Menntamál - 01.08.1927, Síða 12
jo8
MENTAMÁL
ágalla. Vita menn þetta raunar gerla um alt þaö, sem að breytni
0.g siöferöi lýtur. En margir eru þeirrar skoöunar, aö þetta
beri engu síöur að varast vel, þó að ekki sje um annaö að
ræða en gallaö gáfnafar eöa andlegan vanþroska, tornæmi
og tregðu. Kona, sem er skólastjóri fyrir stórurn og' ágætum
barnaskóla, einhver l)ezta köna, sem jeg hefi talaö viö um
skólamál, sagði við mig: Jeg játa það, aö jeg kann ekki ráð,
en jeg verð sí og æ hræddari og hræddari viö tossabekkina.
Hún var hrædd við þann andlega þunga, sein færist eins og
mara yfir slíkan hóp, aö þessi heildarhugblær gerði raunar
hvert barn heimskara, sem inn í þann hóp kæmi. Hjer ráða
lögmál, sem viö getum ekki greint, en grunar þó, aö til sjeu.
Hvorttveggja ])etta eru raunar rök á móti sjerstökum hæl-
um: hættan við, aö barninu finnist hælisvistin eins og stimp-
ill á sjer, og svo þetta, að safna þeim sarnan i eitt, sem van-
þroskaðir eru andlega, en sumpart á valdi illra tilhneiginga.
Ekkert er manninum náttúrlegra en það, að mega lifa lífinu
óhindraður með öðru fólki, rjett eins og það kemur fyrir;
á því byggja ])eir menn, sem reyna í lengstu lög að halda
börnum frá hælum og' föstum uppeldisstofnunum; og hvert
gott hæli stefnir að ])vi, aö geta sem fyrst slept barninu út
i sjálft lífiö. til ])ess að veröa ])ar að manni. (Meira).
Skrifleg próf.
Alllangt er síðan vakiö var máls á ])ví 'hjer á landi, að taka
skyldi upp skrifleg próf í barnaskólum um alt land. Það virö-
ist sem það mál hafi átt formælendur fáa, ])ví að ennþá stönd-
um við svo að segja í sömu sporum í því efni. Sambandsþing
isl. l)arnakennara hefir oft rætt mál þ’étta, en litlu eða engu
komið til leiðar,. Nú er ný fræðslumálastjórn tekin viö, og má
nú miklu frekar vænta þess en áður, að þessu máli verði gaum-
ur gefinn.