Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 100
152
MEN N TAMÁLr
nemendum, heilbrigðiseftirlit, þar sem heilbrigðissér-
fræðingar starfa við stærri skóla, og síðast en ekki
sizt liin daglegu kynni og eftirlit glög'gs kennara með
hverjum einstökum nemanda.
Hér varðar miklu um starf kennarans. Það er afar
áríðandi, að hann hregði fljótt við og rannsaki gaum-
gæfilega ástæður þær, sem valda hreyllri og óvenju-
legri framkomu nemenda, eða ef útlit hans er að ein-
hverju leyti ískyggilegt. Ástæðurnar eru mjög oft slæm
aðhúð eða líðan harnsins á heimili þess.
Kennarinn verður að grafast fyrir rætur meinsins.
Þelta er oft erfitt, og þarf til þess mikla lægni og alúð>
Oft fær kennarinn miklu áorkað eingöngu með einlægu
viðtali og ráðleggingum lil foreldra eða aðstandenda
harnsins.
En verði kennarinn var við að heimilið vanræki harn-
ið, eða þvi sé af einhverjum ástæðum um megn að
láta því í té viðunandi lífs- og vaxtarskilyrði, verður
liann að gera grein fyrir rannsóknum sínum við hlut-
aðeigandi stjórnarvöld (barnaverndar-, skóla- eða fram-
færslunefndir) og ganga eftir því, að ráðstafanir séu
gerðar lil úrhótar. Það er lagaleg og siðferðileg skylda
kennarans.
Þá skal minnst liér á heilsuvernd þá, er nú er fram-
kvæmd i skólum landsins. Þar liefir raunverulega mest
á unnizt.
Nú er svo komið, að i flestum stærri barnaskólum
landsins, í kaupstöðum og kauptúnum, nevta börnin
mjólkur og lýsis í skólunum, auk þess sem börn frá
fátækum heimilum la brauðpakka með bætiefnarik-
um áskurði, eða holla skólamáltíð.
Mjólkur- og lýsisneyzla í skólum, mun vera talin af
heilbrigðisfræðingum í fremstu röð heilsuverndarráð-
stafana.
Þá er nú fengin viðurkenning fyrir því, að sérstak-