Menntamál - 01.03.1944, Side 33
MENNTAMÁL
79
Fréttir og félagsmál
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
forstöðukona barnaheimilisins í Vesturborg í Reykjavík, andaðist
28. febrúar s.l. Hún var fædd á Gilsárteigi í Eiðaþinghá 3. desember
1907, stundaði nám í Eiðaskóla og seinna við Kunstflidskolen í Kaup-
mannaliöfn. Hún hafði lengi unnið ýmis störf fyrir Barnavinafélagið
Sumargjöf og verið forstöðukona Vesturborgar þrjú síðustu árin.
Sigurður Ólafsson
kennari í Hafnarfirði varð sextugur fyrir skömmu (f. 1. marz 1884).
Hann tók kennarapróf úr kennaradeild Flensborgaskólans 1902. Hann
kenndi í Njarðvíkum 1904—’6 og í Garðahreppi 1906—13, en síðan
hefur hann stundað barnakennslu í Hafnarfirði og verið fastur kcnn-
ari við barnaskólann þar síðan 1918.
UO nemendur Iiennaraskólans
hafa gerzt kaupendur Menntamála fyrir forgöngu eins af nemend-
um þriðja bekkjar, Vilbergs Júlíussonar. Menntamál vilja láta þá von
1' Ijós, að úr hópi þessara ungu áhugamanna komi fleiri eða færri
menn, sem á sínum tíma láti uppeldismál þjóðarinnar til sín taka, svo
að um muni. Næg eru verkefnin, hvert sem litið er.
Framlenging skólaslcyldu.
Grein Stefáns Júlíussonar um Jiað efni í janúarhefti Mennta-
mála hefur vakið töluverða eftirtekt, og er Jiað að vonum, Jiví að mál-
efnið er hið merkilegasta, eins og komið liefur fram hjá sumum
kennurum undanfarið, bæði á kennarafundum og í blöðum. Timinn
birtir kafla úr greininni (3. febr.) og gerir liana að umtalsefni. Segir
ritstjórinn Jiar meðal annars: „Það hefur oft verið rætt um, að stór
hluti borgaræskunnar væri að slitna úr tengslum við landið, væri
hættur að Jiekkja Jiær kröfur, sem Jiað gerir til nýtilegra Jijóðfélags-
þegna. Það Jiarf að kenna öllum unglingum að Jiekkja til helztu
vinnubragða við aðalatvinnuvegina á landi og sjó. Ymsir hafa álitið,
að úr þessu mætti m. a. bæta með Jiegnskyldu. Unglingaskólinn gæti
verið miklu eðlilegri og framkvæmanlegri leið í Jieim efnum.
Þótt að þessu ráði væri horfið, er vart liægt að hugsa sér, að
unglingaskólakerfið gæti náð til alls landsins fyrst í stað. Framkvæmd-