Menntamál - 01.03.1944, Síða 29

Menntamál - 01.03.1944, Síða 29
MENNTAMÁL 75 er náð, hefur heyrnarleysinginn orðið að leggja á sig mjög mikið erfiði. Það, sem gerir þetta mögulegt, eru hinar mismunandi hreyfingar talfæranna fyrir hvert hljóð, og væru þær allar sjáanlegar, væri varaaflestur tiltölulega auðveldur. En svo er nú ekki, og þá vandast málið. Hér yrði of langt mál að fara nánar út í þetta atriði, heldur skal aðeins bent á það, sem þarna kemur heyrnarleysingjanum helzt til hjálpar. Þegar heyrandi maður talar, t. d. í síma, heyrir hann ekki hvert orð til fulls, sem við hann kann að vera sagt, sé orðið honum vel kunnugt áður. Þegar maður segir til nafns síns í síma, heyrum við eða hlustum eftir öllum hljóðum nafns- ns, sé okkur það ókunnugt, en sé okkur það kunnugt, hlust- um við aðeins á fyrsta hluta nafnsins og vitum þá strax, við hvern við tölum. Það er svipað þessu með heyrnar- leysingjann. Séu orðin, sem við hann eru sögð, honum ókunnug, verður hann að sjá hreyfinguna fyrir hvert hljóð þeirra til þess að geta numið þau og skilið, en þekki hann þau, meiningu þeirra og hljóðstellingar, þarf hann ekki að sjá nema hreyfingar fyrir nokkuð af hljóðunum til þess að skilja, hvað við hann er sagt. Það er þess vegna ritmálið, sem verður grundvöllur málkunnáttu hans, og þar sem ritmálið er öðruvísi en talmálið, verður hann að leggja sér mismuninn á minni. Þegar talandi barn tapar heyrninni, glatast það skiln- ingarvitið, sem mestan þáttinn átti í að stjórna talmál- inu. Röddin breytist þá óhjákvæmilega, talhreyfingarnar verða óákveðnar og hljóðin ógreinileg. Sé barnið ungt, 3—4 ára, tapar það málinu oftast nær algerlega og verður að læra það aftur á sama hátt og þeir, sem fæddir eru heyrnarlausir. Sé það eldra, má halda málinu viá, fái það fljótlega þjálfun í að tala og lesa af vörum, en sé barnið búið að læra að lesa og skrifa, er málinu stórum minni hætta búin, og því minni, sem einstaklingurinn er eldri og málið orði rótgrónara.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.