Menntamál - 01.01.1927, Page 12
42
MENTAMÁL
skifti eru vitanlega langt of lítil, vegna þess aS ástæöur
banna eftirlit. Afskiftin eiga einkum aö stefna aö því, aö
reyna aö hafa áhrif á leiki þeirra til liins betra. Skal jeg nefna
t. d„ aö vará þau við a‘ð hafa hátt þar nálægt, sem veikt fóll-c
er, að biðja þau að gæta þess, að vera ekki í vegi fyrir full-
orðnum, við að skoppa gjörðum eða því um líkt, að skemma
ekki neitt, o. fl. þessu likt. Annars verður það aldrei sagt
of skýrt, að gatan er sá versti leikvöllur, sem til er. Kinmitt
þar læra börnin flest það, er þau ættu sízt að kunna, t. d. ljótt
orðbragð, ósannsögli og ýmriskonar strákapor. Eru þau orðin
útlærð í þessu langt fyrir innan skólaaldur og hika ekki við
að munnhöggvast við fullorðna, ef svo býður við að horfa.
Er undarlegt, að fólk skuli véra að tala um, að þetta sjeu
nú „skólabörnin", ef þeim verður eitthvað á, vitandi þó. að
sömu yfirsjónir, eða svipaðar, hafa oft komið fyrir hjá sömu
börnum, löngu fyrir skólaaldur. — Eða búast menn við að
nokkur skóli gjörbreyti börnunum? Eða halda menn að það
sjeu kennararnir einir, er áhrif hafa i skólanum, en áhrifa
frá börnunum sjálfunt og heimilunum gæti alls ekki neitt?
Nei ,við skulum vera sanngjörn og játa, að bæði heimili og
skólar vilja alt hið bezta börnunum til handa, en einmitt götu-
lífið spillir börnunum mest. — Þetta er og hvarvetna viður-
kent. Það er ekki gert að gamni sínu, að láta skólana starfa
alt að 10 mánuði, og láta þá taka börnin 7 ára eða jafnvel
yngri. — Kaupstaðirnir hafa neyðst til að gera þetta, til að
hjálpa heimilunum til að halda börnunum frá götulífinu. Þar
aö auki eru víða sumarskólar, og alkunnugt er, að bæði kaup-
túna- og kaupstaðabörnum er hópum samán komið í sveit að
sumrinu, alt til þess að forða þeim frá götunni. — Getum við
þá nokkuð gert hjer, í þessum efnum. — Erfitt er það sjálf-
sagt, en ekki alveg ómögulegt. Væri t. d. ekki hægt að koma
þeirri reglu á, að börn væru ekki úti á kvöldin að vetri til,
lengur en til kl. 7 eða þar um bil. — Ef öll heimili væru sám-
taka um þetta, væri að því töluverð bót. — Yfirleitt hygg jeg
að börnin hefðu ekki verra af því, þótt heimilisagi væri öllu