Menntamál - 01.03.1944, Síða 32
78
MENNTAMÁL
námsgreinunum, væri æskilegt, að þess væri getið í um-
sókn um námskeiðið.
Ef nægilega margir þátttakendur óska eftir kennslu í
einhverri annarri námsgrein en þeim, sem nefndar eru
hér að framan, mun verða reynt að stofna sérstakan náms-
flokk í þeirri grein.
Þátttökugjald fyrir námskeiðið er kr. 50,00.
Áformað er að fara bílferð til Þingvalla og að Ljósa-
fossi. Kostnaður við þá ferð greiðist sérstaklega.
Þeim þátttakendum, sem þess óska, mun verða séð fyrir
gistingu, annað hvort í Stúdentagarðinum eða í Stýri-
mannaskólanum. Gistingin kostar kr. 8,00 á dag í tveggja
manna herbergjum á Stúdentagarðinum, en kr. 4,00 á
dag í fleirbýlisstofum í Stýrimannaskólanum. Búizt er
við því, að hægt muni verða að útvega nokkrum þátt-
takendum fæði í Mötuneyti stúdenta. Fæðið kostar 10 kr.
á dag. Þeir, sem kynnu að óska eftir, að þeim yrði út-
veguð gisting eða fæði meðan námskeiðið stendur yfir,
þurfa að taka það sérstaklega fram, er þeir sækja um
námskeiðið.
Þar sem takmarka verður fjölda þátttakenda, þurfa
umsóknir að berast hið fyrsta og eigi síðar en 25. apríl
til þess að öruggt sé, að menn komist að. Umsóknirnar
sendist til Ágústs Sigurðssonar, cand. mag., Freyjugötu
35, Reykjavík.
Stórlcostlegar framfarir í sundmálum íslendinga
heitir grein í dagblaðinu Visi io. i'ebr. s. i. Þar er frá því skýrt, að
samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini Einarssyni íþróttafulltrúa liafi
1281 barn af 2367 fullnaðarprófsbörnum lokið tilskildu sundnámi
s.l. ár, eða'54,1%. Síðan tekur Iilaðið upp tölur úr grein Þorsteins
um framkvæmd sundskyldunnar í janúarhefti Menntamála og birtir
kafla úr henni.