Menntamál - 01.03.1944, Page 13

Menntamál - 01.03.1944, Page 13
MENNTAMÁL 59 fótgang-andi, svo að sem fæstir nemendur þyrftu á bíln- um að halda. Á það ber og að líta, að börn þurfi sem skemmst að bíða í skólanum meðan verið er að sækja bekkjarsystkini þeirra. Með það eitt fyrir augum væri heppilegt, að skólinn væri sem næst öðrum enda skóla- brautarinnar. En sé börnum úr nokkrum hluta skóla- hverfisins (t. d. einum hreppi) ætlað að sækja skólann annan daginn, en úr öðrum hluta þess hinn daginn, þyrfti skólinn að vera sem næst mörkum þessara tveggja skóla- sókna. Fleira mætti benda á í sambandi við val skóla- staða, en ekki skal þó farið um það fleiri orðum, því að staðhættir verða að ráða þar mestu um í hverju skóla- hverfi. Skólabílar mundu koma fleirum að góðu gagni en skóla- börnum einum. Verður hér vegna rúmleysis að láta nægja að drepa á það helzta í því efni. Ungmennafræðslan gæti haft mikið gagn af skólabíl- unum. Síðdegisskóli þyrfti ekki að kosta nema eina auka- ferð. Unglingarnir kæmu þá með sömu ferð og börnin væru flutt heim. Á vissum stöðum mætti sameina skóla- hverfi um ungmennaskóla (miðskóla), enda þótt hvert þeirra væri sér um barnaskóla. Reglubundnar ferðir innan sveitar kæmu vafalaust fleirum að góðu liði en skólanemendum einum, sérstak- lega ef bílarnir væru svo rúmgóðir, að þeir gætu tekið fleiri farþega en nemendurna. Mundi það koma mörgum vel, að geta brugðð sér bæjarleið með skólabílnum eða jafnvel komizt í búð. Bílar þessir yrðu þá jafnframt stræt- isvagnar sveitarinnar. Bændur þyrftu þá ekki að sárbiðja mjólkurbílstjórana um að leyfa sér að sitja ofan á brús- unum í trássi við landslög og sóma stéttar sinnar. En auk hinna reglubundnu skólaferða væri að minnsta kosti sums staðar hægt að grípa til þessr.ra bíla skólun- um að bagalausu til mannflutninga á fundi, skemmtanir og kirkjulegar samkomur, og til fleiri félagslegra þarfa.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.