Menntamál - 01.01.1927, Blaðsíða 11
MENTAMÁL
4i
eru til viö hæfi barna í kauptúnum, en mýmörg í sveitum,
og þau flest hollari barnshuganum, en ])au fáu, sem í kaup-
túnurn eru. Eöa hugsiö ykkur muninn á því, fyrir barnshug-
ann, aö annast skepnur, kýr, ltindur og hesta, og taka trygö
við, eöa að „búnta“ saltfisk. — Og enn er það ótalið, sem
ef til vill skiftir mestu rnáli, en ])að er umhverfið. Er ekki
niunur fyrir börnin að koma út úr „bæiium" sínum og fara
að leika sjer, þar sem „blómin anga öll og skreyta víðan völl“,
„þar sem urn grænar grundir líöa skínandi ár að ægi blám".
þar sem „syngur i runni og senn kemur lóa, svanir á tjarnir
og þröstur x tún“, eða koma út úr húsinu sínu og- á götuna,
oftast annaðhvort óhreinar og blautar, eða svo rykugar, að sje
einhver vindur, þá þyrlast í-ykið upp og gerir „rykbyl“. —-
Og það þykir margsannað, að umhverfið hafi mjög mikil á-
hrif, ekki eingöngu á barnshugann, heldur og á hug fullorð-
inna. Af öllu þessu er ljóst, að uppeldisskilyrði sveitanna hafa
verið og eru enn, mun betri en kauptúnanna. Þó er ei þar
með sagt, að kauptúnin gætu ekki haldiö viö ýmsum góðum
og gömlum venjuin sveitaheimilanna, umfram það, sem þau
gera nú. Vil jeg t. d. nefna húslestrana, sem kauptúnin eru
að leggja fyrir óðal. Venja var að láta börnin fara út á morgn-
ana, signa sig og bjóða síðan góðan dag; eins að biðja guð að
blessa sjer matinn og þakka honum að máltíö lokinni. Þessir
siðir erú óðum að hverfa, og" fleira mætti nefna þessu líkt. —
— Víkjurn þá nánar að börnum kauptúnanna. — Aðalleik-
völlur Jxeirra er gatan, svo holl og falleg- senx hún er. Þar
þyrpast börnin sarnan til leika, og þarf engan að undra, þótt
hávaðasanxt verði, ]xegar 50—100 börn eða meir, eru komin
í einn hóp. Gegnir mestu furðu, að nokkur fullorðinn skuli
hafa orð á því, þótt börn leiki sjer, eða hafi nokkuð lrátt.
Hvað ættu þau annars aö gera á götunni? Þætti ykkur ]xað
eðlilegra, að þau gengju til og frá nxeð hendur i vösum og’
höfuðið niðri á bringu. Jeg held við yrðum þá öll ln-ædd um
að eitthvað væri að börnunum. Á þá ekkert að skifta sjer
af börnunum, þegar þau eru úti? Jú, vissulega, og þau af-