Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 42

Menntamál - 01.09.1941, Blaðsíða 42
88 MENNTAMÁL Finnsku börnin. Einn af kunnustu geðveikralæknum Pinnlands, dr. S. E. Danner, flutti í vetur erindi um áhrif styrjaldarinnar á börnin. Dr. Danner segir m. a.: Börn yngri en 4 ára virtust ekki hafa vit á hvað var að gerast og urðu því ekkert hrædd við ógnir stríðsins. En á aldrinum 4—-7 ára bar á mestri hræðslu. Þegar börn á þessum aldri heyrðu í flugvélum óvinanna, urðu þau oft lostin skelfingu. Afleiðing af þessu var mjög oft myrkfælni. Venjulega urðu þau brátt róleg fyrir umtölur fullorðinna. — Elztu börnin létu ekki á sjá. Ég átti dóttur í efri bekk og heimsótti hana í skólanum, einmitt meðan fyrsta loftárásin var gerð á Helsingfors. En þar var engin skelfing á ferðum. Sum börnin, þar á meðal dóttir mín, vildu komast á einhverja háa staði, til þess að hafa sem bezt útsýni. Seinna lærðu þau þó að halda sér í skefjum. En ég tel áreiðanlegt, að finnsk börn hafi ekki beðið mikið andlegt tjón af völdum stríðsins. Handtökur kennara og nemenda í Noregi. Við framhaldsskóla einn í Osló voru margir kennarar og um 50 nemendur handteknir í haust. Þýzkir nazistar, sem kúga norsku þjóðina til undirgefni, héldu því fram, að unglingar, sem tilheyrðu „Nasjonal Samling", væru hafðir útundan í skólanum og ofsóttir fyrir skoðanir sínar. Það var hin svokallaða „hirð“ nazista, sem kom málinu á loft. Dag nokkurn ruddist „hirðin“ inn í skólann, ákærði kennara og handtók þá samstundis með aðstoð leynilögreglu. Skólanefndir fjölmargar í Noregi hafa verið sviftar ráðum og stjórn skóla, sökum andstöðu við Þjóðverja í breytingum þeirra á skólahaldi og venjum. í einni svipan var þannig 8 skólanefndum og skólastjórnum vikið frá, þar á meðal í Östfold, Sarpsborg og Halden. Þjóffverjar í Noregi hafa fyrirskipað, að í barnaskólum landsins skuli bætt inn einni námsgrein, a. m. k. 1 klst. í viku: Það er kynning Nasjonal Samling. Vitamin. Skólabörnum erlendis eru nú víða gefnar vitamin-töflur í skólunum. Þannig er í ýmsum enskum skólum útbýtt C-vitamin-töflum, sem börnin fá með miðdegisverði. Yngri börn eru einkum látin taka töflur þessar. — í Þýzkalandi hefur þessi háttur einnig verið tekinn upp.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.