Menntamál - 01.09.1937, Blaðsíða 64
142
MENNTAMÁI.
Frá Suður-Jótlandi kom eg svo í ágústbyrjun. Mér var
áhugamál að sjá og lieyra Mariu Montissori, en hún hélt
þá námskeið i Kaupmannahöfn og hafði sýningu þar.
Eg hlustaði á eitt erindi hennar. Hún mælti á ítölsku, en
ræða hennar var afburða vel túlkuð yfir á dönsku.
— Ilvað fannst þér um ræðu hennar og sýningu?
— Þessi ligna kona er vafalaust einn af stærstu öndum
veraldarinnar, sumir álila hana ekki einungis mesta upp-
eidisfræðing vorra tíma, heldur ef til vill stærsta sálar-
og mannþekkjara allra alda. Hún hefir boðskap að fytja.
Og sá boðskapur er i stuttu máli: Uppeldið fyrir friðar-
hugsjónina. Hún leggur sterka áherzlu á það, að hver ein-
staklingur fái tækifæri til þess að finna sjálfan sig, þvi
að hver persóna hafi þörf fyrir það að vera verðlögð,
matin, og vera þá einhvers virði. Maria Montissori hefir
stóran og vaxandi hóp aðdáenda í flestum löndum, en i
einræðislöndunum, Þýzkalandi, Ítalíu og Rússlandi liefir
hún ekki fótfestu. Um Montissori-kerfið vil eg annars
vísa til Hafliða M. Sæmundssonar, þcss Iselndings, sem
liefir kynnsl frúnni og kerfi liennar allra manna hezt.
Eg vil í þessu sambandi láta þá skoðun í ljós, að eg álit
að nauðsynlegt væri fyrir oss liér heima að styrkja Haf-
liða í þvi að koma á fót fullkomnum Montissoriskóla hér
i Reykjavík.
— Hvað fleira um ferðalagið?
— Margt mætti hér um fleira segja. Eg kynnti mér
meðferð barnaverndarmála og ferðaðist allmikið með yfir-
manni þess kerfis, skoðaði skóla og stofnanir. í því efni
erum við liundrað árum á eftir in-æðraþjóðunum, ekki
svo að skilja, að eg álíli það nógu fullkomið, sem eg sá,
heldur hafa þeir byrjað í starfseminni fyrir 100 árum
rúmum. Eg Iiafði gaman af Jiví, þegar eg kom á eitt barna-
heimili á Sjálandi, sem var á leið að lialda 100 ára afmæli
í júní ’37, að kynnast því að æfintýraskáldið mikla, H. C.
Andersen, liafði verið einn af þeim fyrstu, sem sinntu