Menntamál - 01.03.1944, Síða 11
MENNTAMÁL
57
Tæknin sigrar fjarlægðirnar.
Fjarlægðir milli landa og landshluta eru óðum að hverfa
vegna vaxandi tækni, en yngstu ferðalangarnir okkar,
skólabörnin í strjálbýlinu, hafa lítið notið hennar enn
sem komið er. Vegakerfi ríkisins fullkomnast ár frá ári
og hið sama má segja um vegakerfi sýslna og hreppa.
Bílar fara nú daglega um flesta hreppa á Suðurlandi til
mjólkurflutninga og flytja jafnframt vörur til bænda.
Margir bændur eiga að vísu enn langa og erfiða leið á
bílveginn. En þeim fækkar óðum eftir því, sem vegirnir
lengjast innan sveitar. Og með hliðsjón af hraðvaxandi
vegagerðartækni og aukinni viðskiptaþörf er óhætt að
fullyrða, að þess verður ekki mjög langt að bíða, að svo
að segja hver bóndi í langsamlega flestum hreppum sunn-
an lands að minnsta kosti getur haft um það bil dagleg
verzlunarviðskipti.
Bættir vegir og mjólkurbílar hafa þegar breytt mörg-
um strjálbýlum sveitum í þéttbýli á sviði verzlunarmála,
og fleiri bætast í þann hóp í náinni framtíð. En mjólkur-
bílarnir hafa komið skólabörnum að litlu liði, enda er
bílum þessum ætlað annað hlutverk. En það liggur í
augum uppi, að nota mætti bíla til að flytja skóla-
börnin í flestum þeim sveitum, sem bílar fara daglega
um til mjólkurflutninga, og það því fremur sem flytja
þarf mjólkina víðast hvar miklu lengri leið en börnin.
Hef ég bæði nú í haust og í fyrravetur rætt við skóla-
nefndir og forráðamenn hreppsmála um að flytja skóla-
börn í bílum, þar sem vel hagar til í því efni á eftirlits-
svæði mínu, og hvarvetna fengið góðar undirtektir.
I1 < * >' i ’* ; - - , - * T 1
Verkefni skólabíla.
f vissum hreppum og þó fremur sérstökum hreppshlut-
um hagar þannig til, að nota mætti mjólkurbílana til að