Menntamál - 01.08.1935, Page 12
90
MENNTAMÁJ.
aldlegs efnis, —- þar sem efni Mysteri-leikjanna var ætíð
trúarlegs eðlis, — liggur beint við að álita, að starf-
semi og leikritagerð þessara leikflokka, sé sú undir-
staða eða upphaf, sem nútímaleikritagerðin og nútíma-
leikhúsið sé sprottið upp af.
Mysteri-leikirnar hafa aftur á móti horfið úr sögunni,
nærri þvi að fullu og öllu, þó að sýningarnar i Oher-
ammergau á Þýzkalandi megi leljast til þeirra, og þó
að einstöku sinnum heri það við, að eitt eða annað leik-
hús taki til meðferðar eitllivert af þessum forhgrip-
um, þá mega þetta teljast undantekningar, sem heyra
frekar til fortíðinni en nútíðinni.
Jafnframt þessum visi til borgaralegrar leiklistar. hélt
leiklistin innreið sína í skólana víðsvegar um Evrópu.
Skólastjórarnir skrifuðu sjálfir leikritin og tóku þar
til meðferðar viðfangsefni, sem lágu að mestu fyrir
utan skólana. í leikritum þessum voru t. d. oft svæsn-
ar stjórnmálaárásir, vægðarlausar ádeilur á embættis-
menn ríkisins, háa sem lága. Leikir þessir voru sýndir
af nemendum skólanna, og voru þeir ekki einungis mjög
vjnsælt skemmtiatriði, heldur líka og raunar miklu
fremur, voru þeir álitnir mikilsvert og veigamikið upp-
eldisfræðilcgt atriði, og ekki óhugsandi, að þeir hafi
haft eitthvert gildi í þá átt, þó að manni verði á að
efast um, að uppeldisfræðingar þeirra tiiha, hafi álitið
efni þessara leikrita sem hezt fallið til framsagnaræf-
inga fyrir nemendurna, eins og þau koma leikliúsmönn-
um og uppeldisfræðingum nútímans fyrir augu.
En hitt er víst, að heztu skopleikir miðalda-Evrópu
sverja sig ótvírælt í ætt við beztu skólaleikina, eins og
t. d. hinn nafnfrægi, franski skopleikur „Maistre Mi-
min“, sem minnir svo mjög á Erasmus Montanus eftir
Ludvig Holberg. Enginn vafi er heldur talinn leika á
því, að þar hafi Holberg haft fyrirmyndina að sínum
leik.