Menntamál - 01.07.1927, Blaðsíða 4
84
MENTAMÁL
Slík lög virSa drengir l)etur en valdboS. „Þú skalt“ hvetur
stælta stráka til mótþróa.
Einkunnaror‘5 skáta er: „Vertu viöbúinn". Þ. e. viðbúinn
aö vera sjálfbjarga og gera skyldu þína, hvar og hvenær sem
er og hvernig sem á stendur, og þá fyrst og fremst ])á skyldu,
aö hjálpa öðrum af fremsta megni. Æfingar skáta, leikir og
störf miöá öll aö því, aö hlýða þessu kjörorði. Því aöeins eru
menn viðbúnir, hvað sem að höndum ber, að þeir hafi til að
bera margvíslega leikni og kunnáttu. Skátum ber að afla sjer
þess, og í því efni eru skátafjelög kröfuhörð.
Hver drengur, er gerast vill skáti, verður að ljúka nýliða-
prófi, áður en hann vinnur skátaheit og öðlast rjett til að
bera einkennisbúning. Að því loknu hefst undirbúningur undir
minna skátapróf. Sá, sem staðist hefir það, er II. flokks skáti.
en I. flokks skáti veröur hann ])á fyrst, er meira prófi er
náö. Til þess að standast það, verður skátinn að hafa náö
góðri leikni í því, sem hjer segir:
i. Hjálp í viðlögum. Kunna: a. Að lýsa líkama mannsins og helstu
störfum hans. b. A8 stöðva blóðrás og binda um sár. c. A8 binda
um beinbrot og kippa í lið. d. Ráð við krampa, eitrun, iiruna, kali og
mari. e. A8 lífga úr dát. — 2. Geta synt 25 stikur í skvrtu, brókum og
sokkum og 100 stikur i sundfötum. — 3. Kunna helstu glimubrögð og
varnir, samkv. Glímubók f. S. f. — 4. Kunna aÖ búa tii tvo rjetti matar,
kjötmat og spónamat. — 5. Senda og lesa úr ílaggskcytum, 35 s.tafi á
inínútu, og jiekkja Morse-kerfið. —- 6. Þekkja merki á landabrjefi, geta
krotað upp landabrjef og áttað sig eftir því úti. — 7. Þekkja stjörnu,-
merkin: Karlsvagninn, Orion, Kasiopeja, tviburana, .hundastjörnuna og
sjöstirnið. — 8. Kunna að greina sundur helstu seglskip, alt að þrísigldri
skonnortu og barkskipi og vita helstu heiti segla. — 9. Þekkja helstu drætti
í sögtt bæjar þess, er skátinn á heima í, og .vita, hvernig honum er
stjórnað.— 10. Geta lýst manni, er ltann hefir horft á drykklanga stund
(15 sek.). — ii. Geta mælt hæð húss og breidd vatnsfalls áhaldalaust
og ætlast á um fjariægðir. — 12. Kunna að reisa tjald og fást viÖ elda-
mensku úti. — 13. Hafa lesið merkustu íslendingasögur og þekkja helztu
sögustaði landsins.
Hvort prófið veitir rjett til þess að bera tiltekið' merki á
búningi sínum. En auk þess geta einstakir skátar lokiö sjer-