Menntamál - 01.12.1937, Blaðsíða 37
MENNTAMAL
195
Frá þinginu í Palais Royal.
Bandalagið hefir ýms stór mál á stefnuskrá sinni s. s.
það að útbreiða hugarfar friðar og hræðralags meðal al-
mennings um heim allan og að efla á allan annan hugsan-
legan hátt samvinnu og frið milli þjóðanna. Alliliða efl-
ing og umhætur á skóliun, á starfi og starfskilyrðum
kennara um heim allau er annað meginstefnuskráratriðið.
Forvígismenn bandalagsins, og ásamt þeim kennarar
um allan heirn, líta svo á, að þetia tvennt, friðarstarfsemi
og efling skóla og menningar, verði að fara saman. Og
hver getur efast um nú á dögum, að það sé rétt? Að
hvaða gagni koma skólar, bókmenntir, listaverk, í einu
orði, það sem við köllum menningu, þar sem allt er skotið
í rústir, eyðilagt og svívirt eins og nú er gert iá Spáni og í
Kína.
Ég skal játa, að þótt ég tali hér um stefnuskná Alþjóða-
handalags kennara, þá hefi eg ekki handa á milli hina
13*