Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 63
JMENNTAMÁL
125
skoðunar liið bráðasta. Kemur þá lil athugunar, livort
ekki sé tímabært að stofna i Rvík forskóla eða iðjuskóla
að dæmi sumra annara þjóða.
Til undirbúnings sjómennskustarfa gæti komið til mála
að gefa piltum kost á námsvist á farþega- og fiskiskipum
vorum.
Auk þessa, sem eg liefi nú þegar tekið fram, vil eg
benda á, að eg tel mikla nauðsyn umbóta á uppeldi
ungra kvenna. Ber að miða þær umbætur við þá slað-
reynd, að allur þorri stúlkna verður síðar mæður og
húsmæður.
Og nú — að síðustu — kem eg að lnigmyndinni um al
mennan vinnuskóla fyrir pilta. Ætli liann einkum að
starfa að sumarlagi, að ýmsum þjóðnytjaverkum, sem eigi
eru likur til að annars myndi verða veitt fé lil í náinni
framtíð, svo sem skógrækt, sandgræðslu, áveitum, ný-
býlaræktun, lendingarbótum fyrir báta og flugvélar, ýms-
um framkvæmdum lil endurbóta á aðstöðu til íþróttaiðk-
ana o. s. frv. Um tilhögun alla má mjög styðjast við þá
reynslu, sem fengin er með þriggja ára starfi á ísafirði,
i Reykjavík og Vestmannaevjum. En á það höfum við
ininnst áður.“
Hvernig horfir um löggjöf um þessi mál?
„Eg er að ljúka við,“ segir L. G., „að semja frumvörp,
að tilhlutun rikisstjórnarinnar, þar sem mörg þau atriði,
sem drepið var á hér á undan, eru tekin til meðferðar.“
Svo sem sjá má af hinni fróðlegu frásögn L. G. er hér
um margþætt og einkar mikilsvert mál að ræða. Er þess
að vænta að kennarar um land allt fvlgist af áhuga með
því sem gerist og beiti sér fyrir þeim úrlausnum, er þeir
telja réttar, og sem bezt eiga við á hverjum stað.