Menntamál - 01.01.1927, Blaðsíða 16
46
MENTAMÁL
Bækur.
Freysteinn Gunnarsson: Dönsk orðabók m e 8 í s-
lenzkum þýöingum. 749 bls. Verö kr. 18.00..
Danska oröabók hefir vantaö tilíinnanlega í nokkur ár. En
nú hefir Freysteinn Gunnarsson leyst meö sóma úr þeirri þörf.
Hin eldri orðabók Björn Jónssonar og Jónasar Jónassonar er
stofninn í þessari bók, en aukinn um fullan þriðjung, sýnd
áherzla danskra orða, málfræðiheiti við hvert orð, þýðingar
lagfærðar o. fl. Eru þýðingarnar fjölbreyttar, viröast yfirleitt
nákvæmar og geröar af öruggum smekk á íslenzka tungu.
Hefir Freysteinn unnið þrekvirki á skömmum tíma, með samn-
ingu þessarar bókar, og bætt nauðsyn alls þess skólafólks, sem
stund leggur á dönskunám. Bókin er og ómissandi þeim, sem
viö þýðingar fást, þegar leita þarf góðra íslenzkra orða, því
orðin vantar oft, þó skilning skorti ekki, enda mörgum nú
orðið tamt aö hugsa i erlendum orðum, og veröur því stirt
um, þegar ])ýöa skal eða rita.
Friðrik Bjarnason: Skólasöngvar. Hafnarfirði 1926.
Verö 1 kr.
í heftinu eru 23 lög frumsamin, en kvæöin og vísurnar ílest
eftir hin yngri skáld þjóðarinnar. Ágætur tónlistarmaður segir
mjer, að lögin sjeu yfirleitt ágæt, að vísu ekki rnikið um nýja
samhljóma, en falleg, lipur og ljett. Er raunin og ólýgnust,
því fyrsta útgáfan er þegar uppseld, og von á annari innan
skamms. Er hjer um að ræða fyrsta frumsamda sönglagaheftiö
fyrir börn, og mun tónskál.dinu hafa tekist svo vel, aö sjálf-
sagt er, að allir skólar á landinu noti heftið við söngkenslu
l)arna. Væri gott að eiga von á fleirum slíkum heftum.