Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 102
164
MENNTAMÁL
næga og liolla fæðu og aðbúð brestur. — Fleiri myndu
fá vottorðið: Má elcki sækja skóla fyrst um sinn.
Þá eru hér enn tvö atriði, er snerta barnavernd, en
eru eingöngu undir störfum kennaranna komin. Þar
á ég við fræðslu um almennar heilbrigð.is- og hollustu-
reglur, og að börnum séu kenndar umferðareglur.
Iívorutveggja þetta verða skólarnir að leggja rækl við.
Ef börnin læra ekki þessar einföldustu reglur í skól-
unum, læra þar að skilja gildi þeirra og temja sér þær,
undir handleiðslu kennaranna, er liætl við, að þær verði
ekki lærðar.
Þá hefir verið farið nokkrum orðum um ýms atriði
i framkvæmd barnaverndar, er sérslaklega varðar störf
i skólum, og börn á skólaaldri.
Hvað er þá um ]>á barnavernd, er l'ramkvæmd er
vegna barna innan skólaskyldualdLirs?
Hér nýtur kennaranna og starfskrafta þeirra eðlilega
ckki á sama liátt við, eins og þcgar um störf vegna eldri
barna er að ræða. Þó koma liér að sjálfsögðu ýms at-
riði til greina, eigi að siður.
Einn þáttnr í framkvæmd barnaverndarstarfsins, er
starfræksla dagheimila i bæjum og sumarheimila í
sveit, l'vrir veikluð bd,rn. Starfræksla slíkra lieimila
fer nú óðum i vöxt, en þó hvergi nærri sem skyldi, mið-
að við hina miklu ])örf.
Nú er svo liáttað, að þessi lieimili eru livergi rekin
af riki eða bæjarfélögum. Hinsvegar nýtur þessi starf-
semi nokkurs styrks frá því opinbera. Af þessum á-
slæðum er nauðsynlegt, að lil séu í bæjum og kaup-
túnum samtök áhugamanna, er hafi forgöngu um þessi
niál, og annist um rekstur stofnananna.
Hér er mikið verkefni fyrir áhugasama kennara. Þeir
hafa ýmsa þekkingu og skilyrði umfram aðra, til að
beita sér fyrir slíkum félagsskap og leiða hann.
Ég hefi hér af ráðnum hug eingöngu ritað um þá þætti