Menntamál - 01.12.1937, Blaðsíða 76
234
MENNTAMÁI.
Alþjóðabandalag kennara lætur sór eigi til hugar koma, að
hafa áfskipti af innanríkismálum eða stjórnmáladeilum í Pól-
landi, en það krefst þess ákveðið, að viðurkennt sé sjálfstæði
kennarasambandanna hvar sem er, án þess væri tilvera Alþjóða-
Bandalagsins jafnvel ekki réttlætanleg. (Monthly Information Pa-
per No. 66/(i7).
Rússland. Á árinu 1936 voru byggðir 1070 nýir skólar (727
fleiri en 1935) í 325 bæjum Sovétríkjanna. Rúma skólar þessir
636.840 nemendur. Fjöldi annarra skóla er í smíðum. Eiga þeir
að vera tilbúnir fyrir skólaárið 1937—38. Á síðasta fjórðungi árs-
ins 1936 var byrjað á byggingum 117 skóla og fyrstu daga árs-
ins 1937 bættust 30 við. 61 skóli er í smíðum í Moskva, 18 í Len-
ingrad, 18 í Sverdlovsk, 5 i Astrakhan, 4 í Orenburg, 3 í Novo-
rossisk o. s. frv.
Æðri skólarnir í Gorki-héraði, 146 að tölu, hafa allir fengið
vélar til kvikmyndasýninga. (Heimild: I.F.T.A. Monthly Informa-
tion Paper No. 66/67, tilvitnað í Bulletin des Gomités Centraux
des Syndicats de l’Enseignement de L.U.R.S.S. 1/1937).
England. Á ársþingi íhaldsflokksins brezka, sem lialdið var
í Scarborough snemma í októher, kom frá tveimur konum fram
skörp ádeila á kennara, þar sem þeir voru sakaðir um að sá
frækorni kommúnisma og sósíalisma i skólum rikisins. Ádeilunni
var svarað einarðlega þegar á þinginu og sýnt fram á, að hún
hefði við engin rck að styðjast. Ádeila þessi hefir vakið gremju
meðal enskra kennara. „Sannleikurinn er sá,“ segir um þetta efni
í „The Schoolmaster“, „að í skólanum eru hvorki „íhaldsmenn“,
„kommúnistar", „frjálslyndir" né „verklýðssinnar". í skólunum
hafa kennararnir enga pólitíska afstöðu. Það er aðeins sem borg-
arar, sem þeir eru þátttakendur i póíitizkum flokkum, og sem
borgarar hafa þeir rétt til að teljast lil hvaða stjórnmálaflokks
sem þeim sýnist.“ (Heimild: The Schoolmaster 14. okt. 1937).
Spánn. Lýðveldisstjórnin á Spáni hefir, þrátt fyrir erfiðleika
styrjaldarinnar, komið á ýmsum mikilsVerðum umbótum í upp-
eldismálum á skólaárinu 1936—37. Meira en 4 inilljónir peseta
hafa farið til verndar barna á ófriðarsvæðinu. Ný námskrá
hefir verið samin fyrir barnaskólana og samþykkt af kennslu-
málaráðuneytinu. Keniur hún í stað þeirrar, sem verið hefir
óbreytt í gildi síðan 1911. Skortur á skólahúsum er mjög tilfinn-
anlegur á Spáni. Ilefir stjórnin því ákveðið, að byggt skuli hús-
næði fyrir 3000—3500 bekki á ári næstu 5—6 ár. Á fjárlögunum
fyrir 1937 eru áællaðar 40 milljónir peseta til nýrra kennara-