Menntamál - 01.03.1944, Síða 7
MENNTAMÁL
53
inn og ákafinn við hvað euia svo mikill, að hann virðist
varla unna sér nokkurrar verulegrar hvíldar fyrr en
verkinu er lokið, en þá vill oft fara svo, að þegar einu
verkinu lýkur, taki annað jafnskjótt við. Munu því hvíld-
arstundirnar oft vera ærið naumar. En það sér hvergi
á Helga Elíassyni. Hann er alltaf jafn rösklegur, fullur af
lífi og krafti, glaður og reifur og jafnlyndur, en getur
þó einstöku sinnum skipt skapi í svip, ef hann mætir
stakri ósanngirni eða taumlausri frekju og firrum, og
er slíkt sízt að lasta. Munu og allir sammála um það,
að í öllum sínum störfum og önnum hafi hann aldrei
reynzt á annan veg en heill og sannur drengur.
Þótt Helgi sé bæði hraðvirkur og mikilvirkur, er hann
jafnframt velvirkur, og kemur þetta hvarvetna fram í
öllu hans starfi í fræðslumálaskrifstofunni. Hann hefur
og þann fágæta hæfileika, að geta stokkið úr einu starfi
í annað, aftur og aftur, eftir því, sem þörfin krefur, og
sökkt sér þó samstundis niður í hvert verkið um sig með
allan hugann á því einu.
Helgi hefur ekki komizt hjá því að takast á hendur
fleiri störf en aðalstarf sitt, enda mun hann ekki geta
neitað nokkrum félagsskap, sem helgar sig fræðslu- eða
mannúðarmálum, um liðsinni. Hann er varaformaður
Blindravinafél. Isl. og í stjórn Barnavinafél. Sumargjafar.
Helgi Elíasson er kvæntur Hólmfríði Davíðsdóttur kaup-
manns, Kristjánssonar, og konu hans, Halldóru Arnljóts-
dóttur, prests, ólafssonar á Sauðanesi. Er Hólmfríður
hin mesta ágætiskona og hvers manns hugljúfi. Hefur
hún átt við mikil og þungbær veikindi að stríða, en hefur
þó óbugað þrek sitt og glaðlyndi. Þau Helgi eiga prýði-
legasta heimili og þrjú mannvænleg börn. Eru þau hjónin
samvalin um rausn, frjálsmannlega og glaðlega fram-
komu og ástúðlegt viðmót. Mun heimili þeirra hafa fengið
að vita af því, hve vinsæll húsbóndinn er, daginn, sem
hann varð fertugur. Jakob Kristinsson.