ólafssonar, Bjarna Pálssonar landlæknis og sr. Björns Halldó»»-
sonar í Sauðlauksdal, kostaði áður 10 kr. í handi og 8 kr. heft; kost-
ar nú 8 kr. í bandi og 6 kr. heft.
Verksmiðjustúlkan kostaði áður 7 kr. í bandi og 6 kr. í kápu; kostar
nú 6 kr. í bandi og 4 kr. í kápu.
„Fermingargjöfin hcitir iítil, falleg bók, ætluð til fermingargjafa.
kostar bundin í laglegt gylt band kr. 3.00 —: Þessar ofantöldu
bækur gela menn fengið keyptar hjá bóksölum, eða pantað þær
beint frá
Bókaversluninni Emaus Bergstaðastræti 27
Reykjavík.
UNGLINGAKENSLA.
Jeg imdirritaður hefi áformað, éf nægjanleg þátt-
taka fæst, að liafa unglingaskóla í vetur í Tryggváskála
við ölfusá, og kenna þar allar helstu námsgreinar, sem
kendar eru í unglingaskólum hjer á landi.
Verður það meðal annars: íslenska (munnleg og
skrifleg), reikningur (þar með talið hókfærsla og hú-
reikningar) og eitthvert tungumálanná, enska, þýska eða
danska, eftir því sem nemendur óska. Einnig saga, landa-
' fræði og náttúrusaga og ef til vill söngur og fimleikar,
ei hægt verður að koma því við.
Kenslukraftar fara eftir því, hve þátttakan verður
mikil. Kenslan byrjar 20. nóvember n. k. og varir til 15.
maí n. ár, eða skémur, eftir því hvað mönnum þykir
heppilegt.
Væntanlegum nemendum gefst kostur á að fá fæði,
húsnæði og þjónustu hjá Guðlaugi Þórðarsyni í Tryggva-
skála fyrir sannvirði. Annars ættu þeir, sem heima eiga
ekki lengra en alt að klukkustundargang frá kenslustað,
að geta sótt kensluna daglega heimanað.
Þeir, sem hafa í hyggju að nota sjer kenslu þessa,
<j J'i sig fram við mig, eða ofannefndan Guðlaug hið
fyrsta áður en kenslan á að byrja.
Tryggvaskála, 23. október 1920.
Jón Kristgeirsson.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS.
Rauði krossinn hefir keypt vandaða, nýja sjúkrabifreið,
sem rúmar tvo sjúklinga. Auk þess eru sæti fyrir þrjá
menn. Bifreiðin fæst til sjúkraflutninga svo langt sem
akfærir vegir ná út frá Reykjavík. Afgreiðslu annast fyrst
um sinn Slökkistöð Reykjavíkur.
bergjunum, en rúöur brotnuÖu.
Kippirnir lijeldust á mánudag og
fram á aðfaranótt þriðjudags, en
siðan hefir ekki orðið jarð-
skjálfta vart.
'Ó'* , i # y r ' ’ ' /
á- •>. L f k* t ’-v
I Suðurlandsskólinn.
Atkvæðagreiðslan á Rangár-
völlum um skólamálið fór svo,
að 329 greiddu atkv. með sam-
skóla fyrir suðurláglendið, 260
ineð sjerskóla fyrir Rangárvalla-
sýslu, en 200 gegn þvi að nokkur
skóli yrði reistur. 21 skiluðu auð-
um seðli. — Landmannahreppur
tók eigi þátt í atkvæðagreiðsl-
unni, með því að hreppsbúar
hafa áður með samþykt tjáð sig
meðmælta samskólanum.
Unglingaskóli í Tryggvaskála.
Á öðrum stað hjer i blaðinu
auglýsir Jón Kristgeirsson að
hann hafi í hyggju að halda uppi
unglingakenslu i Tryggvaskála
í vetur, ef nægileg þátttaka fæst.
Hefir J. K. fengist talsvert við
kenslu á síðari árum, búið pilta
undir gagnfræðapróf, verið
heimiliskennari o. s. frv. og get-
ið sjer gott orð. Þar eð ekki
verður kostur á annari unglinga-
kenslu á suðurláglendinu í vetur,
má búast við, að skólinn í
Tryggvaskála verði vel sóttur.
Nýjar bækur:
Þrir fyrirlcstrar um sanwinnu-
mál eftir Axel Gjöres, A.Aulauko
og Hall prófessor, þýddir og gefn-
ir út af Sigurði Sigurðssyni frá
Kálfafelli. Fyrirlestrarnir eru
sjerprentaðir úr Lögrjeitu og
fjalla um samvinnuna í Svíþjóð,
Finnlandi og Bretlandi.—Kongs-
dóttirin fagra, æfintýri handa
börnum eftir Bjarna M. Jónsson..
Æfintýrið er prýtt myndum.
Ólafur Túbals
málari hefir opnað sýningu í
húsi K. F. U. M. Verður hún op-
in frá kl. 11—5 daglega.
Prentsmiðjan Gutenberg.
I