Menntamál - 01.03.1944, Síða 23
MENNTAMÁL
69
er fengin fyrir því, að nokkurt fé kemur strax að notum.
Minnumst þess að geyma ekki til morguns það, sem hægt
er að gera í dag.
Réttum hjálparhönd strax!
Reykjavík, í marz 1944.
F. h. Sambands íslenzkra barnakennara.
Arngr. Kristjánsson, Ármann Halldórsson,
Guðjón Guðjónsson, Guðm. I. Guðjónsson,
Ingimar Jóhannesson, Jón Sigurðsson, Jónas B. Jónsson,
Pálmi Jósefsson, Sigurður Thorlacius.
íslenzk skólabörn flytja ofanskráð ávarp til heimila
sinna næstu daga. Vonandi er að efni þess verði vel tekið.
Hugmynd þessi, að hjálpa börnum í ófriðarlöndum, og
þá einkum Norðurlöndum, er ekki ný, svo sem kunnugt
er. En barnaskóli Akureyrar framkvæmdi hugmyndina
í vetur, með því að hefja fjársöfnun. Börn í Hafnarfii’ði
hafa einnig byrjað á líku starfi. Stjórn S. í. B. hefur orðið
einhuga um að hjálpa börnunum í þessu starfi, með því
að skipa framkvæmdanefnd og leita hjálpar hjá öllum
barnaskólum landsins. En nú er það mjög undir þegnskap
kennara komið, hvernig starf þetta tekst. Þess vegna heitir
stjórn S. í. B. á kennara og skólastjóra um land allt að
rétta þessu starfi barnanna hjálparhönd. Án þeirra að-
stoðar er barnahjálpin óframkvæmanleg á þessum vett-
vangi. En kennarar eru alltaf reiðubúnir, þegar um ræðir
starf, er eykur þroska og manndóm barnanna. Svo mun
og verða hér. Ekki verður sagt annað en að það sé mann-
bætandi starf, að börn hjálpi börnum. Starfsemi þessi
hefur líka verið nefnd Barnahjálp. Ég hygg, að margir
kennarar, foreldrar, börn og barnavinir finni til sárrar