Menntamál - 01.07.1927, Page 5
MENTAMÁL
85
prófi í ýmsum greinum, er þeir hafa áhuga á, og hlotiS merki
fyrir. Merkin auka kapp og metnaS.
Skátar æfa sig og starfa í flokkum. Eru 6 eLSa 8 drengir
í hverjum flokki; er einn þeirra foringi og annar a'östoðar-
foringi. Bera þeir ábyrgö á störfum flokks síns, og sjá um
undirbúning hans undir próf. Flokkaskifting þessi er til þess
ger, aS knýja sem flesta til starfa, meö því aö láta þá hafa
vegsemd og vanda, venja þá á aS Itera ábyrgS og stjórna
sjer og öörum. Fáir drengir eiga líka hægra um samvinnu
en margir.
6 eSa færri flokkar mynda sveit. Veröur sveitarforingi aö
vera fulltíöa maöur, fær um aö leiöa skátastarfiö og beina
áhuga drengjanna í rjettar áttir. En áhuginn veröur aS vaka,
annars er alt ónýtt. Skátar vita, betur en skólamenn, hvernig
á aS halda honum viö. í skólum eru börn aö miklu leyti til-
heyrendur og áhorfendur. Námsefniö er þar orö og myndir,
—■ ekki lífið sjálft. Skátar spara orö, en taka framkvæmdir
fram yfir. Þeim er ljóst, aö annaö er aö v i t a, hvernig á aS
vinna verk, og aö g e t a unnið þaö. Drengir eru fúsir aö fást
viö verkleg viöfangsefni, ekki sist ef þeir sjá takmark fram
undan, en eru sjálfráðir um leiöina aö þvi, ■— og vita sig
þó eiga ráögjafa vísan, ef í raunir rekur, þar sem leiötogi
þeirra er.
Hjer er, því miöur, ekki rúm til þess aö lýsa frekar starfs-
háttum skáta. Er þó freistandi aö segja frá útilegum þeirra, og
hinum margháttuöu leikjúhn, er allir miöa aö einhverju upp-
eldismarki. Veröur aö nægja aö visa um þetta til skátabóka.
Ritstjóri „Mentamála“ hefir beSiö mig aö rita blaöinu grein
um skáta, gefa ráö um myndun skátafjelags og vísa á helstu
handbækur um skátamál. Hefi jeg í undanförnu máli leitast
viö a'S skýra sem fáoröast frá hvaö hreyfing þessi er, og
hvernig á henni stendur. Liggur ])á næst fyrir aö víkja aö