Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 97
MENNTAMÁL
159
Rétt er að minnast liér einnig á liinar svokölluðu tölu-
myndir. Það tæki mun lítið liafa verið notað liér á landi,
en allmikið i nágrannalöndunum, t .d. Danmörku. —
Venjulega eru þessar tölumyndir annað hvort punktar
eða hringir raðað á ýmsan iiátt á spjald. Við notkun
slíkra merkja, sem aðeins eru fjöldatákn (symbol), fer
forgörðum sú skynjun, sem hörnin öðiast við það að
lireyfa hlutina, færa þá lil og raða þeim, og er það
mikill ókostur, einkum ef um seinþroska börn er að
ræða.
Nokkur ágreiningur hefir verið um það, hvort sú að-
ferð, að nota táknræn merki, t. d. • eða O við reikn-
ingskennsluna, hafi meira gildi en sú, að nota tölutákn-
in (tölustafina).
Heppilegasta hjálpartæki fyrir hörn á fyrsta skólaári
er líklega laus, kringlótt spjöld úr pappa eða tré, 2Yz
—3M> cm í þvermál. Kringlóttar plötur eru heppilegri
en ferkantaðar, vegna þess, að ferköntuðu plöturnar
falla alveg iiver að annarri og renna því fremur sam-
an fyrir augum barnsins, og verður því seinlegra og
erfiðara að reikna með þeim. Plötur þessar má klippa
úr pappa, og geta börniu jafnvel gert það sjálf, og'
límt síðan litaðan pappír á báðar liliðar pappans. Af
þessum plötum ætti hvert barn að hafa minnst 20 stk.
Kennslutæki líkt þessu þyrfti hvert I)arna að liafa
fyrsta skólaárið. Það yrði að vísu ekki notað nema á
tölusviðinu 1—20. En fyrir meiri liluta 7—8 ára barna
mun það meira en nóg verkefni, að reikna með tölnm
upp að 20. Sumum kann að virðast, að mörgum börn-
um muni það létt verk og lítið, að ælla Iieilan vetur
til æfinga og' náms á svo takmörkuðu sviði. En við
verðum að minnast þess, að þótt fyrsta skilyrði fyrir
reikningsnámi barnsins sé það, að barnið skilji reikn-
inginn, þá er það alls ekki nóg, þegar um undirstöðu-