Menntamál - 01.09.1937, Blaðsíða 80
158
MENNTAMÁL
Nýjar bœkur:
UPPELDIÐ, eftir Bertrand Russel. Frœg bók um uppeldis-
mál. Þýðing eftir Ármann Halldórsson.
JÖRÐIN OKKAIt OG VIÐ, eftir Adam Gowans Whyte. Þýð-
ing eftir Valtýr Guðjónsson kennara. Fróðleg bók fyrir
börn og unglinga, náttúrufræðilegs efnis. — Árni Frið,-
riksson magister ritar formála fyrir bókinni og lýkur á
hana miklu lofsorði.
FORD. Langbezta drengjabók ársins. Þýðing eftir Freystein
Gunnarsson skólastjóra.
Stjórn S. I. B. heftir sent Alþingi erindi um menntunarmál
kennara; ennfremur um námseftirlit, hvorttveggja i samræmi við
samþykktir fulltrúaþingsins í vor.
Launamálið. Stjórn S. í. B. hefir kosið fimm manna nefnd sér
til aðstoðar í launabaráttunni. Nefndina skipa: Bjarni M. Jóns-
son, Guðmundur Björnsson, Akranesi, Ingimar Jóhannesson, Sife-
urður Jónsson, Mýrarhúsum og Sigurvin Einarsson. Stjórnin og
nefndin hafa haldið fundi og er undirbúningi að verða lokið.
Ögmundur Sigurðsson fyrverandi skólastjóri er nýlátinn. Verð-
ur þessa merka skólamanns minnzt í næsta hefli.
Suður heiðar. Hinnar nýju bókar Gunnars M. Magnúss verður
getið í næsta hefti.
tJtgefandi: Samband íslenzkra barnalcennara.
Útgáfustjórn: Sigurður Thorlacius, form., Guðjón Guðjónsson
og Sigríður Magnúsdóttir.
Ritstjóri: Sigurður Thorlacius, Austurbæjarskólanum.
Afgreiðslu- og innheimtum.: Sigríður Magnúsdöttir, Þórsgötu 19.
Félagsprentsmiðj an.